Ægir

Årgang

Ægir - 01.01.2023, Side 28

Ægir - 01.01.2023, Side 28
Ísfell var stofnað í febrúar 1992 af Pétri Björnssyni, Hólmsteini Björns- syni, Páli Gestssyni og Jóni Leóssyni. Upphafleg starfsemi fyrirtækisins fólst í innflutningi á veiðarfærum og efnum til veiðarfæragerðar. Með innri vexti, uppkaupum og sameiningu á fyrirtækjum sem falla vel að starfsemi fyrirtækisins er Ísfell í dag leiðandi þjónustufyrirtæki í sjávarútvegi. Undanfarin ár hefur Ísfell verið valið af Creditinfo sem framúrskarandi fyrirtæki í rekstri. Aðeins 2% fyrir- tækja á Íslandi komast á þennan lista á hverju ári. Átta starfsstöðvar Ísfell rekur þjónustustöðvar um land allt; Akureyri, Hafnarfirði, Húsavík, Ólafs- firði, Patreksfirði, Sauðárkróki, Vest- mannaeyjum og Þorlákshöfn. Þjónusta fyrirtækisins markast af góðu úrvali af gæðavörum, áreiðanleika gagnvart við- skiptavinum og framúrskarandi hópi starfsfólks með víðtæka þekkingu. Ísfell leggur mikla áherslu á vöru- þróun og hefur fyrirtækið verið leiðandi í hönnun, þróun, framleiðslu og sölu á veiðarfærum, ásamt sölu á útgerðar-, fiskeldis-, björgunar-, bindivörum, hífi- lausnum og ýmsum rekstrarvörum. Í vöruþróunarferli fyrirtækisins er m.a. notast við tölvuhermun og prófanir í straumtanki til að ná fram þeim eigin- leikum veiðarfæranna sem til er ætlast. Í þessu ferli er öflugt samstarf við not- endur veiðarfæranna gríðarlega mikil- vægur þáttur í nýsköpun og stuðlar að stöðugum umbótum innan fyrirtækisins. Vel heppnuð tankferð Farið var að í tankferð Ísfells SINTEF í Hirtshals í Danmörku dagana 15.-18. nóvember síðastliðinn. Metfjöldi þátttak- enda var þetta árið og mikil ánægja ríkti með ferðina. Framkvæmdar voru tank- tilraunir á nýjum veiðarfærum og sýnd- ar uppfærslur á eldri gerðum. Tanktil- raunirnar gefa sýn á það hvernig veið- arfærin virka í sjónum við raunveruleg- ar aðstæður og hvernig þau bregðast við ákveðnum breytingum. Með þessu fyrir- komulagi fá þátttakendur einstaka sýn á ólíkar útfærslur veiðarfæra. Veiðarfærin eru sérsniðin að þörfum hvers og eins, fyrir ólíkar aðstæður og fisktegundir. Lögð er rík áhersla á að mótstaða veiðar færanna sé sem minnst þannig að þau séu létt í drætti og veiðihæfni sé góð. Á síðustu árum hafa verið að koma ný og betri efni fyrir veiðarfæri sem hafa skilað sér í enn betri árangri og endingu sem lágmarkar viðhaldskostn- að. Þar má nefna hefðbundið PE net, Compact PE net, Dyneema net og tóg ásamt straum-línulöguðum trollkúlum (Hydro-Dynamic) Þjónustustöðvar sem takast á við flest Þjónustustöðvar Ísfells eru vel útbúnar til að takast á við flest verkefni sem snúa að viðhaldi og framleiðslu veiðar- færa ásamt því bjóða mikið úrval af út- gerðarvörum. Öflug víraþjónusta er ein af lykilþáttum starfseminar. Vírastrekk- ing á togvírum sem spólað er af strekk- ispili á vindur skipsins undir jöfnu átaki. Strekking og röðun togvírs undir réttu átaki getur aukið endingartíma vírsins. Strekking á togvír hefur einnig sýnt fram á umtalsverðan tímasparnað þar sem vírinn er strekktur um borð við bestu mögulegar aðstæður. Ísfell hefur í áraraðir boðið fyrsta flokks togvíra frá Bridon-Bekaert. Vöruúrval Ísfells er mjög fjölbreytt þegar kemur að veiðarfærum og hægt er að nálgast þær á heimasíðu fyrirtækis- ins, isfell.is og kynningar á vörum eru ávallt að birtast á samfélagsmiðlum fyr- irtækisins. Ísfell um allt land  Prófanir í á veiðarfærum eru mikilvægur hluti þróunarferlis þeirra.  Víraþjónusta er meðal mikilsverð- ustu þátta í starfsemi fyrirtækisins. Ísfell býður meðal annars upp á strekkingu víra og það sparar útgerðum mikinn tíma. 28  Tankferð Ísfells var farin til Hirtshals í Danmörku í nóvember síðastliðnum og var metþátttaka í henni. Veiðarfæri & veiðitækni

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.