Veiðimaðurinn - 01.06.1980, Blaðsíða 50
Fréttatilkynning
frá Landssambandi
stangarveiðifélaga
29. aðalfundur Landssambands stangar-
veiðifélaga var haldinn 27. og 28. október
1979 í Ölfusborgum við Hveragerði.
Aðild að Landsambandinu eiga 28
stangarveiðifélög um land allt og mættu
um 85 fulltrúar á fundinn.
I skýrslu stjórnar, sem Karl Omar
Jónsson formaður L.S. flutti, skýrði hann
frá störfum nefndar, sem fyrrverandi
landbúnaðarráðherra Steingrímur Her-
mannsson skipaði, til að kanna aðstöðu
íslenzkra stangarveiðimanna til að fá að-
gang að laxveiðiám í landinu og hvort
veiðileiga og afnot erlendra manna hér á
landi eru þess eðlis að innlendir veiðimenn
fái þann aðgang að veiðiám landsins, sem
eðlilegt má telja. Þar kom m.a. fram að í 18
ám nota útlendingar 5442 stangardaga um
hásumarið, íslendingar 8301 stangardag,
aðallega vor og haust, en ef á heildina er
litið er nýting stangardaga eins og fram
kemur í eftirfarandi töflu.
Ennfremur gat formaður um þings-
ályktunartillögu Arna Gunnarssonar
alþingismanns o.fl. um sérstakt gjald á
veiðileyfi útlendinga, sem veiða í íslensk-
um ám. Skýrði hann frá framsöguræðu
Arna og umræðum um tillöguna í þinginu.
I skýrslu formanns kom einnig fram, að
stjórnin hefír undanfarin ár unnið að því að
koma á útboðsreglum um útleigu á veiði-
rétti og væntir Landssamband stangar-
veiðifélaga góðrar samvinnu við Lands-
samband veiðifélaga í þessum efnum.
Gestir fundarins voru veiðimála-
stjóri Þór Guðjónsson og formaður veiði-
málanefndar Arni Jónasson, sem höfðu
framsögu um aðalefni fundarins þ.e.a.s.
endurskoðun lax- og silungsveiðilaganna
og urðu miklar umræður um málið.
A laugardagskvöldið 27. okt. var aðal-
fundargestum og mökum haldið hóf í
Ölfusborgum, en stangarveiðifélögin
í Hveragerði og Selfossi sáu um það og allt
Tala Hundraðs-
leyfa hluti
16%
51%
4.800 14%
3.600 11%
2.700 8%
34.021 100%
Greinargerð um nýtingu heimilaðra veiðileyfa árið 1978
Nýting
1. Selt erlendis .................................... 5.442
2. Selt á almennum markaði innanlands ............... 17.479
3. Veiðileyfi, sem ekki eru á alm. markaði vegna einkaafnota
eiganda eða leigjenda..................................
4. Ekki boðið til sölu vegna friðunaraðgerða eða lítillar
veiðivonar á þeim tíma.................................
5. Framboðin veiðileyfi, sem ekki seljast..................
Samtals:
48
VEIÐIMAÐURINN