Fréttablaðið - 24.02.2023, Qupperneq 30
Þungarokkararnir í DIMMU
hafa gefið út tímamótaplötu
sína, Myrkraverk, í nýjum
og endurhljóðblönduðum
búningi.
arnartomas@frettabladid.is
Síðasta haust fagnaði hljómsveitin
DIMMA því að tíu ár voru liðin frá
því að platan Myrkraverk var gefin
út. Tímamótin voru ærin, enda
markaði platan vatnaskil í sögu
sveitarinnar, og því hefur sveitin
ákveðið að gefa plötuna út aftur
í nýjum, endurhljóðblönduðum
búningi.
Geirdalsbræðurnir Ingó og Silli
sátu sveittir við endurhljóðblöndun
á upprunalegu upptökunum og var
verkefnið ákveðið nostalgíutripp.
„Þegar platan kom út fyrir jólin
2012 þá vorum við að nýta okkur
meðbyrinn sem við fengum með
laginu Þungur kross sem var fyrsta
lagið sem DIMMA gaf út með
íslenskum texta og gerði mikla
lukku,“ segir Ingó. „Við settum
pressu á sjálfa okkur að koma plöt-
unni út fyrir jólin til þess að nýta
þennan meðbyr.“
Myrkraverk fékk frábærar við-
tökur og tók DIMMA í kjölfarið
á f lug. Sveitin var þó aldrei nógu
ánægð með hljóminn á plötunni
sjálfri. Eftir tónleikaferðalag í fyrra
var þess vegna ákveðið að koma
plötunni í sitt fínasta púss með
endurútgáfu.
„Við tókum þá ákvörðun að við
Myrkt mix sem
engan svíkur
Tímamóta
platan Myrkra
verk hefur
aldrei hljómað
jafn skýrt og
kröftuglega.
MYND/AÐSEND
Dimma tók flugið með Myrkraverkum sínum fyrir tíu árum en tímamótin gáfu Geirdalsbræðrunum, Ingó gítarleikara og Silla bassaleikara, upplagt tækifæri til
að magna hljóminn sem er miklum mun skýrari og kröftugri þannig að heittrúuðustu aðdáendur eru sáttir. MYND/AÐSEND
ætluðum ekki að breyta upptök-
unum neitt sem slíkum, því þetta
er jú eins og hljómsveitin hljómaði
fyrir tíu árum síðan. En við höfum
líka lært gríðarlega mikið á þessum
tíu árum sem nýttist svo sannar-
lega því munurinn á hljómnum er
svo allt annar – hann var kraftmeiri,
skýrari og víðari,“ segir Ingó.
Þið eruð ekkert stressaðir yfir að
hafa slípað þennan demant ykkar
um of? Var þetta hráa hljóð ekki
hluti af velgengninni?
„Það er svo oft með plötur að
ef þær ná til fólks þá verður þetta
nánast eins og trúarbrögð þar sem
fólk vill engu breyta. Við fengum að
heyra frá nokkrum heitum aðdá-
endum að þeir ætluðu sér ekki einu
sinni að hlusta á endurhljóðblönd-
un því það mætti ekki krukka neitt
í þessu,“ segir Ingó og hlær.
„Allir þeir sem voru búnir að
mynda sér svona skoðun fyrir fram
hafa talað um að þetta sé núna
miklu, miklu betra. Sum lögin sem
náðu minni hylli en önnur eru líka
að koma sterk inn núna.“ n
Þetta verður nánast
eins og trúarbrögð þar
sem fólk vill engu
breyta.
Ingó Geirdal
Í HELGARBLAÐINU |
FRÉTTIR AF FÓLKI |
Markmiðið að
snerta fólk á
einhvern hátt
Leikarinn og rithöfundurinn
Gunnar Helgason segir það
draumi líkast að sjá bók sína lifna
við en verkið Draumaþjófurinn
verður frumsýnt í Þjóðleikhúsinu
um næstu helgi. Gunnar ræðir
lífið, tilveruna, bókmenntir, börn
og fjölskylduna.
Þekki af eigin raun að eiga
ekki öruggt húsaskjól
Elva Hrönn Hjartardóttir ólst upp á Akureyri hjá for-
eldrum sem unnu mikið til að veita henni og systk-
inum hennar öruggt skjól. Það að ekki hafi verið mikið
til segir hún hafa mótað sig. Elva brennur fyrir verka-
lýðsmálum og býður sig nú fram til formanns VR.
Langar að
gefa til baka
Frumburður Ástu Marý Stefáns-
dóttur, Stefán Svan, lést í fangi
hennar á sveitabæ foreldra hennar
í Hvalfjarðarsveit, aðeins fjögurra
mánaða gamall. Daginn fyrir
jarðarförina sat hún yfir honum í
kapellunni og tók ákvörðun um að
eignast annað barn, ein.
toti@frettabladid.is
Rúmlega hundrað nemendur
stunda nám á vorönn Kvikmynda
skóla Íslands og njóta þar leiðsagn
ar kvikmyndagerðar og listafólks í
fremstu röð.
Þeirra á meðal
eru Hilmar Odds
son, fagstjóri
leikstjórnar
deildar, og Hlín
Jóhannesdóttir,
fagstjóri fram
leiðsludeildar
innar, en þau
eru að frumsýna
bíómyndina
Á ferð með
mömmu. Annars
vegar sem leik
stjóri og hand
ritshöfundur og
framleiðandi hins
vegar.
Þau er síður en
svo einu kennar
arnir við skólann
sem eru frekir til
fjörsins í lista
lífinu um þessar mundir en á vor
önninni er Rúnar Guðbrandsson,
fagstjóri leiklistardeildarinnar, og
Þórey Sigþórsdóttir, fagstjóri leiks
og raddar.
Þau frumsýndu ekki alls fyrir
löngu bæði leikverk sem vel hefur
verið tekið. Rúnar með Marat/Sade
í Borgarleikhúsinu og Þórey Ég lifi
enn í Tjarnarleikhúsinu.
Fyrrverandi nemandinn Arnar
Benjamín Kristjánsson kennir einn
ig við skólann en hann er einn
framleiðenda Villibráðarinnar sem
gerir nú stormandi lukku í kvik
myndahúsum.
Samkvæmt upplýsingum frá
Kvikmyndaskólanum eru út
skriftarnemar þaðan áberandi í
íslenskum kvikmyndaiðnaði og
fylla á venjulegu ári allt að 30%
starfsheita á kreditlistum íslenskra
bíómynda.
Þá sýna kannanir fram á að 96%
nemenda spreyti sig í faginu að
námi loknu og um 40% þeirra sem
útskrifast fá strax störf og fulla
vinnu við kvikmyndagerð. n
Bæði kenna og
gera kvikmyndir
Hilmar
Oddsson
Hlín
Jóhannesdóttir
Venjulega fylla nem-
endur um 30% starfs-
heita á kreditlistum.
22 LÍFIÐ FRÉTTABLAÐIÐ 24. FEBRÚAR 2023
FÖSTUDAGUR