Ægir

Volume

Ægir - 01.01.2023, Page 33

Ægir - 01.01.2023, Page 33
Svokallaðar rafrænar ferilbækur eru að ryðja sér rúms í öllu iðnnámi og það á einnig við um nám í veiðarfæra- tækni hjá Fisktækniskóla Íslands. Ás- dís Vilborg Pálsdóttir, verkefnisstjóri hjá Fisktækniskólanum, segir þessa tækninýjung auðvelda vinnu bæði nemenda og kennara og sér í lagi sé þetta tæki nemendum hjálplegt sem stunda nám í skólanum samhliða fullri vinnu. Það á við um flesta nemendur í Fisktækniskólanum og eru þeir í störf- um bæði á sjó og landi. Nýtt og gagnlegt hjálpartæki „Rafræn ferilbók er í reynd eins og handbók þar sem nemendur hafa skil- greiningar á einum stað um starfsferla, starfalýsingar, hæfnikröfur og annað sem að námi þeirra snýr. Síðan hefur nemendinn samvinnu við sinn tilsjónar- mann í náminu og getur fyllt úr í feril- bókina, sett inn í hana myndir af verk- efnum sem hann leysir, bæði kyrrmyndir og lifandi myndir og þannig búið til safn um hvern verkþátt. Þannig getur tilsjón- armaðurinn farið yfir rafrænu verkbók- ina og farið með nemandanum yfir hvernig hann vinnur verkefnin og hvernig hann leysir þau með hliðsjón af kröfum og verklýsingum, hvað kunnáttu þarf að bæta og svo framvegis. Þessi tækni er því mjög gagnleg nemendum sem eru fylgnir sér í verknáminu og vilja ljúka því hratt og vel. Ekki síst finnst mér þetta stórt skref fyrir sjómenn og margir þeirra eru í námi í veiðarfæra- tækni og aðrir sem hafa mikinn hug á að auka þekkingu sína á því sviði. Öll hjálp- artæki af þessu tagi eru því fagnaðar- efni og styrkja þjónustu okkar sem vinnum að því alla daga að styrkja og auka námsframboð í sjávarútvegi. Mark- mið okkar er alltaf að geta mætt fólki í greininni sem hefur hug á að fara í nám á heimavelli og að það geti stundað sína vinnu samhliða námi, jafnt sjómenn sem landverkafólk. Rafræn ferilbók er nýtt hjálpartæki sem ég vona innilega að bæði tilsjónarmenn nemenda í iðnnámi og fyrirtæki sem hafa iðnnema í vinnu nýti sér til fullnustu,“ segir Ásdís. Sextán nemendur í veiðarfæratækni Nokkrir nemendur á framhaldsskólaaldri eru nú í veiðarfæratækninámi og í verk- námi hjá netagerðunum og blasir því við að langþráð nýliðun er að einhverju marki að verða að veruleika á komandi árum. „Við sjáum að vöxtur fiskeldis hefur ýtt undir áhuga á veiðarfæratækninámi því þörf er á fólki með þekkingu á netum hjá fiskeldisfyrirtækjunum en almennt eru mörg tækifæri í sjávarútvegi fyrir fólk sem lokið hefur veiðarfæratækni,“ segir Ásdís. Sextán nemendur eru nú í námi í veiðarfæratækni í Fisktækniskóla Íslands og hefur aðsókn í þetta nám sem aðrar brautir skólans slegið öll met að undan- förnu. „Sem dæmi erum við með 45 nem- endur í þremur hópum í fullu námi í fisk- eldi, það er ásókn Marel-námið, gæða- stjórnina og annað sem við bjóðum. Það er því óhætt að segja að nú þegar skól- inn fagnar 10 ára afmæli blómstri hann sem aldrei fyrr hvað aðsókn varðar,“ segir Ásdís.  Sextán nemendur stunda nú nám í veiðar- færatækni við Fisktækniskóla Íslands. Rafrænar ferilbækur auðvelda sókn í veiðarfæratækninám Veiðarfæri & veiðitækni 33

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.