Ægir - 01.01.2023, Blaðsíða 14
14
Orkuskiptaverkefnið WHISPER hef-
ur hlotið 1,4 milljarða króna styrk til
fjögurra ára frá Evrópusambandinu.
WHISPER er fjölþjóðlegt samstarfs-
verkefni en íslensk fyrirtæki eru
þar í meirihluta. Verkís verkfræði-
stofa leiðir verkefnið og aðrir ís-
lenskir þátttakendur eru fyrirtækin
SideWind, Samskip, BBA//FJELDCO
og Athygli.
Lausnir í orkuskiptum á sjó
Verkefninu er ætlað að þróa og prófa
nýsköpunarlausnir í orkuskiptum á sjó
sem geta dregið verulega úr losun
gróðurhúsaloftegunda hjá flutninga-
skipaflota heimsins en þær felast í
endurbótum á flutninga- og tankskip-
um sem eru nú þegar í rekstri. Í fyrsta
lagi er um að ræða blandaða sólar- og
vindorkutækni þar sem láréttar vind-
millur SideWind og sérhannaðar sólar-
orkusellur framleiða raforku fyrir
innri orkunotkun skipanna. Í öðru lagi
verða þróuð rafstýrð segl sem hjálpa
til við að knýja skipin áfram. Samhliða
verður einnig unnið að geymslulausn-
um fyrir rafmagn.
Gangi áætlanir eftir er talið að
hægt verði að draga úr eldsneytis-
notkun tankskipa um tæp 30% og
gámaskipa um að minnsta kosti 15%.
Um 80-90% vöruflutninga í heiminum
eru með flutningaskipum og fara vax-
andi. Skipaflutningar losa 2,5% gróð-
urhúsalofttegunda á heimsvísu. Því er
til mikils að vinna og getur verkefnið
haft mikið að segja þegar kemur að
orkuskiptum á sjó.
Byr í segl SideWind
Samstarfsverkefnið byggir að hluta á
vindorkulausn SideWind fyrir flutn-
ingaskip. Fyrirtækið var stofnað af
hjónunum Maríu Kristínu Þrastardótt-
ur og Óskari Svavarssyni árið 2019 og
hefur vakið mikla athygli hérlendis.
„Það er nokkuð hröð þróun að fara á
fjórum árum frá hugmynd við eldhús-
borðið að evrópsku samstarfsverkefni
sem nemur yfir níu milljónum evra, en
við erum mjög spennt fyrir þeirri
vinnu sem framundan er og hvað hún
getur haft að segja fyrir baráttuna
gegn loftslagsvánni,“ segir María.
Íslenskt einkafyrirtæki
leiðir Evrópuverkefni
Evrópusambandið gerir miklar kröfur
um reynslu og faglega verkefnastjórn-
un í verkefnum af þessari stærðar-
gráðu. Fá íslensk einkafyrirtæki hafa
tekið slíkt að sér en Verkís mun bæði
leiða WHISPER verkefnið og sjá um
tæknilega verkefnastjórnun, vistferils-
greiningar og loftaflfræðilegar her-
manir. „Við erum stolt að hafa verið
valin til að stýra þessu spennandi ný-
sköpunarverkefni. Það fellur vel að
áherslum okkar um orkuskipti, sjálf-
bærni og nýsköpun og það skiptir líka
máli að íslensk fyrirtæki taki þátt í
þeirri þróun sem á sér stað erlendis á
þessum vettvangi,“ segir Kjartan Due
Nielsen, verkefnastjóri nýsköpunar hjá
Verkís.
Evris eflir íslenska nýsköpun
Að verkefninu stendur öflugt og fjöl-
breytt teymi 14 fyrirtækja í fimm Evr-
ópulöndum og var umsóknarferlinu,
sem var bæði flókið og umfangsmikið,
stýrt í gengum íslenska fyrirtækið
Evris. „Fundum okkar Óskars og Maríu
hjá SideWind bar fyrst saman í upp-
hafi árs 2019 og mér varð strax ljóst að
þau væru með hugmynd sem ætti er-
indi á alþjóðlega markaði. Það hefur
verið gefandi að fá að leiða þetta
spennandi verkefni, í samstarfi við fé-
laga mína hjá Inspiralia, í gegnum um-
sóknarferli Evrópusambandsins og
setja saman hóp sem uppfyllir kröfur
um þekkingu og reynslu sem Evrópu-
sambandið gerir til verkefna af þessari
stærðargráðu,“ segir Anna Margrét
Guðjónsdóttir, framkvæmdastjóri Evr-
is. Hún hefur verið í samstarfi við al-
þjóðlega ráðgjafafyrirtækið Inspiralia
Group frá árinu 2016 og hefur sam-
starfið skilað miklum fjármunum og
þekkingu inn í íslenskt nýsköpunar-
umhverfi.
Nýsköpunarverkefni í orkuskiptum
fær 1,4 milljarða króna í styrk frá ESB
markmiðið að draga með nýrri tækni verulega úr
eldneytisnotkun flutningaskipa
Fulltrúar fyrirtækjanna sem standa að WHISPER samstarfsverkefninu.
Fréttir