Ægir - 01.01.2023, Síða 22
22
svo spennan hjá öllum hvernig til hafi
tekist í kastinu,“ útskýrir Bjarki. „Nóta-
veiðarnar eru að þessu leytinu til tals-
verð kúnst og margir þættir sem spila
saman. Það er kúnst að ná utan um torf-
una, snurpa og ná þessu á síðuna svo
vel takist til. Sumum er þetta betur lagið
en öðrum, eins og gengur. Eitt sem inn í
þetta spilar er líka að þegar er verið á
nótaveiðum er gjarnan þröngt á miðun-
um og þarf því að gæta að öðrum nálæg-
um skipum. Í þrengslum getur verið
erfitt að athafna sig á stórum og þung-
um skipum eins og við erum með í dag,
sér í lagi í vondu veðri. Í þeim aðstæðum
geta nótaveiðarnar verið dálítið stress-
andi. En það eru allir meðvitaðir um
þetta á miðunum, hugsa eins og hjálpast
að ef einhver lendir í vandræðum, fær í
skrúfuna eða eitthvað slíkt. Þó menn séu
í samkeppni á skipunum þá er líka mikil
samvinna.“
Nálægt því að missa nótina
Bara aflamagnið sem núverandi Sigurð-
ur VE ber miðað við þann gamla segir
mikla sögu um breytinguna milli skipa.
Fullfermi á þeim gamla var um 1.500
tonn en nýrra skipið tekur hátt í 2.700
tonn. Byggingarlag skipanna er gjörólíkt
og sá nýrri með mikið fríborð. Þrátt fyrir
fullfermi segir Bjarki að vart sjáist að
skipið sígi mikið í sjó. Hann segir bæði
skipin góð sjóskip, þó ólíku séu.
„Það er eiginlega ekki hægt að líkja
þessum skipum saman. Vinnuaðstaðan
er allt önnur og menn ekki blautir á
dekkinu eins og í gamla daga. En á móti
kemur að þegar skip eru orðin svona
stór og þung þá er hætta á nótaveiðun-
Nýi Sigurður VE kom árið 2014. Bjarki segir það hafa verið mikla byltingu að færa sig af gamla Sigurði yfir á þann nýja.
Gamli Sigurður VE var glæsilegt og mikið aflaskip. Þar var Bjarki stýrimaður
um árabil.
Loðnan streymir í lestarnar.