Veiðimaðurinn - 01.11.1970, Blaðsíða 17
Ullarfoss 22 ( 40 — 28)
Bottuholur 8 ( 14 — 35)
Seiðketill 1(0 — 0)
Skáfossar 15 ( 28 — 11)
Kermóafoss 16 ( 11 — 26)
Þrepin 10 ( 17 — 1)
Kerlingarflúðir 5 ( 25 — 3)
Selfoss 4(3 — 0)
Árbæjarstrengir 18 ( 0 — 0)
Breiðholtsstrengir .... 42 (101 — 152)
Hundásteinar 67 ( 86 — 110)
Brúarhylur 19 ( 18 — 74)
Skötufoss 24 ( 17 — 23)
Tíkarbreiða 1(0 — 0)
Borgarstjórahola 42 ( 55 — 101)
Hraunið 51 ( 81 — 127)
Símastrengur 86 ( 43 — 122)
Neðri-Sporðhylur 20 ( 29 — 43)
Efri-Sporðhylur 4(4 — 16)
Baugshylur . 3(5 — 4)
Neðri-Kista 9(7 — j 83)
Efri-Kista 21 ( 22 —
Hólshylur 10 ( 19 — 17)
Hólsstrengur 30 ( 61 — 47)
Grænagróf 25 ( 35 — 41)
Langhylur 8 ( 12 — 22)
Mjóddir 18 ( 46 — 10)
Litli-Foss 7(4 — 0)
Fljótið 16 ( 36 — 13)
Ármót 0(2 — 0)
Höfuðhylur 5 ( 11 — 13)
Ótilgreindir 9 ( 20 — 0)
Alls 1003
Veiðin fyrir neðan brú var nú 55 laxar (34 —
84), en nú var veitt framan af með einni stöng
umfram það, sem var í fyrra. Veiðin nú þýðir því
ekki, að veiðin sé nokkuð að lagast þarna, þvert á
móti er ekki að sjá á henni merki þess, að þarna
verði til frambúðar hægt að hafa eitt veiðisvæði,
sem hægt sé að stunda framan af með einni stöng,
að öllu óbreyttu.
Fossinn gaf mjög athyglisverða veiði, þegar
haft er í huga, að aldrei hefur verið ónæðissam-
ara við hann. Laxafjöldinn, 173 (155 — 99), kann
að vera afrakstur stöðugrar ástundunar, en vera
má einnig, að laxinn hafi átt erfiðara uppgöngu
úr Fossinum nú, framan af, vegna framkvæmd-
anna, og því verið þar hlutfallslega meiri lax en
stundum áður, fyrstu vikurnar. Hins vegar er rétt
að hafa í huga, að vatnið á þessu svæði er nú
hreinna (ómengaðra), en verið hefur um langt
árabil, og kann laxinn því að taka betur, fyrst
eftir að hann kemur í ána.
Veiðin í Efri-Móhyl er nær helmingi minni en
í fyrra, og segir það sína sögu, þótt óvíða sé
samdrátturinn meira áberandi á þeim um 25
veiðistöðum, sem sýndu minni veiði í ár en í
fvrra.
Breiðholtsstrengir brugðust nú illa, og um veru-
legan samdrátt er að ræða á svæðinu frá Hunda-
steinum að Símastreng. Bæði í Borgarstjóraholu
(42 — 55 — 101) og á Hrauni (51 — 81 — 127)
er veiðin mjög þverrandi, síðustu tvö árin, og er
þar nú aðeins um þriðjungur þess, sem var 1968.
Símastrengur (86 — 43 — 122) gaf hins vegar
hlutfallslega mjög góða veiði. Fengu menn strax
trú á honum, eftir að lax kom á efra svæðið, og
voru þær fáar þær stundir, þegar hann var ekki
stundaður, allt fram á síðasta dag.
Flugusvæðið, sem svo er oft nefnt, olli mönn-
um enn vonbrigðum. Á kaflanum frá og með
Neðri-Sporðhyl að og með Hólshyl veiddust nú
aðeins 67 laxar, en voru þó 87 í fyrra, og þótti þá
lítið. Veiðin þar 1968 var 163 laxar. Þá sýndi lax-
leysið sig einnig í Hólsstreng, þar veiddust nú að-
Varanleg fyrírstaða kemur efst i farveg vesturárínnar gömlu.
VEIÐIMAÐURIHN
15