Ægir

Volume

Ægir - 01.01.2023, Page 18

Ægir - 01.01.2023, Page 18
18 Hjaltasyni. Að lokum nefnir hann þýð- ingu á bókinni Sjávarútvegur – fjöl- breyttar áskoranir, sem hann þýddi úr færeysku. „Ég skrifaði líka mikið fyrir sjávar- útvegsráðuneytið, meðal annars námsefni í sjávarútvegsfræðum, vann fyrir EFTA og FAO og vann hjá FAO í Róm eitt sumar,“ bætir hann við. Áfall að fá uppsögn á Mogganum Morgunblaðið hóf á sínum tíma útgáfu á sérblaði um viðskipti sem naut mik- illa vinsælda og segist Hjörtur hafa sótt fast við ritstjórana að sambæri- legu sérblaði um sjávarútveg yrði ýtt úr vör. „Mér var að ósk minni þegar við Ágúst Ingi Jónsson og Árni Jörgensen bjuggum til sérblaðið Úr verinu. Það kom fyrst úr haustið 1990, mjög vönd- uð útgáfa sem sinnti öllum helstu þátt- um sjávarútvegsins og þjónustugrein- um við hann. Þá voru erlendum frétt- um gerð góð skil. Úr verinu var sam- einað viðskiptablaðinu um tíma, en kom út á ný sem sérblað í mars 2005. Nokkru síðar tóku útrásarvíkingarnir völdin í atvinnulífinu og sjávarútveg- urinn hvarf í skuggann. Það gerði Úr verinu líka og sjávarútvegurinn fékk að meðaltali eina síðu í blaðinu dag- lega,“ rifjar Hörtur upp. Árið 2008 urðu ritstjóraskipti á Morgunblaðinu þegar Ólafur Stephen- sen, frændi Hjartar, tók við af Styrmi. „Eitt af hans fyrstu verkum var að reka mig þegar ég kom úr fríi í maílok. Hann taldi enga þörf fyrir mann með sérhæfingu í sjávarútvegi enda skipti hann engu máli í samfélaginu. Annað átti reyndar eftir að koma í ljós. Seta Ólafs á ritstjórastóli var stutt og nú á sjávarútvegurinn Moggann. Uppsögnin var mér gífurlegt áfall og kom mér gjörsamlega í opna skjöldu. Ég var hálf lamaður fyrst á eftir en fór fljótlega í ýmis konar íhlaupavinnu og setti meðal annars upp hvalasíðu fyrir LÍÚ og fór á hrefnuveiðar. Svo bauðst mér að rita sögu Fiskifélags Íslands ásamt Jóni Hjaltasyni. Það var kærkomið verkefni og kom sagan út árið 2011 með nafn- inu Undir straumhvörfum. Áður hafði ég unnið mikið með Gunnari Flóvenz að útgáfu Síldarsögu Íslands, sem kom út 2007. Traustið mikilvægt Hjörtur segir að margs sé að minnast þegar hann líti yfir farinn veg í skrif- um um sjávarútveg í fjóra áratugi. „Mér er ofarlega í huga það traust sem ritstjórarnir á Mogganum, Matthí- as og Styrmir, höfðu á mér og gerðu mér kleift að komast inn í sjávarút- veginn og studdu mig í vandasömum málum. Það kom nokkrum sinnum fyr- ir að embættismenn í stjórnkerfinu voru ekki sáttir við fréttir sem ég skrifaði og klöguðu í Styrmi. Klögurn- ar voru ekki vegna þess að skrifin væru ekki rétt. Það hentað embættis- mönnunum einfaldlega ekki að sann- leikurinn væri sagður. Alltaf stóð Styrmir með mér í þessu og þegar hon- um fannst ég vera eitthvað að slaka á, hnippti hann hressilega í mig eins og ég átti skilið. Mér tókst einnig að ávinna mér traust framámanna í sjávarútveginum, forystumanna hagsmunasamtaka og stjórnenda stóru fyrirtækjanna. Þar þurfti maður að sanna sig og sýna fram á þekkingu á viðfangsefninu. Eft- ir því sem þekking jókst varð traustið meira. Einn þessara manna var Krist- ján Ragnarsson, formaður og fram- kvæmdastjóri LÍÚ. Hann reyndist mér mjög vel og mér enn minnisstætt þeg- ar ég náði í hann eftir langan vinnu- dag og hann var mjög upptekinn. Hann sagði nokkur orð og sagði svo: „Skrifaðu þetta bara Hjörtur minn. Þú veist hvað ég vil segja.“ Fartölvan alltaf við hendina Þegar ritun sögu Fiskifélagsins lauk hóf Hjörtur störf fyrir Ólaf M. Jóhann- esson í Ritsýn og skrifaði greinar í blaðið Lyfjatíðindi. Um vorið 2013 stofnaði Ólafur vefmiðilinn kvotinn.is og var Hjörtur ritstjóri hans frá upp- hafi. „Það gekk nokkuð vel en eftir nokk- ur ár færðist útgáfan til almanna- tengsla- og útgáfufyrirtækisins At- hygli og fékk vefsíðan síðar nafnið Auðlindin. Athygli var síðan skipt upp og Ritform tók við útgáfunni árið 2018 en í öllum tilfellum fylgdi ég með. Það eru því að nálgast 10 ár sem ég hef stýrt þessari útgáfu og með færsl- unni yfir til Athygli og síðar Ritforms skrifaði ég mikið í tímaritið Ægi og sjávarútvegsblaðið Sóknarfæri. Auð- lindin hefur verið öflug fréttaveita fyrir sjávarútveg alla tíð og skrifin fyrir tímaritin hafa veitt mér mikla ánægju. Vefsíðan hefur verið mjög bindandi enda aldrei fallið úr virkur dagur í öll þessi ár. Til að geta farið í frí hefur tölvan verið fastur farangur og síðunni sinnt utan úr heimi gegnum netið, oftast frá Spáni en einnig frá Balí. Ég er þakklátur henni Helgu minni fyrir þolinmæðina, sem hún hef- ur sýnt mér í öll þessi árin. Það eru ekki allir sem þurfa að skrifa og safna saman fréttum alla frídaga í sól og sælu. Ég hef stundum sagt að ég sé með ferðaskrifstofu en nú er kominn tími til að láta staðar numið enda kom- inn á áttræðisaldurinn,“ segir Hjörtur.  Hjörtur og Helga á góðum degi í ferðalagi á Balí.

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.