Ægir - 01.01.2023, Page 10
10
Metárið 2022 í samanburði við síðustu ár. Ólíklegt er í ljósi fregna af stöðu loðnustofnsins að þetta met verði slegið í ár.
Hér má sjá sveiflurnar í verðmæti fiskimjöls og lýsis. Fara þarf aftur um 44 ár til að sjá hærra hlutfall þessara afurða.
Sú mikla hækkun á afurðaverði kom þó
vissulega ekki af hinu góða, enda skýrist
hún að hluta til af innrás Rússa í Úkra-
ínu. Fyrir innrásina hafði fiskverð farið
hækkandi í takti við batnandi aðstæður
á mörkuðum og áhrifin af kórónuveiruf-
araldrinum minnkuðu. Sú mikla óvissa
sem áhrif stríðsins leiddi til, og þær við-
skiptaþvinganir sem Vesturlöndin gripu
gegn Rússlandi, stuðlaði að frekari verð-
hækkunum.“
Verkefnið að hámarka verðmætin
Burtséð frá þessum áhrifum segir í um-
fjöllun Radarsins að íslenskum sjávarút-
vegsfyrirtækjum hafi tekist vel að há-
marka verðmæti úr takmörkuðum afla.
Það sé ekki sjálfgefið.
„Vissulega er útflutningsverðmæti
ekki algildur mælikvarði á stöðu sjávar-
útvegs. Til að mynda hefur sá mikli sam-
dráttur sem orðið hefur á aflaheimildum
í þorski gert fyrirtækjum erfiðara um
vik að útvega nægt hráefni til þess að
halda vinnslum gangandi og tryggja
heilsársstörf. Hækkun á verði var heldur
ekki bundin við verð á sjávarafurðum,
enda var allt að hækka, þar með talið
flestir kostnaðarliðir sjávarútvegsfyrir-
tækja við framleiðslu og útflutning.“
Vægi mjöls og lýsis ekki
meira í 44 ár
Það er væntanlega ein af birtingar-
myndum loðnuvertíðarinnar í þessum
tölum að útflutningur á fiskimjöli og lýsi
jókst stórlega, líkt og sjá má á meðfylgj-
andi mynd. Þannig nam útflutningsverð-
mæti fiskimjöls rúmlega 37 milljörðum
króna á árinu 2022, sem er 132% aukning
á milli ára á föstu gengi. Útflutnings-
verðmæti lýsis var liðlega 30 milljarðar
króna, sem er 145% aukning á milli ára.
Vó fiskimjöl og lýsi þar með hátt í fimmt-
ung af útflutningsverðmætum sjávaraf-
urða á árinu. Þessar afurðir hafa ekki
verið hærra hlutfall frá árinu árinu 1978.