Veiðimaðurinn - 01.09.1954, Síða 36

Veiðimaðurinn - 01.09.1954, Síða 36
sem iínan var íöst, og stóð hún þá beint niður, eins og vænta rnátti. Pétur hall- aði sér langt út yfir borðstokkinn og konan mín hélt í fætur hans eins fast og hún gat. Hann brá höndunum yfir gagnaugun, lagðist með andlitið niður að vatninu og rýndi í djúpið. Svo kom löng þögn — en síðan sagði liann: „Ég sé fiskinn iiérna beint fyrir neðan, mað- ur!“ Síðan kraflaði hann sig aftur inn í bátinn og sagði okkur að sér sýndist línan vera föst utan um gamla pípu eða eitthvað þess háttar, en fiskurinn lægi með kviðinn upp á botninum þar hjá. Ég spurði liann kvíðafullur, live djúpt hann héldi að væri þarna, en liann virtist óviss, svo ég lientizt út á borðstokkinn og horfði niður líka. Éyrst sá ég ekkert nema dökkgrænt vatnið, en svo gat ég greint eitthvað óljóst og hvítleitt á feikna dýpi, að því er virtist. Ég settist upp aftur og hélt í skyndi stríðsráðstefnu þar sem við samþykktum að okkar eina hugsanlega von væri sú, að reyna að krækja í fiskinn þar sem liann lægi. ífæran mín var lengsta teg- und frá Hardy, útdregin, og mig minn- ir að þær séu 15 þuml. full-útdregnar. í bátnum sást ekkert, sem liægt var að binda með, en til allrar hamingju hafði ég meðferðis skotveiðistígvél með því sem næst nýjum reimurn. Það tók ekki langan tíma að losa þær, og með þeim bundum við ífæruna örugglega við árar- hlumminn. Síðan hófst hin nrikla til- raun. Pétur lét hið ómeðfærilega vopn síga niður með borðstokknum og við biðum — grafkyrr eins og mýs, með önd- ina í hálsinum. Arin hvarf lengra og lengra niður í dýpið uns ekki voru nema svo sem 18 þumlungar upp úr vatninu. Þá var Pétur grafkyrr um stund, sem okkur fannst heil eilífð, en síðan rykkti hann í og fór að brjótast urn til þess að bylta sér inn í bátinn. Konan mín greip utan um hann, en ég reyndi að hagræða bátnurn meðan árin steig hratt upp úr djúpinu. Augnabliki síðar sáum við risavaxinn sporð koma upp á yfir- borðið við hliðina á bátnum og síðan allan fiskinn. Ég mun aldrei gleyma hvílíkt ferlíki þetta virtist við fyrstu sýn, en það sem skipti nú meira máli var, að ífæran stóð sýnilega blátæpt í roðinu við kviðuggann og sérhver til- raun í þá átt, að lyfta fiskinum yfir borð- stokkinn myndi því verða til þess að það rifnaði tir honum. Auk þess hafði girnið slitnað svo fiskurinn var alveg laus. Ég bað konu mína að fara út i liitt borðið, til þess að rétta bátinn, ruddist síðan yfir Pétur og tókst fyrir einstaka heppni að koma hendinni inn undir vinstra tálknlokið, við fyrstu til- raun. Um leið tók Pétur um sporðinn og lyftum við laxinum þannig í einum áfanga upp í bátinn. Þá var sem fiskurinn vaknaði fyrst og gerði sér grein fyrir að eigi væri allt með felldu. Hann stökk upp í loftið, lamdi sporðinum og lét öllum illum lát- um og við Pétur rákumst hvor á annan í hamaganginum við að reyna að ná í eitthvað til að rota hann með. Pétur náði um sporðinn og í sameiningu tókst okkur að koma lionum aftur niður í bát- inn. Á endanum var honum svo greitt banaliöggið og við settumst niður og horfðum hvert á annað. Síðan tókum við 34 Veiðjmadurin.s

x

Veiðimaðurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.