Fréttablaðið - 24.01.2023, Blaðsíða 32
frettabladid.is
550 5000
RitstjóRn
ritstjorn@frettabladid.is
AuglýsingAdeild
auglysingar@frettabladid.is
PRentun & dReifing
Torg ehf.
2022 - 2025
Kristbjargar
Þórisdóttur
bakþankar |
Ég deili heimili með tveimur
börnum og maka. Mér líður
best þegar okkur tekst að halda
heimilinu snyrtilegu og í röð og
reglu. Oftast er heimili okkar
eins og rennandi árfarvegur
efnisf lóðs og sífelld uppspretta
verkefna. Þvottur sem sífellt þarf
að sinna og stanslaus efniviður
sem flæðir inn á heimilið í ýmsu
formi og bregðast þarf við.
Hvernig lítur jafnan út þar
sem notkunargildið er nægilega
mikið svo réttlætanlegt sé að
taka til sín þetta efni? Allt þetta
dót á heimilum okkar er tekið
úr sameiginlegum auðlindum
jarðarbúa. Sumt endar svo jafn-
vel í líkamanum á okkur sjálfum
eins og örplastið. Allt sem við
kaupum endar einn daginn sem
rusl.
Ætli við endum ekki eins og
við byrjuðum þar sem vörurnar
fara á milli fólks án umbúða?
Það sem hefur breyst er að
einhver græðir mikið á því að
framleiða og selja okkur allar
þessar vörur og umbúðir og telja
okkur trú um að við þurfum
þetta allt. Þar liggi lykillinn að
lífshamingjunni.
Þegar manneskja verður
miðaldra eins og ég fer smám
saman að renna upp fyrir henni
að þetta sé nú ekki svona ein-
falt. Hamingjan kemur innan
frá og er ekki í umbúðum. Ein
af áskorunum framtíðarinnar
snýst um að finna leiðir til að
umgangast þetta efni af meiri
vandvirkni gagnvart okkur,
öðrum jarðarbúum og jörðinni
sjálfri. Deilihagkerfið gæti verið
farsæl leið til að mæta þessari
áskorun þar sem vörurnar fara
á milli eftir þörf hverju sinni,
fáum þær „lánaðar“ um stund en
skilum svo aftur. n
Efnisflóð
v
Til að taka þátt í leiknum þarft þú að
1) Finna PLAY flugvélina á flugi í Fréttablaðinu.
2) Segja okkur á hvaða blaðsíðu þú fannst
PLAY flugvélina og skrá það á
www.frettabladid.is/lifid/playleikur
Finnur þú
á flugi í
Fréttablaðinu?
Fréttablaðið og PLAY ætla að bjóða heppnum lesanda
Fréttablaðsins 100.000 króna gjafabréf
frá PLAY í hverri viku fram að 11. febrúar. Við drögum út
næsta vinningshafa á mánudaginn 30. janúar næstkomandi.
*Því oftar sem þú skráir þig, því líklegra er að þú vinnir.
Fréttablaðið kemur út 5 daga vikunnar, frá þriðjudegi til laugardags.
T Ö G G U R
LÆGSTA
ER Á BÚSTAÐAVEGI
Í REYKJAVÍK
VERÐIÐ