Veiðimaðurinn - 01.09.1954, Blaðsíða 11
Viðtal við Þór Guðjónsson, veiði málastjóra.
ftsUivtekt í Ameríku.
Getum lært ýmislegt af Amerikumönn-
um, en verðum að gera tilraunir, sem
miðaðar eru við nkkar aðstœður.
VEIÐIMÁLASTJÓRI fór í vor til
Ameríkn og dvaldi þar um skeið. Er-
indið \ar að kynna sér nýungar í fiski-
rækt í ám og vötnum, og þá einkanfega
lax- og silungsrækt. Ferðaðist hann bæði
um Bandaríkin og Kanada, en liafði
lengsta viðdvöl í Michigan- og Washing-
tonfylkjum í Bandaríkjunum, en í þeim
fylkjum báðum er inikil lax- og silungs-
\eiði. Einnig heimsótti veiðimálastjóri
helztu stofnanir, sem hafa með höndunr
fiskirannsóknir og fiskirækt.
Eftir heimkomuna birti dagblaðið \h's-
ir \ iðtal við hann um förina, þar sem
drepið var á það helzta, sem hann telur
að íslendingar geti lært af Ameríkumönn-
um í þessu efni, eða Iiaft hliðsjón af
við rannsóknir og framkvæmdir, sem
henta þeim aðstæðum, sem hér eru fyrir
hendi. F.r það sem hér er sagt að mestu
leyti samhljóða áðurnefndu blaðaviðtali.
Sportveiði þýðingarmikil
atvinnugrein.
Veiðimálastjóri sagði að yfirleitt ríkti
geysilegur áhugi vestan hafs fyrir veiði-
máhnn, enda yfirleitt mikið fyrir þau
gert. Meðal annars hafa fjárveitingar til
fiskiræktar og hvers konar rannsókna í
hennar þágu aukizt stórlega hin síðari
ár. Þetta er líka skiljanlegt þegar þess
er gætt að sportveiði hefur mikla fjár-
hagslega þýðingu fyrir öll þau fylki þar
sem veiðiaðstæður eru góðar. Þannig er
t. d. í Michiganfylki einu um 11 þús-
und veiðivötn. Þar hafa verið veitt á 2.
milljón veiðileyfi á einu ári og sport-
veiðin þar önnur þýðingarmesta atvinnu-
greinin. Og einmitt vegna lrinnar þjóð-
hagslegu þýðingar sem sportveiðin hefur
í slíkum tilfellum hefur Bandaríkjastjórn
með lögurn frá 1950 stórlega aukið fjár-
hagslegan stuðning sinn til hinna ein-
stöku fylkja, í þágu fiskiræktar og rann-
sókna í ám og vötnum.
Það liggur því í hlutarins eðli, sagði
veiðimálastjóri, að margt er af Banda-
ríkjamönnum að læra.
Margháttaðar fiskiræktaraðferðir.
Eitt meðal annars er reynsla Ameríku-
manna af fiskiræktinni sjálfri. Til þess
að ná sem beztum árangri í þeirn efnum
og komast að raunhæfri niðurstöðu hafa
þeir talið ákjósanlegast að reyna ýmsar
fiskiræktaraðferðir samtímis. Áður var
það álit manna, að allt sem þyrfti, væri
að sleppa nægu klaki í ár og vötn. Nú
eru menn aftur á móti komnir á þá
skoðun að nauðsynlegt sé að reyna fleiri
Veidimaðurinn
9