Veiðimaðurinn - 01.09.1954, Side 14
Merkingar í Ulfarsá.
Hugsanlegt að laxinn leiti þaðan vegna
vatnsþurðar.
UM þrjú síðastliðin ár hefur veiði
gönguseiða í Úlfarsá verið einkar liag-
stæð og miklu meira veiðzt af þeim en
árin þar á undan.
Þór Guðjónsson, veiðimálastjóri, hef-
ur tjáð Veiðimanninum að af 582 laxa-
seiðum, sem merkt voru í Ulfarsá 1952,
hafi endurheimzt í fyrra 11 laxar eða
1.9%. í sumar komu svo 8 laxar til við-
bótar í leitirnar af laxamerkingunum frá
því í hitteðfyrra eða 1.4%. Þannig hafa
3.3% endurheimzt á þessu tveggja ára
bili og er það mestur árangur sem fengizt
hefur af merkingum í Úlfarsá að und-
anteknum merkingunum frá 1947. Frá
þeim árgangi endurheimtust 9.5% á
þrem næstu árum á eftir.
í fyrra voru 593 laxaseiði merkt í Úlf-
arsá og af þeim komu 8 í leitirnar í sum-
ar sem leið, eða 1.3%.
En metár í laxamerkingum var í sum-
ar því þá voru merkt 799 laxaseiði í Úlf-
arsá og hefur þvílíkur fjöldi laxaseiða
aldrei verið merktur þai' á einu ári.
Veiðimálastjóri sagði að nú hefðu
þrír þeirra laxa, sem merktir voru í
Úlfarsá í fyrra og hitt eð fyrra, komið
fram í Elliðaánum og Grafarvogi og er
ekki vitað til að slíkt hafi kornið fyrir
áður.
Ekki kvað veiðimálastjóri það óhugs-
andi, að þetta fyrirbæri stæði í sambandi
við þverrandi vatnsmagn í Úlfarsá, því
að nú er mikill hluti þess notaður til
áburðarverksmiðjunnar í Gufunesi, svo
sem kunnugt er. Væri ekki óhugsandi
að laxinn leitaði til nýrra stöðva af þess-
um sökum, en of snemmt kvað Iiann
þó að fullyrða nokkuð um þetta. Hér
\æri aðeins uni ágizkun að ræða, sem
ekki fengizt úr skorið fyrr en síðar.
Veiðin í sumar.
SKÝRSLUR hafa enn ekki borizt
nema frá fáum ám, en vitað er að veiði
var talsvert neðan við meðallag síðustu
6 ára og heildartalan svipuð og í fyrra.
Nokkrar ár hafa þó verið með allra lé-
legasta móti, eins og t. d. Þverá í Borgar-
firði, en aðrar yfir meðallag, svo sem
Elliðaárnar, Laxá í Kjós, Laxá í Leirár-
sveit, Haukadalsá í Dölum o. 11. Neta-
veiði er sögð hafa verið með lakara móti
bæði í Árnessýslu og Borgarfirði.
Samkvæmt því, sem að framan var
sagt, er því ekki hægt að birta hér að
þessu sinni tölur nema frá fáum ám.
Hinar verða að bíða jólablaðsins. F.ins
og undanfarin ár eru tölur frá síðasta ári
teknar upp til samanburðar.
1954 1953
Elliðaárnar .... 1257 918
Laxá í Kjós .... 645 440
Bugða 81 41
Meðalfellsvatn 33 24
Laxá í Leirársveit . . .... 300 221
Norðurá .... 474 470
Miðfjarðará . um 450 528
Laxá í Aðaldal . . . . . . um 700 1032
12
Veioimaðurinn