Veiðimaðurinn - 01.11.1970, Blaðsíða 36

Veiðimaðurinn - 01.11.1970, Blaðsíða 36
í ljós hefur komið, að um 91,6 af hundraði göngufisksins er að koma til hrygningar í fyrsta skipti. í þeim hópi hefur aðeins 1.22 af hundraði laxins reynzt smálax. Laxar, sem eru að koma til hrygningar í annað skipti, eða oftar, hafa reynzt 5.1 til 13.3 af hundraði, eða 9.0 af hundraði að meðaltali. í þeim hópi er mest (um 88 af hundraði) af laxi, sem er að koma til hrygningar í annað sinn. í Ijós kom einnig, að 82.62 af hundraði laxins, hafði gengið til sjávar (gönguseiði) tveggja ára gamall. 41.24 af hundraði reyndust vera hængar, eða hlutfallið milli hænga og hrygna 1:1.43. Með merkingum laxins var hægt að gera sér grein fyrir gönguhraða hans í ánni, því að hann var svo skoðaður á ný, er hann kom að teljaran- um við ós Beddingtonvatns, um 40 km. ofar. Margir fiskanna voru nokkra mánuði á leiðinni, en einstakir fóru um alla ána á fimm dögum. Loks var fylgzt með því, hve mikill hluti laxins lifði af hrygningu, og veturinn, í ánni. Niður- göngulaxinn var talinn í ósnum, og reyndist fimmti hver lax hafa drepizt. Lax úr eldisstöðvum Laxræktunaráætlun Maine byggir að mjög miklu leyti á notkun seiða, sem alin eru í stöðv- um. Með því að fylgjast með göngum, er reynt að ákvarða, hve mörgum seiðum þarf að sleppa, hverju sinni. Aðaleldisstöðin er í East Orland, þótt aðrar séu reknar. Aðferðir við fiskirækt hafa stórbatnað, á síðustu tveimur áratugum. A miðjum sjötta áratugnum var megninu af seiðum sleppt í ámar á haustin, áður en vötn lagði. Hér var um að ræða seiði af þeirri stærð, sem svaraði til 182 í hverju pundi (enskt pund = 453 gr.) og allt að 45.9 í pundi. Árangurinn varð ekki góður. Eldisaðstæður bötn- uðu, en um 1960 voru enn um 18.8 til 69 seiði í pundinu. Endurheimtur bötnuðu, en v(iru þó ekki nægilega góðar. Farið var að nota jafnheitt vatn, og það flýtti fyrir því, að hrognin klektust út, og lengdi því eldistímann. Þannig tókst að stækka seiðin, unz 18 til 9.7 reyndust vera í hverju pundi. Endurheimtur bötnuðu, en fiskurinn, sem sneri aftur, var ekki af þeirri stærð, sem æskilegur þykir til stangaveiði. Þá var horfið að því ráði að rækta stofna einstakra áa. Jafnframt var ákveðið að ala upp tveggja ára gömul gönguseiði. Á þennan hátt tókst að draga mjög úr endur- heimtum á smálaxi, og fiskurinn varð eftirsóttari til stangaveiði. Frekari útreikningar leiddu í ljós, að laxinn, sem endurheimtist (af seiðum öldum í stöðvum), reyndist kominn af seiðum, sem voru frá 15.7 til 26 sm löng, er þau gengu til sjávar. Tæpir 4 af af hundraði laxins, sem endurheimtist, var kom- inn af gönguseiðum, sem voru 17.8 sm, eða styttri, er þau gengu í sjó. Uggaklippt seiði, sem sleppt var á árunum 1962 til 1965, endurheimtust illa, eða aðeins 0.03 til 0.44 af hundraði. 83 af hundraði af því, sem þann- ig endurheimtist, var síðgenginn smálax. Þegar tekið var að ala tveggja ára gömul seiði, undan einstökum árstofnum, jukust endurheimturnar, og hlutföllin milli stórlax og smálax gerbreyttust. Nú eru um 80.6 af hundraði laxins tveggja vetra fisk- ur í sjó, og sérstaklega ber að nefna niðurstöður ræktunar í Narraguagus-ánni. Árið 1968 var 47 af hundraði af veiddum fiski í ánni kominn af tveggja vetra gönguseiðum, stöðvaröldum, sem sleppt var í ána 1966. í ár (1969) verður sleppt tveggja ára seiðum, svo stórum, að 3—4 fylla pundið, og eru þau öll af árstofninum. N Fuglar, og aðrir óvinir laxins Ásókn óvina í náttúrunni, það er annarra dýra, er óhjákvæmilegt fyrirbæri. Rannsóknir hafa leitt í ljós, að gedda (Esox Niger) og skarfur (Phalo- crocorax auritus) eru hættulegustu óvinir seið- anna. Geddan er mjög aðgangshörð við gönguseiði, er þau fara um ár og vötn, á leið til sjávar. Allt að sjö slík seiði (15 til 20 sm löng) hafa fundizt í einum geddumaga, og allt að 4 í geddu, sem var sjálf aðeins 35 sm löng. Tuttugu og einn af hundr- aði þeirra gedda ,sem veiddust í Beddingtonvatni, á þeim tíma, er gönguseiðin fóru þar um, voru með seiði í maga. Má telja, að geddunni megi 34 VEIÐIMAÐURINN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Veiðimaðurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.