Fréttablaðið - 25.01.2023, Blaðsíða 10
Verkefnastaða flestra
fyrirtækja á bygginga-
markaði er enn nokk-
uð góð þótt hægt hafi á
fasteignamarkaði.
Þetta dregur í raun
fram ákveðna stöðu
sem við höfum haft
áhyggjur af um nokk-
urt skeið.
Sigurður
Hannesson,
framkvæmda-
stjóri Samtaka
iðnaðarins
Kaup, sala og
samruni fyrirtækja.
kontakt@kontakt.is I 414 1200 I www.kontakt.is
FYRIRTÆKJARÁÐGJÖF
• Verðmat
• Ráðgjöf og undirbúningur
fyrir sölumeðferð
• Milliganga um fjármögnun
• Samningagerð
helgisteinar@frettabladid.is
Netrisinn Amazon tilkynnti í
gær að fyrirtækið myndi bjóða
viðsk iptavinum sínum upp á
mánaðarlega áskrift fyrir kaup á
lyfjum. Áskriftin mun kosta fimm
Bandaríkjadali (720 ISK) á mánuði
og er áætlað að hún muni spara
notendum rúmlega 100 dali á ári í
lyfjakostnað.
Verkefnið, sem ber heitir RxPass
og er aðeins aðgengilegt Prime-
meðlimum, mun ná yfir 50 mis-
munandi lyf sem vinna gegn 80
langvinnum sjúkdómum. Við-
skiptavinir munu geta keypt lyf
gegn háum blóðþrýstingi, kvíða,
sykursýki og hármissi.
Gjaldið mun bætast ofan á árlegt
áskriftargjald Prime-meðlima, sem
er 139 Bandaríkjadalir. Þeir sem eru
hins vegar tryggðir af Medicare,
Medicaid eða öðrum ríkistryggð-
um heilbrigðisáætlunum munu
ekki geta skráð sig í RxPass.
Ný þjónusta Amazon er í takti
við þá þróun fyrirtækisins að
koma sér meira inn á heilbrigðis-
markaðinn í Bandaríkjunum, en
Amazon keypti meðal annars net-
lyfjaverslunina PillPack árið 2018.
„Við teljum að margir Banda-
ríkjamenn sem þjást af lang-
vinnum sjúkdómum muni njóta
góðs af þátttöku Amazon á lyfja-
markaðnum og að geta fengið lyfin
sín heim að dyrum og á lágu verði,“
segir John Love, varaforseti Ama-
zon Pharmacy. n
Amazon selur notendum lyfjaáskrift
Amazon hefur fært sig meira inn á heilbrigðismarkaðinn. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Verktakar eru uggandi yfir
hve hægt gengur að ýta
stórum framkvæmdum á
höfuðborgarsvæðinu úr vör.
Flest stærri verkefni á þétt-
ingarreitum séu í höndum
fjárfestingafélaga sem haldi
að sér höndum vegna óvissu
og efnahagsþrenginga.
ggunnars@frettabladid.is
Skjálfti er farinn að gera vart við
sig á verktakamarkaði vegna þess
hve treglega gengur að hefja fram-
kvæmdir á stórum byggingarreitum
á höfuðborgarsvæðinu.
Helsta ástæðan er talin sú að
umsvifamikil fjárfestingafélög, sem
hafa heilu hverfin til umráða, haldi
nú að sér höndum vegna verðhækk-
ana og ólgu í efnahagslífinu.
Sig urður Hannesson, f ram-
kvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins,
segist kannast við þessar áhyggjur
úr röðum sinna félagsmanna.
„Þetta dregur í raun fram ákveðna
stöðu sem við höfum haft áhyggjur
af um nokkurt skeið, hvað varðar
framboð á húsnæði og slagkraft
í framkvæmdum á höfuðborgar-
svæðinu.“
Sigurður segir algengt að full-
trúar sveitarfélaga furði sig á hve
hægt gangi að byggja nýjar íbúðir
en gleymi gjarnan að taka með í
reikninginn að það sé ekki endi-
lega við verktakana sjálfa að sakast
í þeim efnum.
„Það eru aðrir aðilar sem hafa
þetta í hendi sér að mestu leyti. Oft-
ast einhvers konar fjárfestinga- eða
þróunarfélög, með heilu hverfin til
umráða á höfuðborgarsvæðinu,“
segir Sigurður.
Samk væmt verktökum, sem
Fréttablaðið hefur rætt við undan-
farna daga, er verkefnastaða flestra
fyrirtækja í byggingageiranum enn
nokkuð góð þótt hægt hafi á fast-
eignamarkaði.
Mesti slagkrafturinn um þessar
mundir sé hins vegar á svæðum
utan þéttbýlasta hluta landsins. Þá
helst í sveitarfélögum á Suðurlandi
og Reykjanesi.
Þetta segir Sigurður að renni
frekari stoðum undir að ákveðinn
f löskuháls sé að myndast í upp-
byggingu húsnæðis á höfuðborgar-
svæðinu. Þrátt fyrir gríðarlega
eftirspurn og vilja stjórnvalda til að
hraða framkvæmdum.
„Ég er ekkert endilega að segja
að þetta sé slæm þróun. Allt hefur
sína kosti og galla, en þetta er mikil
breyting frá því sem áður var. Hvat-
inn til að hefja framkvæmdir getur
verið allt annar eftir því hvort um
er að ræða byggingarverktaka eða
fjárfestingafélag.
Verktakinn þarf alltaf að halda
uppi sterkri verkefnastöðu. Hvað
sem á dynur. Hann getur ekki leyft
sér að bíða af sér storminn þegar
illa árar eða óvissa skapast. Það er í
raun breytingin sem við höfum séð
undanfarin misseri og hún hefur
þessi áhrif.“
Á móti komi, segir Sigurður, að
stærri fjárfestar eða þróunarfélög
horfi frekar á heildarmyndina. Sem
komi heim og saman við breyttar
áherslur sveitarfélaga í skipulags-
málum. Hér áður fyrr hafi úthlutun
lóða gerst með öðrum hætti. Oft án
tillits til samsetningar heilu borgar-
hlutanna.
„En það er auðvitað ekki gott ef
þessi staða hægir á uppbyggingu
mikilvægra svæða.
Náttúruleg fjölgun íbúa og upp-
söfnuð húsnæðisþörf kalla á hraðari
uppbyggingu en við höfum séð fram
til þessa.
Það þurfa því allir að leggjast á
árarnar og tryggja stóraukið fram-
boð á húsnæði. Fyrirtæki jafnt sem
sveitarfélög,“ segir Sigurður. n
Telja fjárfesta halda aftur af
framkvæmdum í borginni
Mesti slagkrafturinn í uppbyggingu íbúðarhúsnæðis um þessar mundir er á svæðum utan höfuðborgarinnar.
FRÉTTABLAÐIÐ/GvA
Kallað hefur verið eftir hraðari uppbyggingu húsnæðis á höfuðborgarsvæð-
inu til að svara uppsafnaðri eftirspurn. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
10 mArkAðurinn FRÉTTABLAÐIÐ 25. jAnúAR 2023
miðVikuDAGur