Veiðimaðurinn - 01.09.1954, Side 6

Veiðimaðurinn - 01.09.1954, Side 6
Veiðiflugan. FURÐU litlar breytingar hafa orð- ið á veiðiflugunum í heild, þann langa tíma, sem þær hafa verið notaðar af stangaveiðimönnum. Það hefttr þó ekki vantað að menn spekúleruðu um margt í samhandi við þær og alltaf við og við gert smábreytingar, sem þó hafa gefizt misjafnlega. Elverine laxaflugur heitir ný gerð af flugum. Höfundur þessarar gerðar er hinn kunni veiðimaður og rithöfundur, fiskigöngum undanfarin ár. Þeir sögðu t. d. að veiði i Borgarfjarðaránum mundi verða lítil vegna þess, að mikil flóð komu þar vorið 1949 og hefði þá farizt mikið af seiðum, einkanlega i Norðurá. Ég átti tal um þetta fyrir skömmu við merk- an bónda úr Norðurárdal, og vildi liann ekki ieggja mikið uþþ úr þessari kenn- ingu, sagði að flóð kœmu iNorðurá meira og minna á hverjum vetri og eftir því ættu þá seiði að farast þar árlega í stór- um stíl. Við getum reynt að velta þessu fyrir okkur, en laxinn fer sinu fram, hverju sem við sþáum. Og þrátt fyrir allt þykir mér trúlegt að þegar við förum að gera áætlanirnar i vetur, verði sumarið 1955 glæsilegt veiðiár hjá okkur flestum. Og það er óneitanlega nokkur bót, að allt skuli ganga að óskum þá 9 mánuði árs- ins, sem ekki er hœgt að veiða nema i huganum, þótt eitthvað kunni að bregða út af þessa 3, sem veruleikinn hefur völdin. Ritstj. Waddington, sem mun hafa sett fram ýmsar snjallar hugmyndir um stanga- veiði og skrifað margt um reynslu sína í þeim efnum. Elverine flugur eru talsvert frábrugðn- ar venjulegum iaxaflugum, þær eru með þrígreindum öngli, eða þríöngli, og þótt öngullinn sé klæddur venjulegum laxa- flugufjöðrum, eru þær lagðar á annan hátt, þannig að þær hafa alltaf lárétta hreyfingu í vatninu, ilugan á einnig að sýnast eins í útliti, hvort sem laxinn sér hana frá hlið, ofan eða neðanfrá. Öngulformið gerir það að verkum, að hún festir sig mjög vel. Tegundir munu vera: Th & Ligthing, Logie, Silver Blue, Mar Lodge, Siiver Wilkinson. í stærðunum (iegglengdin) 8/0, 4/0, 2/0, og 4 eftir Redditch's- kvarða. Krókarnir á önglinum munu vera talsvert rninni en legglengdin segir til um. ★ Silungaflugur ýmsar er nú farið að framleiða með lýsandi lit. Þær eru bundnar úr lýsandi þráðum lituðum með fluorsentvökva. Þennan lýsandi vökva má einnig fá á smáglösum, og er hann borinn á spæni og önnur veiðarfæri. Lit- urinn er gulur, rauður og grænn, en mun aðallega notaður við veiði í vötn- um, enn sem komið er. (Úr rabbi K. S. við veiðim. i Mbl.). Aðalfundur Landssambands ísl. stangveiðimanna verður haldinn í Reykjavík sunnudag- inn 24. október n.k. Stjórnin. 4 Veiðimaðurinn

x

Veiðimaðurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.