Veiðimaðurinn - 01.09.1954, Page 21

Veiðimaðurinn - 01.09.1954, Page 21
Veíðiferð til (Jr^nlonds. Veiði eins manns á stnnd úr degi. í fyrravetur efndu stangaveiðimenn í Oslo til kvöldskemmtunar, þar sem sýnd var litmynd frá Grænlandi eftir danska tannlækninn Börge Höft. Mynd- in heitir „Grönland fanger“. Börge Höft fór í tveggja mánaða ferða- lag til Vestur-Grænlands haustið 1951, til þess að rannsaka þar möguelika til stangaveiða. Eftir heimkomuna gaf hann út ferðabók sína með hinu kynlega heiti „Aad jeg en Hund?“ í viðtali við blaðamann frá Aften- posten í Oslo, þar sem hann var spurður um veiðimöguleika í Grænlandi, svar- aði hann: „Það er óhætt að fullyrða, að þeir eru ótakmarkaðir, hvað fiskmagnið snertir. í öllum ám og vötnum er ótrúleg mergð af fjallaurriða, sem við köllum, en er bleikja (salmo alpinus). Aðeins í einni á er lax (salnto salar). Bleikjan getur orðið 6—8 pund, og ég gæti trúað að meðalþunginn væri nálægt 4 pund. Það er talsvert erf- itt að veiða í sumum ánum sökum þess, hve mikið stórgrýti er í þeim. En niður við ósana eru ágætir veiðistaðir. Bezta Veiðimaburinn 19

x

Veiðimaðurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.