Veiðimaðurinn - 01.09.1954, Síða 17

Veiðimaðurinn - 01.09.1954, Síða 17
Mesta fiskistigamannvirki á íslandi. \i l,i) hverju árinu seni líður fjðlgar þeirn, sem stunda stangaveiði, og flestir þeirra vilja helzt veiða lax. Silungsveiðin virðist vera stunduð meira sem .,aukas])ort" af öllunr fjöldanum, þótt undantekn- ingar séu að sjálfsögðu til frá þeirri reglu. Af þessari öru fjölgun stangveiðimanna síðustu 10—15 árin hefur leitt, að flestar sprænur á landinu sem einhver lax gengur í, eru komnar í leigu og þó eru margir, sem litla eða enga möguleika hafa til þess að komast í laxveiði á þeirn tírna, sem skemmtilegast er að veiða og veiðilíkurnar mestar. Það virðist því ekki vera um nema tvennt að' ræða fyrir þá, sem langar til að veiða, en ciga þess lítinn eða engan kost. Annað er að snúa sér að silungsveiðinni, þvx enn eru allmörg vötn víðs vegar um landið, sem annað hvort eru óleigð cða lítið notuð vegna þess, að mönnum þykir crfitt að komast þangað og áhuginn fyrir sil- ungnum er ekki nægilega mikill til þess að þeir vilji leggja það á sig. Hin leiðin er, að reyna að ra:kta upp ár, sem enginn lax er í, og gera á þeirn þær endurbætur og breytingar, sem að dómi sérfróðra manna gætu stuðlað að því að lax gengi í þ;er og þrifist þar. linn eru nokkrar ár viðs vegar um landið, sem enginn lax gengur í. I sumum þeiira eru torfærur, sem fiskurinn kemst ekki yfir, og í öðrum eru einhverjar aðrar orsakir að verki, sem cnn liafa ekki verið rannsakaðar til fulls, a. m. k. sums staðar. Þarna er verkefni fyrir áhugasama menn, sem eitthvað vilja á sig leggja og skapa sér möguleika til þess að geta stundað þessa ágætu íþrótt, sem allir heillast af jafnskjótt og þeir fara að fást við hana. Þess eru þegar nokkur dæmi, að tekizt hafi að rækta upp ár sem voru fisklausar, annað hvort vegna þess að búið var að uppræta stofninn eða citthvað þurfti að lagfæra til þess að fiskur gæti gcngið í þær. Það er öllunr ljóst, að flestar slíkar framkvæindir kosta mikið fé, cn þess eru einnig dæmi, að lítill liópur manna, sem geta sjálfir unnið að þessu með hagsýni og dugnaði í frítíma sínum, hafa framkvæmt stórvirki með ótrúlega litlum tilkostnaði franr yfir eigin vinnu. VORIÐ 1952 stofnuðu nokkrir menn með sér félag, sem lilaut nafnið „Stanga- veiðifélagið Fossar'. Stjórn félagsins skipa: Haraldur Jónsson, Rvík, íormað- ur, Guðjón Guðmundsson, Rvík, féhirð- ir og Jens Guðjónsson, Rvík, ritari. Aðr- ir félagsmenn eru: Guðberg Haraldsson, Magnús Jensson, Ólafur Jensson, Kol- beinn Kolbeinsson, Björn Kolbeinsson, allir búsettir í Reykjavík. Ennfremur: Ás- bjiirn Jémsson, Sigurður Guðsteinsson og Haukur Jakobsson, búsettir í Borgarnesi og Sigurjón Einarsson í Hafnarfirði. Þetta félag tók á leigu Laxá ytri við Höskuldsstaði í Austur-Hémavatnssýsln, með 15 ára samningi frá 1. júní 1952. Samkvæmt samningi þessum ber þeirn að gera tvo fossa í ánni fiskgenga. Eins og ýmsir munu vita, sem ferðast hafa um J^essar slóðir, liefur fiskurinn ekki komizt nema um 2 km. leið upp í ána. Þar verður á vegi hans hár foss, sem var 51/2 m. á hæð og ófiskgengur. Einhver dæmi munu þó vera til um Jrað, að fiskur hafi sézt fyrir ofan foss Jrennan, eftir mikil flóð í ánni, en ekki munu nema örfáir íiskar komazt upp undir slík- 1 b VíIÐlMAÐURINN

x

Veiðimaðurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.