Ægir - 01.01.2023, Síða 16
Sjávarútvegurinn
breyttist með tilkomu
kvótans
„Tilkoma kvótakerfisins er vafalítið
stærsta breytingin í íslenskum sjáv-
arútvegi á þessum tíma sem ég hef
fylgst með í greininni og í því sam-
bandi verður að rifja upp hvernig
staðan var í aðdraganda þess að
kvótakerfinu var komið á. Árið 1976
fóru erlendu skipin úr lögsögunni
og muni ég rétt var þá verið að
veiða um 500 þúsund tonn af þorski
í lögsögunni. Við héldum að með því
að koma Bretunum, Þjóðverjunum
og öðrum út þá gætum við veitt
frjálst og nokkuð stjórnlaust.
En reksturinn var bágur hjá fyrir-
tækjum í greininni á þessum tíma og
þá átti svarið að vera að byggja skut-
togara og að þeir ættu helst að vera til
í hverju plássi. Flestir urðu skuttogar-
arnir 102, muni ég rétt, og álagið orðið
alltof mikið á fiskimiðin. Það er við
þessar aðstæður sem kvótakerfið kom
til sögunnar árið 1984 og þegar litið er
til baka þá fór það að breyta smám
saman hugsuninni í sjávarútvegi úr
magnveiði yfir í að gera eins mikið afl-
anum og mögulegt er með tæknivæð-
ingu í fiskvinnslunni. Þetta hefur leitt
til þess að engin þjóð nær eins miklu
út úr hverju kílói af veiddum fiski og
Íslendingar gera í dag,“ segir Hjörtur
Gíslason, sem lét af ritstjórn sjávarút-
vegsfréttavefsins Auðlindarinnar nú
um áramótin. Hjörtur starfaði við
sjávarútvegsfréttamennsku í yfir 40
ár, lengst á Morgunblaðinu en skrifaði
auk þess bækur um sjávarútveg og
var síðustu árin ritstjóri Auðlindar-
innar, samhliða því að skrifa greinar í
tímaritið Ægi og Sóknarfæri í sjávarút-
vegi.
Ljósmyndari hjá Halldóri Blöndal
Hjörtur er fæddur og uppalinn á Akur-
eyri og þar segist hann fyrst hafa
fengið nasaþefinn af fjölmiðlun 13 ára
gamall þegar hann fékk birta mynd af
Andapollinum á Akureyri í blaðinu Ís-
lendingi. Ritstjóri Íslendings var Hall-
dór Blöndal, fyrrum þingmaður og
ráðherra, og Halldór tók í framhaldinu
Hjört með sér sem ljósmyndara í viðtal
í Netagerðina á Akureyri. Myndavélin
var Kodak með 12 mynda filmu!
Hjörtur byrjaði í fastri vinnu sem
blaðamaður á Mogganum vorið 1980
eftir að hafa verið í lausamennsku við
íþróttaskrif veturna þar á undan sam-
hliða námi í Háskóla Íslands. „Ég fikr-
aði mig smám saman yfir í sjávarút-
veginn á Mogganum og árið 1982 varð
hann á minni könnu. Enda eini blaða-
maðurinn á ritstjórninni á þeim tíma
16
Hjörtur Gíslason með höfnina í Grindavík
að baki sér. Hann gerði skrif um sjávarút-
veg að lífsstarfi sínu og segir hafa verið
áhugavert að fylgjast með þeim gríðarlegu
breytingum sem orðið hafa í þessari
atvinnugrein á síðustu áratugum.