Fréttablaðið


Fréttablaðið - 24.01.2023, Qupperneq 2

Fréttablaðið - 24.01.2023, Qupperneq 2
Væri betra að beina vélunum annað? Eða leggja seinna af stað? Breki Karlsson, formaður Neytendasam- takanna Brjáluð læti á Bocuse d´Or Sigurjón Bragi Geirsson varð áttundi í Bocuse d’Or í gær en Danir hrósuðu sigri í þessari virtustu matreiðslukeppni heims, sem yfirleitt er kölluð heimsmeist- arakeppni einstaklinga í matreiðslu. Fjölmargir Íslendingar fylgdu Sigurjóni, meðal þeirra var Ólafur Helgi Kristjánsson, eigandi Brasserie Kársnes í Kópavogi. „Við höfum alltaf endað á topp tíu sem er frábær árangur fyrir litla Ísland og sýnir hvað við erum að gera vel í mat hér á landi,“ segir Ólafur. Mynd/Ólafur Helgi - einfaldara getur það ekki verið! Mikil óánægja ríkir hjá far- þegum Icelandair sem sumir boða lögsókn eftir langa bið í vélum félagsins í Keflavík. Neytendasamtökin segja málið vekja upp áhugaverðar spurningar. bth@frettabladid.is ggunnars@frettabladid.is samgöngur Ranglega hefur verið haldið fram að allar vistir hafi klárast um borð í vélum Icelandair sem urðu veðurtepptar á sunnudag. Þetta segir framkvæmdastjóri hjá Icelandair. Farþegar biðu útgöngu úr vélum á Kef lavíkurf lugvelli í allt að tíu klukkustundir. Samkvæmt upp- lýsingum frá Isavia taka flugfélögin ákvörðun um hvort lent skuli á flug- velli eða ekki. „Við upplýsum flugfélög og flug- rekstrarfyrirtæki um veðurspá,“ segir Guðjón Helgason hjá Isavia. Ljóst var að hans sögn að veðrið á sunnudag yrði vont og var haldinn sérstakur fundur á laugardags- kvöldið þar sem aðgerðastjórn mat aðstæður. „En flugvöllurinn er alltaf opinn. Alþjóðaflugvellir eru alltaf opnir,“ segir Guðjón. Ef vindhraði fer yfir 50 hnúta er landgangur ekki opnaður að vélum. Stigabílar komust hvorki lönd né strönd þar sem þeir hefðu getað nuddast út í vélarnar í rokinu. Vindur fór yfir 70 hnúta í hviðum og fauk hlaðmaður hundruð metra eftir flugbrautinni í látunum. „Það sköpuðust þarna mjög erf- iðar aðstæður,“ segir Guðjón. Kristen Carr, farþegi í Ameríku- fluginu, sat föst allan sunnudaginn. Hún vandar Icelandair ekki kveðj- urnar og segir að allur matur hafi klárast um borð sem og drykkir og salernin orðið ónothæf. Þetta segir Jens Bjarnason, framkvæmdastjóri rekstrarsviðs Icelandair, vera rangt. „Við höfum rætt við áhafnir og í öllum vélum voru birgðir, óáfengur vökvi til að drekka. Þar sem vatn kláraðist var til sódavatn.“ Jens segir að spár færustu sér- fræðinga um veðrið hafi ekki stað- ist. „Versta veðrið átti að ganga yfir klukkan níu um morguninn en detta svo niður um hádegi. Ef það hefði gengið eftir hefðum við alveg getað komið vélunum til og frá Kef lavík þarna um morguninn,“ segir Jens. Eitraður kokteill hita- stigs, úrkomu og vinds leiddi til þess að svo fór sem fór, að sögn Jens. Tjón Icelandair hleypur á tugum milljóna. Spurður hvort félagið sjái fram á að greiða farþegum skaða- bætur segir Jens að röskun vegna veðurs sé undanþegin neytenda- rétti. Breki Karlsson, formaður Neyt- endasamtakanna, segir að málið veki upp áhugaverðar spurningar um hvenær farþegi sé kominn á áfangastað og hvenær ekki. „Er það þegar flugvélin lendir eða þegar far- þegar stíga frá borði? Það getur haft áhrif á mögulegar bætur.“ Breki segir að læra verði af þessari reynslu. „Hver nig munu f lug félög in bregðast við næst þegar svona veður geisar? Væri betra að beina vélunum annað? Eða leggja seinna af stað? Þetta er eitthvað sem f lugfélögin hljóta að skoða.“ n Segir vistir ekki hafa þrotið Fárviðri gerði farþegum um borð í vélum Icelandair lífið leitt á sunnudag. Icelandair og farþegum ber ekki saman. fréttablaðið/anton benediktboas@frettabladid.is skólamál Nemendur í þriðja og sjöunda bekk í Flataskóla þurfa að vera heima næstu tvo daga vegna myglu í skólanum. Starfsemi leik- skólans mun einnig liggja niðri næstu tvo daga. Eins og fram hefur komið greindist mygla í Flataskóla úr sýnum sem voru tekin í október og í kjölfarið var farið í heildarút- tekt innan skólans. Í bréfi sem sent var til foreldra barna í skólanum í gær kemur fram að Mannvit hafi upplýst um fyrstu niðurstöður úr sýnatökum en þær benda til þess að loka þurfi nokkrum rýmum til viðbótar í skól- anum. Um er að ræða matsal og leik- skóladeild skólans en einnig tvær kennslustofur 7. bekkjar, eina stofu 3. bekkjar, eina stofu 6. bekkjar og sérkennslurými. Aðrir nemendur áttu að mæta í skólann venju samkvæmt en þurfa að koma með nesti með sér í skól- ann í dag. n Nemendur heima vegna myglu Það fá ekki allir að mæta í skólann í dag. fréttablaðið/Valli odduraevar@frettabladid.is lögreglumál Margrét Valdimars- dóttir, dósent í af brotafræði við Háskóla Íslands, segir að rannsóknir á notkun lögreglu á raf byssum í nágrannalöndum bendi til þess að þær hafi lítið að segja um öryggi lögreglu og almennra borgara líkt og Jón Gunnarsson dómsmálaráð- herra hefur fullyrt. Reglugerð ráðherra sem heimilar lögreglumönnum að nota rafbyssur öðlaðist gildi í gær. Margrét segir að sumir hafi áhyggjur af því að rafbyssuvæðing lögreglunnar muni auka vopnaburð hjá glæpahópum. „Mér finnst ekki sennilegt að þetta muni breyta ein- hverju varðandi vopnaburð glæpa- hópa.“ Að síðustu nefnir Margrét að í samanburðarlöndum Íslands tíðk- ist það gjarnan að halda vel utan um gögn þegar svo stórtækar breytingar verða á löggæslu. „Önnur lönd eins og Noregur og Bretland sem hafa farið í þessa breytingu hafa haldið rosalega vel utan um gögn, af því að núna á markmiðið að vera að fækka slysum á lögreglumönnum, þá verður líka að vera skýrt að það sé haldið utan um gögn þannig að það sé hægt, til dæmis eftir eitt ár, tvö ár, að skoða hvað gerðist.“ n Rafbyssuvæðingin hófst í gær Margrét Valdi- marsdóttir, dósent í af- brotafræði við Háskóla Íslands 2 fRéttiR FRÉTTABLAÐIÐ 24. jAnúAR 2023 ÞRiÐJUDAGUR

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.