Fréttablaðið


Fréttablaðið - 24.01.2023, Qupperneq 20

Fréttablaðið - 24.01.2023, Qupperneq 20
34,5 Ísland skoraði 34,5 mörk að meðaltali í leikjum sínum á þessu móti. 2 Ísland skoraði tvisvar 40 mörk eða fleiri á mótinu. Fram að því hafði Ísland fjórum sinnum skorað 40 mörk eða meira í 129 leikjum á HM. 28,3 Markmenn Íslands voru með 28,3 prósent markvörslu í leikj- unum sex. 14 Af sextán útileikmönn- um Íslands á mótinu komust fjórtán á blað. Aðeins Ólafur Andrés og Ýmir náðu ekki að skora. 21,8 Bjarki Már skoraði rúmlega fimmtung marka Íslands á mótinu og var með helmingi fleiri mörk en næsti maður. 8 Ísland fékk á sig að meðtali 34 mörk í leik í milliriðlinum en 26 í riðlakeppninni. Íslenska liðið náði ekki að standa undir væntingum á HM í handbolta og féll úr leik í milliriðlunum. Tap gegn Ungverjum í öðrum leik mótsins reyndist örlaga- valdurinn þetta árið. kristinnpall@frettabladid.is Handbolti „Það var alveg vitað að við gætum skorað mörk en von- brigðin í þessu er varnarleikurinn, hvað hann hefur oft verið slakur þótt það hafi komið góð augnablik,“ segir Halldór Jóhann Sigfússon, aðstoðarþjálfari Tvis Holstebro, aðspurður hvernig spilamennska Íslands á Heimsmeistaramótinu í handbolta horfir við honum, sólarhring eftir að það varð ljóst að Ísland væri úr leik. „Ég held að það séu allir ótrúlega svekktir með þessa niðurstöðu og að það sé hægt að kalla þetta von- brigði. Þótt þetta séu framfarir frá síðasta móti, þá var HM 2021 algjört afhroð. Við erum með gott lið og það hafa sjaldan verið jafn margir íslenskir leikmenn að spila í stórum hlutverkum í stórum klúbbum í Evrópu. Það voru leikmenn utan hóps sem eru að spila í háum gæða- flokki.“ Í f ljótu bragði er augljóst hvað varð Íslandi að falli. Varnarleik- ur Íslands brást á ögurstundu en Halldóri fannst hann sjá glefsur af góðum varnarleik en það hafi liðið of langur tími á milli. „Guðmundur er frá- bær þjálfari og liðið vel undirbúið en það er eitthvað sem fer ú r skeiðis þa r na . Við vorum hrika- lega slakir varnar- lega 7 gegn 6 þar s e m o k k u r tókst ekki að st a nd a það af okkur, sér- staklega gegn Grænhöfðaeyjum. Við erum að fá á okkur 102 mörk í þremur leikjum í Tölfræðin sýni að vörnin var ekki nægilega góð Væntingarnar voru miklar til liðsins í aðdraganda mótsins en slæmir kaflar urðu liðinu að falli. Tapið gegn Ungverjum í annarri umferð riðlakeppninnar reyndist banabitinn Íslands. Fréttablaðið/EPa milliriðlinum sem segir ofboðslega margt,“ segir Halldór spurður út í varnarleikinn og heldur áfram: „Liðið var að hlaupa ótrúlega mikið. Ég persónulega hefði látið okkur bregðast við og fara í öðru- vísi vörn og hef áður sagt það, en þjálfarar vilja halda í stöðugleika og Guðmundur hefur haldið í 6–0 vörnina sem hefur stundum skilað frábærum varnarleik. Tölfræðin sýnir hins vegar að vörnin var ekki nægilega góð á mótinu og það á eftir að finna útskýringar á því. Mér fannst vörnin standa best gegn Portúgal en svo voru þetta tíu mín- útur hér og korter þar í mismunandi leikjum sem hún stóð sig vel.“ Þrátt fyrir að tveir af burðarásum sóknarleiksins hafi meiðst á mótinu tókst Íslandi að skora að meðaltali 34,5 mörk í leik. „Tölfræðin sýnir að Gísli er meðal bestu sóknar- manna mótsins. Það voru auðvitað vonbrigði að horfa á eftir Ómari í meiðsli og Aroni. Eftir á hugsar maður hvað þeir spiluðu mikið í byrjun, en á sama tíma er auðvelt fyrir þjálfara að spila leikmönnum áfram þegar vel gengur og Ómar er vanur þessu álagi,“ segir Halldór sem hefði viljað sjá hófsamlegri notkun á Aroni í upphafi móts. „Aron er ekki vanur að spila svona margar mínútur lengur. Hann spilar þessa dagana um 30 mínútur í leik með Álaborg og hefur ekki klárað stórmót í nokkur ár. Fyrir vikið velti ég fyrir mér álagsstjórnun þar sem við erum með stóran hóp og nokkra leikmenn sem geta komið inn,“ segir Halldór sem hrósar Gísla Þorgeiri. „Það var ótrúlega mikið álag á Gísla á þessu móti og hann var hreint út sagt stórkostlegur. Hann skilaði sínum mörkum, fiskaði fjöl- mörg víti, gaf fullt af stoðsending- um og dregur liðið áfram.“ Halldór segist hafa orðið var við umræðu um hvort Guðmundur sé kominn á endastöð með liðið. „Maður veit ekki hvað gerist í framhaldinu. Við gerum miklar kröfur sem handboltaþjóð og leikmennirnir líka. Guð- mundur er einn færasti þjálf- ari Evrópu og með frábært teymi, en það er annarra að meta hvort tími hans sé liðinn,“ segir Halldór en það kom honum á óvart að sjá Guðmund skipta sér af umfjöllun um liðið. „Það vantar auðvitað ekki sérfræðingana á samskipta- miðlum og það eru margir sem fara fram úr sér í blaðri og rugli. Guðmundur var fljótur að fara í að pæla í þessu, hann hefur verið að verja sig og sitt starf síðustu ár. Ef Alfreð væri að pæla í þessum málum, hvað hinn almenni sér- fræðingur í sjónvarpi væri að segja, væri hann líklegast búinn að tapa baráttunni. “ n 16 íþróTTir FRÉTTABLAÐIÐ 24. jAnúAR 2023 þriÐJUDAGUr

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.