Fréttablaðið - 24.02.2023, Blaðsíða 22
Breyta þarf
því hvernig
ákvarðanir
eru teknar
með hag
íslenska
boltans í
fyrirrúmi,
Ársþing KSÍ fer fram á Ísafirði
um helgina en þar verður tek-
ist á um hin ýmsu mál þó ekki
sé búist við neinum hitafundi.
Sjálfkjörið er í stjórn sam-
bandsins og þá er ekki kosið
um formann á þessu þingi.
hordur@frettabladid.is
FÓTBOLTI Ársþing KSÍ er oftar
en ekki áhugaverð samkoma en
stærsta málið á þessu þingi verður
f járhagsáætlun KSÍ og tillaga
stjórnar KSÍ um að lengja kjörtíma-
bil formanns í fjögur ár. Formaður
KSÍ er í dag kjörinn til tveggja ára
og telja sumir að lengja þurfi kjör-
tímabilið svo formaður geti mótað
stefnuna og fylgt henni eftir. Þetta
gefur formanni og stjórn hin ýmsu
tækifæri en ekki er talið líklegt að
þessi tillaga nái fram að ganga.
Vanda Sigurgeirsdóttir er að
klára fyrra árið sitt í stól formanns
og þarf eftir nokkra mánuði að
fara að huga að kosningabaráttu ef
mótframboð telst líklegt. Íslenskur
toppfótbolti á ansi margar tillögur
á þinginu en athygli vekur að stjórn
KSÍ setur athugasemdir við þær
f lestar.
Jón Rúnar geti setið fundi
ÍTF leggur til breytingar á því að
varaformaður ÍTF geti tekið sæti
formanns ÍTF á fundum stjórnar
KSÍ. Þegar Orri Hlöðversson, for-
maður ÍTF, hefur ekki komist á
stjórnarfundi ÍTF þá hefur ekki
mátt kalla inn varamann fyrir hann.
„Með þessari tillögu er verið að
bregðast við því að samþykktum
ÍTF hefur verið breytt á þann veg
að varaformaður ÍTF er kjörinn sér-
staklega og er staðgengill formanns
ef formaður er forfallaður. Þegar
komið hefur fyrir að formaður ÍTF
hefur ekki komist á fundi stjórnar
hefur ekki verið heimild til þess að
inn sé kallaður sérstakur varafull-
trúi fyrir hönd samtakanna. Eðlilegt
er að ákvæðinu sé breytt þannig að
fulltrúi ÍTF hafi ávallt tækifæri til
þess að vera á fundum stjórnar KSÍ
og því er breytingatillagan lögð
fram. Eftir sem áður er ákvæði um
að viðkomandi aðili þurfi að vera
sérstaklega kjörinn á aðalfundi
ÍTF líkt og gildir með formanninn,“
segir í breytingartillögu ÍTF.
Varaformaður ÍTF var kjörinn
á dögunum og er það Jón Rúnar
Halldórsson, fyrrverandi formaður
knattspyrnudeildar FH.
Gott net á alla velli
ÍTF leggur einnig til tillögu um að
allir vellir á landinu verði með góða
KSÍ gerir athugasemdir við flestar tillögur
Jón Rúnar Hall-
dórsson er ekki
þekktur fyrir að
liggja á skoð-
unum sínum
þegar kemur að
málefnum KSÍ.
Hann gæti nú
brátt farið að
sitja stjórnar-
fundi sambans-
inds.
FRÉTTABLAÐIÐ/
EYÞÓR
Mikilvægt að bregðast
við og búa leikvellina
þannig að hægt sé að
spila á þeim seinni
part dags þegar líður á
haustið.
Tillaga ÍTF
Ársþing KSÍ fer fram á Ísafirði um
helgina, ekki er búist við neinum
hita á þinginu en fróðlegt er að sjá
að KSÍ setur athugasemdir við flest-
ar þær tillögur sem Íslenskur topp-
fótbolti leggur fram.
Ég hef fylgst náið með ársþingum
KSÍ síðustu tíu árin eða svo og setið
þau nokkur, þingið er meingallað og
á engan hátt hannað til þess að bæta
íslenskan fótbolta.
Það er nefnilega einu sinni þann-
ig að hvert einasta félag er aðeins
mætt á þingið til þess að reyna að
verja eigin hagsmuni til skamms
tíma, engum dettur í hug að horfa á
stærri myndina og horfa á framtíð-
ina í íslenskum fótbolta þegar kosið
er um mál. Fyrir nokkrum árum
var lögð fram tillaga um varalið í
meistaraf lokki kvenna sem gæti
tekið þátt í deildarkeppnum, félög
sem töldu sig ekki hafa hag af þess-
ari tillögu mættu með læti í pontu
og felldu tillöguna. Atkvæðisrétt í
þessu máli höfðu öll félög landsins,
líka þau sem spila bumbubolta í
neðri deildum karla.
Þingið er nefnilega meingallað,
þar er kosið um mál sem ættu að
vera ákveðin í miklu minni hópi.
Hópi sem væri að hugsa um íslensk-
an fótbolta en ekki eigin hagsmuni.
Á meðan þingið er svona og atkvæð-
in skiptast svona verður erfitt að fá
góðar tillögur í gegn.
Nýtt fyrirkomulag Bestu deildar
var sem dæmi fellt þegar það kom
fyrst upp og þurfti að fara bak við
tjöldin til að leysa þann hnút. Til-
raun sem er gerð til þess að bæta
íslenskan fótbolta en félög sem
höfðu ekki hag af því reyndu að
stoppa málið.
Breyta þarf því hvernig ákvarð-
anir eru teknar með hag íslenska
boltans í fyrirrúmi, félag í 4. deild á
ekki að taka ákvörðun um það sem
gerist í efstu deildum og félög í efstu
deildum eiga ekki að taka ákvörðun
um það sem gerist í neðstu deildum.
Félög sem ekki hafa yngri f lokka
eiga svo ekki að hafa atkvæðisrétt
um það sem þar gerist. Þetta hljóta
flest að sjá sem vilja íslenskum fót-
bolta það besta. n
Gallað ársþing sem hamlar framgangi fótboltans
UTAN VALLAR |
Hörður Snævar
Jónsson
hordur
@frettabladid.is
nettengingu, er þetta gert til þess
að fréttamenn og sjónvarpsútsend-
ingar sem sendar eru í gegnum netið
gangi vel fyrir sig.
„Ársþing KSÍ samþykkir að sett
verði inn ákvæði í reglugerð um
knattspyrnuleikvanga að allir leik-
vellir í tveimur efstu deildum karla
og kvenna séu tengdir ljósleiðara-
tengingum og verði félögum veitt
aðlögun til keppnistímabilsins 2024
til þess að verða við þessum breyt-
ingum,“ segir í tillögunni.
Færsla á dómurum
ÍTF leggur til að KSÍ hætti að útvega
aðstoðardómara á leikjum í 5. deild
karla, sem er neðsta deild, og þess í
stað verði séð til þess að KSÍ sjái um
að útvega aðstoðardómara á leiki í
2. f lokki.
„Með þessum hætti er verið að
færa aðstoðardómara á vegum KSÍ
af leikjum í 5. deild karla yfir á leiki
í 2. aldursflokki og í ljósi þess að í
2. aldursflokki eru krefjandi leikir
oft og tíðum og þar eru framtíðar-
leikmenn í íslenskri knattspyrnu
er eðlilegt við núverandi ástand að
þar skipi KSÍ alla dómara en félög í
5. deild sjái um að manna aðstoðar-
dómara á leikina hjá sér,“ segir í
greinargerðinni.
ÍTF vill meira til sín
ÍTF vill fá meiri rétt til að sjá um
öll sín mál en í fyrsta sinn í fyrra
sá ÍTF um sölu á sjónvarpsrétti og
f leiri réttindum en áður var málið
á borði KSÍ. Félög í ÍTF eru félög í
tveimur efstu deildum karla og
kvenna.
„Með þessari tillögu er einvörð-
ungu verið að hnykkja á því að
réttindin í tveimur efstu deildum
karla og kvenna liggja nú hjá ÍTF
fyrir hönd félaganna. Jafnframt að
hnykkja á því að réttindi í öðrum
deildum liggi hjá þeim félögum sem
í deildinni eru eða hagsmunasam-
tökum þeirra, verði þau stofnuð.
Það er mikilvægt að þetta sé skýrt
í lögum KSÍ þannig að ekki fari á
milli mála að réttindin eru félag-
anna að fara með, ráðstafa og hag-
nýta, hvort sem þau tilheyra efstu
deildum eða ekki,“ segir í tillögunni.
Betri ljós
Með breyttu fyrirkomulagi á efstu
deildum karla og kvenna byrjar
mótið fyrr og endar síðar. Vill ÍTF
að það verði sett sem skylda að leik-
vellir í efstu deild séu flóðlýstir en
aðeins gervigrasvellir eru það í dag.
„Ársþing KSÍ samþykkir að sett
verði inn ákvæði í reglugerð um
knattspyrnuleikvanga að allir leik-
vellir í efstu deild karla og kvenna
verði búnir flóðljósum með að lág-
marki 800 lux (útfærsla í höndum
mannvirkjanefndar) og uppfylli
önnur skilyrði sem UEFA setur
varðandi flóðlýsingu á leikvöllum.
Aðlögun verði gefin til þess að
uppfylla þetta skilyrði til upphafs
keppnistímabilsins 2026,“ segir í
tillögunni og fylgir með greinargerð
sem hljóðar svona.
„Með breytingu á mótafyrir-
komulagi í efstu deildum og leng-
ingu keppnistímabils inn í skamm-
degið er mikilvægt að bregðast við
og búa leikvellina þannig að hægt
sé að spila á þeim seinni part dags
þegar líður á haustið. Við núverandi
ástand er erfitt að finna hentugan
tíma fyrir leiki í seinni hluta tíma-
bilsins hjá þessum liðum og lenda
leikir því oft á þeim tímum þegar
hvorki áhorfendur né starfsmenn
leikjanna hafa möguleika á að mæta
á völlinn,“ segir í greinargerð ÍTF. n
14 ÍÞRÓTTIR FRÉTTABLAÐIÐ 24. FEBRÚAR 2023
FÖSTUDAGUR