Fréttablaðið - 24.01.2023, Page 27

Fréttablaðið - 24.01.2023, Page 27
Gagnrýnandi segir leikarana baða sig í sviðsljósinu í Hvað sem þið viljið en ekki sé hægt að hengja heila sýningu á leikaraskap. Mynd/Aðsend Hvað sem þið viljið er ný aðlögun á verki Shakespeares. Mynd/Aðsend Leikhús Hvað sem þið viljið eftir William shakespeare Þjóðleikhúsið Þýðing: Karl Ágúst Úlfsson Leikgerð: Ágústa Skúladóttir og Karl Ágúst Úlfsson Leikstjórn: Ágústa Skúladóttir Leikarar: Almar Blær Sigurjónsson, Guðjón Davíð Karlsson, Hallgrímur Ólafsson, Hilmar Guðjónsson, Katrín Halldóra Sigurðardóttir, Kristjana Stefánsdóttir, Sigurður Sigurjónsson, Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir og Þórey Birgisdóttir Leikmynd og búningar: Þórunn María Jónsdóttir Lýsing: Jóhann Bjarni Pálmason Tónlist og tónlistarstjórnun: Kristjana Stefánsdóttir Hljóðhönnun: Brett Smith Myndbandshönnun: Ásta Jónína Arnardóttir Sigríður Jónsdóttir Í Arden-skógi getur allt gerst; kyn, kynhneigð og kynhlutverk eru fljót- andi, ástin svífur yfir vötnum og söngvarnir af vörum. Líkt og önnur leikrit skáldsins þá er Hvað sem þið viljið mjög teygjanlegt í túlkun og ævintýrin ótæmandi. Þessi gaman- leikur eftir William Shakespeare ratar á svið Þjóðleikhússins í þriðja sinn, nú í leikstjórn Ágústu Skúla- dóttur, en um þessar mundir má sjá tvö leikrita skáldsins í leikhúsum Reykjavíkur. Margir kannast kannski við leikritið undir heitinu Sem yður þóknast en Karl Ágúst Úlfsson snýr titlinum og textanum öllum á nútímalegra mál og úr verður Hvað sem þið viljið. Karl Ágúst er með liprari orðasmiðum landsins og þýðingin ber þess merki. Hann tekur Shakespeare ekki of hátíð- lega heldur skreytir textann með slanguryrðum og spaugi. Meira að segja laumar hann inn enska orða- sambandinu „low-key“ sem kætti mannskapinn, enda vinsælt slangur hjá yngri kynslóðinni. Hvorki fugl né fiskur Söguþráðurinn er samsuða af fjöl- skylduerjum, dulargervum og heimspekilegum þönkum um ástina. Hefðarfólkið Orlandó og Rósalind fella hugi saman við fyrstu sýn en margt stendur í vegi fyrir að þetta unga fólk fái að elskast. Rósa- lind hefur stundum verið kölluð ein eftirminnilegasta kvenpersóna skáldsins. Hún lætur ekki vaða yfir sig, tekur málin í sínar hendur og ögrar umhverfi sínu. Katrín Hall- dóra er mjög fær gamanleikkona en Rósalind skortir dýpt og breiðari tilfinningaskala. Almar Blær leikur Orlandó og skemmtilegt er að sjá hann spreyta sig á Shakespeare, enda spennandi leikaraefni. Hann er léttur í lund en lin framkoma Orlandó verður til þess að hann er utanvelta í sýningunni, hvorki fugl né fiskur. Þessi óræðni og afstöðu- leysi einkenna nánast allar per- sónur leiksins. Gott dæmi er Selja, nánasta vin- kona Rósalindar sem Þórey leikur af þrótti. Hún er tvístígandi gagnvart bestu vinkonu sinni, óviss um hvort tilfinningar sínar spretti af vináttu eða rómantískri ást. Spurningunni er aldrei almennilega svarað og er Selja þannig fúllynd táningsstelpa frekar en ung kona á tímamótum. Prófstein leikur Hallgrímur af af- slöppun og húmor, enda hlutverkið eins og skrifað fyrir hann. Atriði hans og Kristjönu í hlutverki Öddu eru kostuleg en Kristjana syngur sömuleiðis afar vel. Leikarar í stuði Guðjón Davíð, Hilmar, Sigurður Sigurjónsson og Steinunn Ólína skipta á milli sér heilum haug af persónum og eru í miklu stuði. Litla augnablikið þegar Friðrik hertogi paufast við að príla af hásæti sínu undirstrikar náðargáfu Sigurðar. Steinunn Ólína fangar tilfinninga- rússíbana þeirra samfélagslega van- hæfu og skotnu af sinni einstöku snilli, textaf lutningur hennar er sömuleiðis frábær. Guðjón Davíð er í essinu sínu og fær að sleppa sér lausum í fíf lalátunum. Hilmar er á miklu flugi þessa dagana og mætir á svið með krafti, tekur sjálfan sig ekki alvarlega og mjólkar hverja setningu, senuþjófur. Allt er þetta gott og vel, leikararn- ir gera ágætlega og leysa sitt hlut- verk með látalátum en litlu er bætt við og heildarmyndin losaraleg. Ágústa setur grínið í forgrunninn og pólitíkin er þannig skilin eftir við vegkantinn. Leikararnir standa til hliðar við söguna frekar en að sökkva sér í hana. Hið sama má segja um listræna umgjörð sýning- arinnar. Leikmynd Þórunnar Maríu skortir líf og búningarnir eru of fyrirferðarmiklir. Karlmannsgervi Rósalindar er mitt á milli hobbita og skóladrengs, hvorugt er sérstak- lega heillandi. Myndbandshönnun Ástu Jónínu líður yfir bakvegginn og fram hjá skilningarvitunum. Afstöðulaus sýning Tónlist Kristjönu kveikir undir sýningunni, þar spilar texti Karls stórt hlutverk sem og frammistaða leikaranna. Frumsamda tónlistin er snotur og vel samin, en hljóð- heimurinn dalar þegar leitað er í aðrar lagasmíðar. Notuð eru stef úr nokkrum Bítlalögum sem eru hljómþýð og kunnugleg en afskap- lega klisjukennd lausn og stingur í stúf við hljóðheiminn. Í Arden-skóginum má finna kyn- lega kvisti en hvar eru kvárin, kyn- uslinn og kaosið? Afstöðuleysi verð- ur sýningunni til trafala þrátt fyrir frjálslega og lifandi þýðingu. Þeir góðu eru góðir, þeir vondu vondir og allt fer vel að lokum. Aukaleikararn- ir baða sig í sviðsljósinu enda hæfi- leikafólk en ekki er hægt að hengja heila sýningu á leikaraskap. n Niðurstaða: Milt og saklaust glens en kynjaverurnar eru týndar í skóginum. Kynlegri kvistir óskast Yfir vötnum þessara smásagna svífur grun- ur um merkingarleysi nútímans. Bækur Svefngríman Örvar smárason Fjöldi síðna: 156 Útgefandi: Angústúra Kristján Jóhann Jónsson Þetta smásagnasafn er ekki aldæla. Samfélagsgagnrýni er hörð og aðferð furðusögunnar er beitt af útsjónarsemi til þess að af hjúpa bjánagang í mannlífinu. „Svefngríman“, fyrsta sagan í safninu, segir á hófstilltan hátt frá Guðbjörgu f lugstjóra, sem fær kaffibolla á meðan hún bíður eftir heimsendi sem staðfest er að sé á leiðinni. Nafnið „Guðbjörg“ er varla tilviljun og starfið ekki heldur. Heimsbjörgun af himnum ofan er ekki líkleg framvinda í veraldar- málunum. Sagan „Sprettur“ segir frá manni sem stríðir við þrálátan útlimamissi, fer í sund, týnir tá og leitar að þessum hluta af sjálfum sér. Það reynist mörgum snúið að finna sjálfan sig, eða hluta af sér ef því er að skipta. Kyndugt mæðginasamband Í „Gæsum himinsins“ kynnumst við Jórunni Birnu sem lokast inni í eigin heimi. Hún hefur haft þungar áhyggjur af einkasyninum og endar með því að verða hans helsta áhyggjuefni. Margt er þar kyndugt í sam- bandi móður og sonar. Hlutverkaskipting þeirra verður vandræðaleg en hjá Jórunni kemur botnfallið úr sjónvarpinu og spjall við gervigreind að lokum í staðinn fyrir þátttöku í mannlífinu. Helsti unaður Jórunnar Birnu er að fara ein í bíltúr og prumpa í bílsætið með kveikt á sætishitaranum. Í sögunni „Holur“ verða þau tíð- indi að stofnað er Endaþarmssafn, gegnt Reðasafninu; hinum megin við götuna. Þar starfar ungur maður sem heitir Fífill. Hann dregst inn í samkeppni þess- ara tveggja safna í hjarta Reykja- v ík ur. Fíf li er gert erfitt fyrir en hann stendur sig. Sagan „Radd- bönd“ fjallar ekki um þau raddbönd sem v ið er u m vön að tala um. A ð a l p e r s ó n a n er að eigin mati me ð ú t hve r f a - blindu, ratar ekki í úthverfum, en í bílnum er leiðsögu- tæki og í því er rödd sem vísar veginn og aðalpersónan tengist henni sterkum böndum. Óborganlegur starfstitill Í sögunni „Óráð“ er fjallað um þá ógnvekjandi stöðu að vera karl- maður og sitja einn heima yfir veiku barni. „Blekhafið“ segir frá konu sem fer í læknisskoðun vegna þungunar sem lengst af í sögunni virðist nokkuð langt fram gengin. Hjá lækninum fær hún þau erfiðu tíðindi að fóstrið sé horfið og eng- inn veit hvað varð af því. Sögunni er síðan snúið frá fæðingum að dauða og hvort tveggja virðist frekar óraunverulegt. Er eða er ekki en skiptir annars litlu. Lokasagan „Nætursveifin“ segir frá manni með aldeilis óborgan- legan starfstitil. Hann er „bakdyra- vörður“! í leikhúsi. Á hverju kvöldi snýr hann hinni vel földu nætur- sveif og alltaf kemur nóttin. Bak- dyravörðurinn okkar veit hins vegar ekki hvers vegna hann á að snúa þessari sveif og finnur það aldrei út. Honum var sagt þegar hann hóf störf að þetta væri mikilvægt og mætti aldrei gleymast. Kafka hefði haft gaman af þessu! Merkingarleysi nútímans Yfir vötnum þessara smásagna svífur grunur um merkingarleysi nútímans. Fólkið er þrælar vanans, meðvitundarlaust eins og vélmenni og getur einna helst myndað sam- band við önnur vélmenni. Nútím- inn er trunta og mannhyggjan á undanhaldi. Ég viðurkenni að við lesturinn varð mér stundum hugsað til Lewis Carroll og Lísu í Undra- landi þar sem orsakasamhenginu er snúið á haus, og stundum til Guðbergs Bergssonar þegar hann var upp á sitt besta. Ekki veit ég af hverju. n Niðurstaða: Sérstætt og mjög áhugavert sagnasafn. Samfélags­ gagnrýnin óvægin og hug renn­ inga tengsl frumleg! Vonandi kemur meira efni frá Örvari Smárasyni sem fyrst. Örvar í Undralandi Fréttablaðið menning 2324. janúar 2023 ÞRiÐJUDAgUR

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.