Fréttablaðið - 24.01.2023, Side 22

Fréttablaðið - 24.01.2023, Side 22
Hvernig getum við notað þetta afl til að okkur líði betur? Hafdís Hanna Ægisdóttir Ástkær móðir okkar, systir, tengdamóðir, amma og langamma, Jóhanna Hermannsdóttir frá Vestmannaeyjum, andaðist 14. janúar sl. í Bandaríkjunum. Fyrir hönd aðstandenda, Helgi Hermann Hannesson Jón Kristinn Hannesson Herdís Hannesdóttir Agnes Sandra Hannesdóttir Edda Sigríður Hermannsdóttir Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, Jónas Helgason Sautjándajúnítorgi 1, 210 Garðabæ, lést í faðmi fjölskyldunnar á líknardeild Landspítala 10. janúar. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Eyþóra V. Kristjánsdóttir Hjördís Lóa Ingþórsdóttir Ingunn Vattnes Jónasdóttir Sverrir Óskarsson Kristján Vattnes Jónasson Linda Rós Birgisdóttir og barnabörn Ástkær móðir okkar, dóttir, systir, mágkona og amma, Halldóra Björg Ström lést þann 18. desember sl. Jarðarförin fór fram í kyrrþey 5. janúar síðastliðinn. Stefán Ásgeir Arnarsson Vigdís Margrét Jónsdóttir Viktor Örn Arnarson Karen Margrét Bjarnadóttir Sigrún Ström, Lúðvík Ólason, Stefán Ström, Helga Bjarnadóttir, Gabríela Móey Stefánsdóttir, Axel Ström Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Ólöf Elínbjört Gísladóttir Ollý, Elín áður til heimilis að Selási 6, Egilsstöðum, lést á hjúkrunarheimili Hrafnistu, Skógarbæ, sunnudaginn 8. janúar. Hún verður jarðsungin frá Lindakirkju föstudaginn 27. janúar kl. 15.00. Athöfninni verður streymt á vefslóðinni: Lindakirkja.is/utfarir Gylfi Már Hilmisson Philippa Stokes Margrét Friðriksdóttir Guðmundur Óli Ragnarsson Gísli Friðriksson Bryndís Eva Vilhjálmsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Vesturhlíð 2 | Fossvogi | s. 551 1266 | utfor@utfor.is | utfor.is VIÐ ÞJÓNUM ALLAN SÓLARHRINGINN Útfararþjónusta í yfir 70 ár Sólarhringsvakt: 581 3300 & 565 5892 Komum til aðstandenda og ræðum skipulag sé þess óskað Sverrir Einarsson S: 896 8242 Jón G. Bjarnason S: 793 4455 Jóhanna Eiríksdóttir Útfararstofa Íslands www.utforin.is w Auðbrekku 1, Kópavogi Útfararstofa Hafnarfjarðar www.utfararstofa.is w Dofrahellu 9b, Hafnarfirði Loftslagsleiðtogahópurinn við ísklifur. Mynd/Aðsend Hafdís Hanna Ægisdóttir, forstöðumaður Stofnunar Sæmundar fróða um sjálfbæra þróun. Mynd/ Helen MAybAnks Loftslagskvíði – Hvernig lifum við með honum? er yfirheiti hádegis- fundar Loftslagsleiðtogans og Stofnunar Sæmundar fróða um sjálfbæra þróun. arnartomas@frettabladid.is Stofnun Sæmundar fróða um sjálfbæra þróun og Loftslagsleiðtoginn standa fyrir hádegisfundi á morgun, miðviku- dag, þar sem loftslagskvíði verður rædd- ur og hvernig hægt er að lifa með honum. Þar verða áhrif loftslagskvíða tekin fyrir í erindum og opnum umræðum. „Við komum að þessu verkefni, Lofts- lagsleiðtoganum, sem fékk styrk úr Loftslagssjóði 2021,“ segir Hafdís Hanna Ægisdóttir, forstöðumaður Stofnunar Sæmundar fróða um sjálf bæra þróun. „Loftslagsleiðtoginn miðar að því að vald efla ungt fólk til að takast á við lofts- lagsmálin í bland við útivist og leiðtoga- þjálfun.“ Umræðuefni fundarins segir Hafdís Hanna tilkomið vegna þess hve mikið loftslagskvíði herjar á ungt fólk í dag. „Það eru auðvitað þau sem munu erfa jörðina,“ segir hún. „Við ákváðum þemað með því að spyrja þau sem útskrifuðust hjá okkur úr Loftslagsleiðtoganum hvað ungt fólk vildi helst tala um og þetta er það sem kom upp.“ Getur verið valdeflandi Erindi á fundinum á miðvikudag flytja þau Sverrir Nordal rithöfundur og Arn- hildur Hálfdánardóttir, dagskrárgerðar- maður á RÚV, sem hafa bæði fjallað um loftslagskvíða í sínum verkum. Þá verða einnig fjölbreyttar umræður, meðal annars með aðkomu frá sálfræðingi hjá sálfræðiþjónustu Háskóla Íslands og frá háskólanema sem tók þátt í Loftslags- leiðtoganum. Hafdís Hanna segist ekki alveg viss um hvenær hugtakið loftslagskvíði dúkkaði fyrst upp en segir það orðið statt og stöðugt meira áberandi á allra síðustu árum. „Við erum ekki síst að taka þetta fyrir svo fólk geti fundið leiðir til að takast á við loftslagskvíðann,“ útskýrir hún. „Hann er raunverulegur og eitthvað sem ungt fólk, og auðvitað eldra fólk líka, finnur fyrir í sífellt meiri mæli.“ Hvað getum við gert til að takast á við kvíðann? „Það er til dæmis hægt að vera virk í umræðunni um loftslagsmál eða nota list til að tjá sig,“ svarar Hafdís Hanna. „Það er hægt að valdefla sjálfan sig til að takast á við þetta. Ég held að það sé aldrei gott að sópa loftslagskvíðanum bara til hliðar.“ Hafdís Hanna bætir að lokum við að þótt kvíðinn geti haft hamlandi áhrif þá megi líka nýta hann sem afl til breyt- inga. „Hann getur gefið okkur kraft til þess að halda áfram að finna lausnir á þess- ari miklu áskorun sem við jarðarbúar stöndum frammi fyrir. Hvernig getum við notað þetta af l til að okkur líði betur? Við viljum endilega fá umræður um þetta í salnum svo við getum heyrt hvernig fólki líður með þetta allt saman og lært hvert af öðru.“ Fundurinn fer fram í Odda, stofu 101, í Háskóla Íslands milli klukkan 12 og 13 á morgun og er öllum opinn. n Lifað með loftslagskvíða Merkisatburðir | 1802 Napoléon Bonaparte er kjörinn forseti Ítalska lýð- veldisins á Norður-Ítalíu. 1855 Kirkjan á Hvanneyri í Siglufirði fýkur af grunninum og hafnar á hliðinni í kirkjugarðinum. 1908 Fjórar konur eru kjörnar í bæjarstjórn í Reykjavík. Þetta er í fyrsta sinn sem konur hafa almennan kosningarétt í sveitarstjórnarkosningum. 1962 Brian Epstein tekur að sér umboð Bítlanna. 1984 Fyrsta Apple Macintosh-tölvan kemur í verslanir. 2008 Ólafur F. Magnússon tekur við embætti borgar- stjóra Reykjavíkur. 18 tímamót FRÉTTABLAÐIÐ 24. jAnúAR 2023 ÞRIÐJUDaGUR

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.