Veiðimaðurinn - 01.09.1954, Blaðsíða 19
Þegnr verkinu var lokiÖ
komu leigjendur og
landeigendur og konur
sumra þeirra saman við
ána. Voru fluttar þar
nokkrar rœ ður frá
heggja hádfu og rabb-
að saman.
af sementi fór í steypuna. Sand og möl
þurfti að sækja all-langan veg.
Hér er merkileg nýsköpun á ferð, sem
veiðimálastjóri telur liina ágætustu í alla
staði. Segir hann að þeir félagar hafi
undirbúið mál þetta og framkvæmt af
mikilli hagsýni og dugnaði. Er því leitt
til þess að vita, að menn sem hafa lagt
svo mikið fé og vinnu í slíkar fram-
kvæmdir, skuli ekki hafa fengið að hafa
ána í friði fyrir veiðiþjófum.
Áin er fremur lítil, en líkur til að
töluverður laxastofn geti þrifist í henni
í framtíðinni, ef dæma má eftir því,
sem hefnr gengið af fiski í þennan 2
km. kafla, sem fær hefur \erið hingað
til. En með þessum framkvæmdum opn-
ast nýtt svæði urn 25 km. á lengd. A
neðri hluta þess eru margir fallegir hylj-
ir og strengir, sem ástæða er til að ætla
að verði góðir veiðistaðir þegar fram líða
stundir.
í á þessa fellur önnur á, sem Norðurá
heitir. Er það lagleg smá-á, öl 1 laxgeng,
Veidimaðurinn
með snotrum kvörnum og strengjum.
Síðustu tvö árin hefur aliseiðum verið
sleppt fyrir ofan fossana.
Um 10. sept., þegar þeir félagar voru
fyrir norðan, sáu þeir að lax var kominn
upp neðri stigann og töldu 5 laxa í hyln-
um fyrir neðan þann efri.. Telja þeir
nokkurn veginn öruggt að fiskur sé einn-
ig kominn upp efri stigann og farinn
að kanna hinar nýju slóðir sem hann
getur nú heimsótt hindrunarlaust.
Veiðimaðurinn óskar þeim félögum
Efri stigitw. Varnargarðurinn sést uppi d klettinum.
17