Ægir - 01.01.2023, Page 8
8
Útflutningsverðmæti sjávarafurða
nam um 350 milljörðum króna á ný-
liðnu ári. Það jókst um 18% frá árinu
2021 og um 22% í erlendri mynt. Í um-
fjöllun á Radarnum, mælaborði sjávar-
útvegsins, segir að jafnvel þó leiðrétt
sé fyrir verðbólgu erlendis þá séu
þessi verðmæti þau mestu sem ís-
lenskar sjávarafurðir hafi skilað á
einu ári.
Gjöfull desember
Eftirtekjan í sjávarútvegi í desember-
mánuði var veruleg því samkvæmt
bráðabirgðatölum voru þau ríflega 33
milljarðar króna, sem er 37% aukning í
krónum frá desember 2021. Aukningin
var minni í erlendri mynt, eða 34% þar
sem gengi krónunnar var að jafnaði ríf-
lega 3% lægra desember 2022 en í sama
mánuði 2021.
Verðmæti jukust í öllum vinnsluflokk-
um í desemer að frátöldum frystum heil-
um fiski. Útflutningsverðmæti lýsis tvö-
földuðust milli ára og sömuleiðis var
mikil aukning í flokknum „aðrar sjávar-
afurðir.“
Veruleg áhrif af loðnu
og Úkraínustríði
„Það eru ótal þættir sem koma við sögu
sem hafa áhrif á útflutningsverðmæti
sjávarafurða frá einu ári til annars,“
segir í umfjölluninni.
„Í fyrra bar einna hæst til tíðinda stór
loðnukvóti sem skilaði sér í einni verð-
mætustu loðnuvertíð sögunnar. Eins
hafði sú mikla hækkun sem var á verði
sjávarafurða erlendis veruleg áhrif,
enda vó hún upp og gott betur þann
samdrátt sem varð á aflamagni mikil-
vægra botnfisktegunda, sér í lagi þorsks.
Tæknivæðing í fiskvinnslu á síðustu árum hefur hjálpað sjávarútvegsfyrirtækjunum að hámarka verðmæti aflans og
afurðanna.
Metár að baki
í útflutningsverðmæti sjávarafurða
Trollið tekið um borð.
Sjávarútvegur