Fréttablaðið - 24.01.2023, Blaðsíða 1
| f r e t t a b l a d i d . i s |
Frítt
2 0 2 3
HALLDÓR | | 12 PONDUS | | 20
Ungverskur
Akkilesarhæll
1 6 . t ö L U b L A ð | 2 3 . á R g A N g U R |
Fréttir | | 6
LíFið | | 24
LíFið | | 26
Löngun Japana til
að gifta sig minnkar
Svanfríður breytti
húsinu fyrir Foster
Þ R I ð J U D A g U R 2 4 . J A N ú A R|
Menning| | 22
Á bleiku skýi
með Ljóðstafinn
www.skoda.is
Fæst einnig
fjórhjóladrifinn!
Njóttu endurhleðslunnar
á alrafmögnuðum
Škoda Enyaq iV Coupé
M O L A R
Þunglyndi og tilfinninga-
vandi eru meðal orsaka þess
að um eitt þúsund börn á
Íslandi mæta ekki til skóla.
margret@frettabladid.is
SkÓLAmáL Um þúsund íslensk börn
glíma við skólaforðun og treysta sér
ekki til að mæta í skólann. Kvíði og
þunglyndi eru helstu áhættuþættir
þegar kemur að skólaforðun, auk til-
finningavanda og hegðunarörðug-
leika.
Unnsteinn Jóhannsson, verkefna-
stjóri hjá Barna- og unglingageð-
deild Landspítalans, segir að áætla
megi að fjöldinn sé mun meiri.
Kennsla og nám á tímum Covid-19
hafi boðið fram ýmsar lausnir sem
gætu hentað þessum hópi.
Velferðarvaktin gerði í síðustu
viku rannsókn um skólaforðun
fyrir árið 2019 og kom þá í ljós að
2,2 prósent íslenskra barna þjást af
skólaforðun og treysta sér ekki, af
fjölbreyttum orsökum, til að mæta
í skólann.
Guðrún Erla Hilmarsdóttir, verk-
efnastjóri hjá BUGL, bendir á að
mögulegt geti verið að einstaklingar
hafi einangrast enn frekar á tímum
Covid „og dvelji því í sínum geðrösk-
unum heima við“. sjá síðu 4
Eitt þúsund börn á Íslandi
treysta sér ekki í skólann
Rannsókn sýnir að
2,2 prósent íslenskra
barna treysta sér ekki
til að mæta í skólann.
34
mörk fékk Ísland á
sig að meðaltali
í milliriðlinum.
HANDbOLtI Tölfræðin sýnir að
vörnin hjá íslenska landsliðinu í
handbolta á HM í Svíþjóð var ekki
nægilega góð. „Við erum að fá á
okkur 102 mörk í þremur leikjum í
milliriðlinum sem segir ofboðslega
margt,“ segir Halldór Jóhann Sigfús-
son, aðstoðarþjálfari Tvis Holstebro.
„Tölfræðin sýnir hins vegar
að vörnin var ekki nægilega góð
á mótinu og það á eftir að finna
útskýringar á því.
Mér fannst vörnin standa best
gegn Portúgal en svo voru þetta
tíu mínútur hér og korter þar í mis-
munandi leikjum þar sem hún stóð
sig vel,“ segir Halldór. sjá síðu 20
Vörnin klikkaði
Guðrún Erla Hilmarsdóttir og
Unnsteinn Jóhannsson.
Mótmælendur höfðu komið sér fyrir við inngang Alþingis í gær þegar önnur umræða um útlendingafrumvarp dómsmálaráðherra fór fram og stóð hún fram á
kvöld. Var tekist á í þingsal en fyrir utan var lítill hópur fólks liggjandi í svefnpokum og með blöðrur og mótmælaspjöld. FréttabLaðið/VaLLi