Veiðimaðurinn - 01.11.1970, Blaðsíða 42

Veiðimaðurinn - 01.11.1970, Blaðsíða 42
jafnframt á leigu Land-Rover, mestan hluta tím- ans, sem ég dvaldist þama. Nú var orðið áliðið sumars, en þá er venjulega farið að draga úr veiði; en um annan tíma var ekki að ræða. Þar sem ég var byrjandi í laxveiði, þarfnaðist ég tilsagnar í réttum veiðiaðferðum, svo og almennrar þekk- ingar um háttu laxins, og þá staði, sem hann velur sér í ánni. (Lax liggur yfirleitt á sömu stöð- unum, ár eftir ár, en þannig er því ekki alltaf farið um silung). Komið var langt fram í ágúst (tekið að hausta svo norðarlega), og flesta dagana var skýjað eða rigning, og vindasamt, en ennþá var bjart til klukkan hálf tíu. Verulegt slý og gróður var í árvatninu, svo að erfitt var að halda flug- unni „hreinni". Laxinn gengur ekki í allar ámar á sama tíma, og því eru sumar snemmgengar en aðrar síðgengnar; ég kom nokkrum vikum of seint til að veiða í Laxá (bezti tíminn hafði verið seld- ur ári áður). Vollandur (hér er greinilega um prentvillu í riti Loniusar að ræða), leiðsögumaður minn, sagði mér, að einn lax á stöng á dag, til jafnaðar, þætti gott, jafnvel á bezta tíma. Veitt er frá klukkan sjö á morgnana til eitt eftir hádegi, en síðan aftur frá klukkan fjögur til tíu að kvöldi. Allar íslenzkar laxveiðiár em „hvíldar“ í tólf stundir á sólarhring. Skipt er um veiðisvæði, á hálfs dags fresti. Við komuna hitti ég þama sænskan lækni, Dr. Gunnar Kling. Hann reyndist góður félagi, og við vorum saman á veiðisvæði, þá viku, sem hann var þama. Við byrjuðum veiðina síðdegis, og þá landaði ég 6 punda laxi, í mikilli rigningu. Næsta morgun, enn í rigningu, náði ég tveimur til viðbótar, 6 og 7 punda. Næstu tvo hálfu dagana fékk ég ekkert, en síðan 11 punda fisk, sem barðist hetjulega. Ég var einn, en fiskurinn langt úti í stórum hyl, og því nokk- urt verk að landa honum. Þar sem bakkinn var hár, varð ég að nota sporðsnöru (tailer), sem ég hafði þó enga reynslu af, en hún reyndist vel. Vollandur fór burtu í nokkra daga, en þar sem einnig skyldi veitt af báti, þá réð ég mér til hjálpar ungan sveitadreng, sem kunni ekki ensku. Hann reri. Klukkan hálf ellefu að morgni, sá ég lax elta fluguna, en ekkert gerðist. Ég egndi fvrir hann á ný, og þetta reyndist vera stærsti laxinn, sem ég fékk á öllu ferðalaginu. Hann var sterkur, og tók þegar að stökkva; og greinilegt var, að hann réð ferðinni. Ekki gat ég gert mig skiljanlegan við ræðarann, sem urðu þau mistök á að róa þegar í land. Því varð ég að ganga upp háan malarkamb til þess að geta haldið leiknum áfram. Þegar hér var komið sögu, var fiskurinn kominn um hundrað metrum neðar með ánni, og mikið af slýi lá á girninu. Þótt átakið væri þannig verulegt, þá gat ég, slýsins vegna, illa beitt stöng- inni til þess að þreyta fiskinn. Smám saman tókst mér þó að draga úr ferð hans, en það var ekki fyrr en ég hafði lagt að baki um átta hundruð metra, að mér tókst að stöðva hann. Hluti ár- bakkans var um tíu metra hár þarna; aldrei hef ég verið svo langt frá vatnafiski, á meðan ég hef verið að þreyta hann. Loks urðu stökk hans aðeins að skvampi í vfirborðinu, og mér tókst að ná inn miklum hluta undirlínunnar. Ég leit þá á klukk- 40 VEIÐIMAÐ U RI N N
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Veiðimaðurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.