Ægir - 01.01.2023, Side 21
21
Ægisviðtalið
ar þau voru fulllestuð. Enda voru menn
yfirleitt hundblautir í vinnunni á dekk-
inu. Það komst samt upp í vana að vera
á þessum bátum sem gekk yfir en sann-
arlega var þetta ekki spennandi þegar
siglt var í vondum veðrum eins og
gjarnan var ef við fórum til löndunar í
Færeyjum. Sá leggur gat verið mjög leið-
inlegur og mikill sjór. En ég var aldrei
smeykur. Maður venst því eins og öðru,“
segir Bjarki.
Allir með sitt hlutverk
á nótaveiðunum
Á sínum ferli hefur Bjarki lengstum ver-
ið á Sigurði VE-15, bæði þeim gamla og
núverandi Sigurði VE-15 sem kom nýr til
Vestmannaeyja árið 2014. Eldra skipið
var byggt í Þýskalandi sem síðutogari og
kom til landsins árið 1960, einn af fjórum
síðutogurum yfir 1000 tonnum sem
byggðir voru þar ytra fyrir íslenskar út-
gerðir. Skipið var smíðað fyrir Ísfell, út-
gerð Einars ríka á Flateyri og bar í
fyrstu einkennisstafina ÍS-33 en var í
reynd alltaf gert út frá Reykjavík og fékk
fljótlega einkennisstafina RE-4. Hrað-
frystistöð Vestmannaeyja eignaðist skip-
ið árið 1984 og Ísfélagið varð eigandi
þess árið 1992 þegar fyrirtækin tvö sam-
einuðust undir nafni þess síðarnefnda.
Bjarki var stýrimaður á gamla Sigurði í
fjöldamörg ár og var þar í brúnni með
hinum nafntogaða aflaskipstjóra Krist-
birni Árnasyni, sem flestir þekkja undir
nafninu Bóbó. Áður hafði Bjarki verið á
nótaveiðum á Ísleifi VE í 14 vertíðir og
þar með öðrum þekktum aflaskipstjóra,
Gunnari Jónssyni.
„Þegar verið er á nótaveiðum þá er
kerfið þannig að skipstjórinn sér alltaf
um að kasta nótinni en stýrimaður og
skipstjóri skiptast á vöktum í brúnni á
flottrollsveiðunum. Þetta er eitt af því
sem gerir nótaveiðarnar frábrugðnar,
þær eru sérhæfðar og það þarf allar
hendur um borð þegar verið er á nót.
Allir hafa sitt hlutverk um borð og nóta-
veiðarnar eru mikið samvinnuverkefni
áhafnarinnar. Það má ekkert klikka þeg-
ar búið er að sleppa nótinni. Og svo er
fyrirkomulagið líka þannig að þegar nót-
in er dregin þá sér stýrimaðurinn um að
stjórna blökkinni úti á dekki. Og alltaf er
Skemmtileg-
ast á nóta-
veiðunum
Bjarki Kristjánsson, stýrimaður á Sigurði VE-15, í Vestmannaeyjum
hefur helgað sig uppsjávarveiðunum frá því hann kynntist þeim
fyrst fyrir 40 árum