Veiðimaðurinn - 01.11.1970, Blaðsíða 13
ELLIÐAÁRNAR 1970
Veiðimenn við Elliðaárnar fundu meira fyrir
því í sumar en nokkru sinni áður, að þeir voru að
stunda veiðar inni í miðri borg. Miklar fram-
kvæmdir stóðu yfir við nýju Eliðaárbrúna, fram-
an af sumri, og fyrst framan af veiddu menn
með gröfur og krana sér við hlið.
Aðgangur óviðkomandi varð og greiðari að
neðsta hluta ánna, en verið hefur áður, og marg-
ur fákunnandi en forvitinn vegfarandinn gerði
viðkvæmum veiðimannasálum gramt í geði með
því að ganga fram á yztu brún Fossins, í þeirri
von að sjá laxinn taka.
Til stóð í upphafi, að verkinu yrði lokið við
sjálfan Fossinn, áður en veiðitíminn hæfist, en
verkfallið, sem stóð í vor, leystist ekki í tæka tíð,
og því var ekki um annað að ræða en reyna sam-
býlið við stórvirk tæki. Sambúðin varð árekstra-
laus — í raunverulegum skilningi — en það
duldist engum, að neðsti hluti ánna, einkum Foss-
inn, er búinn að glata þeim svip, sem hann hefur
haft frá ómunatíð, og næsta vor munu bílar bruna
yfir miðja Fosskvörnina.
Elliðaárbrúin nýja hefur verið umdeild af veiði-
mönnum, og vissulega hafa framkvæmdirnar við
hana stórlega raskað öllu umhverfi veiðihússins,
og reyndar árinnar, á þessu svæði. Hins vegar er
það von flestra, að þeirri röskun verði fylgt eftir
með föstu, skipulegu átaki, sem skili þessu gamla
stolti ánna, Fossinum, aftur, svo að sómi verði
að; og hér er reyndar einnig verið að ræða um
allt umhverfi veiðihússins, og svæðið milli brúnna,
og allt niður að ósi. Vonandi kemur árið 1970
ekki aftur, í þessu tilliti.
Hitt mega veiðimenn þó þakka fyrir, að með
VEIÐIMAÐURIN.N
11