Ægir

Árgangur

Ægir - 01.01.2023, Síða 14

Ægir - 01.01.2023, Síða 14
14 Orkuskiptaverkefnið WHISPER hef- ur hlotið 1,4 milljarða króna styrk til fjögurra ára frá Evrópusambandinu. WHISPER er fjölþjóðlegt samstarfs- verkefni en íslensk fyrirtæki eru þar í meirihluta. Verkís verkfræði- stofa leiðir verkefnið og aðrir ís- lenskir þátttakendur eru fyrirtækin SideWind, Samskip, BBA//FJELDCO og Athygli. Lausnir í orkuskiptum á sjó Verkefninu er ætlað að þróa og prófa nýsköpunarlausnir í orkuskiptum á sjó sem geta dregið verulega úr losun gróðurhúsaloftegunda hjá flutninga- skipaflota heimsins en þær felast í endurbótum á flutninga- og tankskip- um sem eru nú þegar í rekstri. Í fyrsta lagi er um að ræða blandaða sólar- og vindorkutækni þar sem láréttar vind- millur SideWind og sérhannaðar sólar- orkusellur framleiða raforku fyrir innri orkunotkun skipanna. Í öðru lagi verða þróuð rafstýrð segl sem hjálpa til við að knýja skipin áfram. Samhliða verður einnig unnið að geymslulausn- um fyrir rafmagn. Gangi áætlanir eftir er talið að hægt verði að draga úr eldsneytis- notkun tankskipa um tæp 30% og gámaskipa um að minnsta kosti 15%. Um 80-90% vöruflutninga í heiminum eru með flutningaskipum og fara vax- andi. Skipaflutningar losa 2,5% gróð- urhúsalofttegunda á heimsvísu. Því er til mikils að vinna og getur verkefnið haft mikið að segja þegar kemur að orkuskiptum á sjó. Byr í segl SideWind Samstarfsverkefnið byggir að hluta á vindorkulausn SideWind fyrir flutn- ingaskip. Fyrirtækið var stofnað af hjónunum Maríu Kristínu Þrastardótt- ur og Óskari Svavarssyni árið 2019 og hefur vakið mikla athygli hérlendis. „Það er nokkuð hröð þróun að fara á fjórum árum frá hugmynd við eldhús- borðið að evrópsku samstarfsverkefni sem nemur yfir níu milljónum evra, en við erum mjög spennt fyrir þeirri vinnu sem framundan er og hvað hún getur haft að segja fyrir baráttuna gegn loftslagsvánni,“ segir María. Íslenskt einkafyrirtæki leiðir Evrópuverkefni Evrópusambandið gerir miklar kröfur um reynslu og faglega verkefnastjórn- un í verkefnum af þessari stærðar- gráðu. Fá íslensk einkafyrirtæki hafa tekið slíkt að sér en Verkís mun bæði leiða WHISPER verkefnið og sjá um tæknilega verkefnastjórnun, vistferils- greiningar og loftaflfræðilegar her- manir. „Við erum stolt að hafa verið valin til að stýra þessu spennandi ný- sköpunarverkefni. Það fellur vel að áherslum okkar um orkuskipti, sjálf- bærni og nýsköpun og það skiptir líka máli að íslensk fyrirtæki taki þátt í þeirri þróun sem á sér stað erlendis á þessum vettvangi,“ segir Kjartan Due Nielsen, verkefnastjóri nýsköpunar hjá Verkís. Evris eflir íslenska nýsköpun Að verkefninu stendur öflugt og fjöl- breytt teymi 14 fyrirtækja í fimm Evr- ópulöndum og var umsóknarferlinu, sem var bæði flókið og umfangsmikið, stýrt í gengum íslenska fyrirtækið Evris. „Fundum okkar Óskars og Maríu hjá SideWind bar fyrst saman í upp- hafi árs 2019 og mér varð strax ljóst að þau væru með hugmynd sem ætti er- indi á alþjóðlega markaði. Það hefur verið gefandi að fá að leiða þetta spennandi verkefni, í samstarfi við fé- laga mína hjá Inspiralia, í gegnum um- sóknarferli Evrópusambandsins og setja saman hóp sem uppfyllir kröfur um þekkingu og reynslu sem Evrópu- sambandið gerir til verkefna af þessari stærðargráðu,“ segir Anna Margrét Guðjónsdóttir, framkvæmdastjóri Evr- is. Hún hefur verið í samstarfi við al- þjóðlega ráðgjafafyrirtækið Inspiralia Group frá árinu 2016 og hefur sam- starfið skilað miklum fjármunum og þekkingu inn í íslenskt nýsköpunar- umhverfi. Nýsköpunarverkefni í orkuskiptum fær 1,4 milljarða króna í styrk frá ESB markmiðið að draga með nýrri tækni verulega úr eldneytisnotkun flutningaskipa  Fulltrúar fyrirtækjanna sem standa að WHISPER samstarfsverkefninu. Fréttir

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.