Ægir - 01.01.2023, Blaðsíða 35
35
Iðnaðarsýningin 2023 verður í
Laugardalshöll um mánaðamótin
ágúst-september. Það er fyrir fyrir-
tækið Ritsýn sf. sem stendur að sýn-
ingunni en fyrirtækið hélt þrjár
sýningar í Laugardalshöll á haust-
dögum 2022, þ.e. sjávarútvegssýn-
ingu, landbúnaðarsýningu og fag-
sýninguna Stóreldhúsið. Allar voru
sýningarnar fjölsóttar og sumar
þeirra slógu aðsóknarmet. Iðnaðar-
sýningin 2023 hefst fimmtudaginn
31. ágúst og stendur í þrjá daga, til
laugardagskvölds.
Víðtæk og áhugaverð sýning
Í frétt frá Ritsýn segir að nú þegar hafi
fjöldi fyrirtækja og stofnana pantað bása
enda skapist með sýningunni einstakt
tækifæri að ná til stórs hóps fagfólks og
einnig hins almenna neytanda.
„Lögð verður áhersla á að hafa sýn-
inguna víðtæka og áhugaverða jafnt á
sviði bygginga- og mannvirkjagerðar,
orkutækni, hönnunar, hugverka og vist-
vænna lausna svo eitthvað sé nefnt. Sér-
staða sýningarinnar er meðal annars
fólgin í því að sýnendur fá eins marga
boðsmiða; rafræna eða prentaða eins og
þeir kjósa. Þannig næst afar vel til mark-
hópa.
Iðnaður er mjög stór hluti hagkerfis
okkar. Samkvæmt hagtölum skapar hann
rúmlega um fimmtung landsframleiðsl-
unnar. Og þá er aðeins rætt um beint
framlag til landsframleiðslunnar. Hið
óbeina framlag er mun meira. Iðnaðar-
sýningin 2023 spannar hið víða svið iðn-
aðarins.
Sýningin verður einstakur og spenn-
andi vettvangur fyrir vörur og þjónustu
og er opið fyrir básapantanir,“ segir í til-
kynningu.
Iðnaðarsýning í Laugardals-
höll í haust
Iðnaður í sinni fjölbreyttustu mynd birtist gestum Iðnarsýningarinnar 2023 um
mánaðamótin ágúst-september.
Fréttir