Ægir

Årgang

Ægir - 01.09.2022, Side 23

Ægir - 01.09.2022, Side 23
23 endurnýjun,“ segir Hans Óli en hann er annar tveggja skipstjóra á Hafdísi. Hinn er Óskar Þór Guðmundsson sem stýrir sjódeild Geisla og leiddi endur- nýjunarverkefnið. Óskar er að sögn Hans Óla sá maður sem leiddi hug- myndir um útfærslu bátsins og á stærstan þátt í að verkefnið komst svo farsællega á leiðarenda. Góður stuðningur í heimabyggð Hans Óli segir að auk yfirbyggingar- innar og breiðara stýrishúss hafi með nýja bátnum fengist betri siglingatæki, en sá búnaður er frá Simrad sem Frið- rik A. Jónsson er umboðsaðili fyrir hér á landi. „Hafdísi var skipað upp á Reyðar- firði þegar hún kom frá bátasmiðju fyrirtækisins í Noregi og þaðan sigld- um við henni hingað heim á Fáskrúðs- fjörð. Þá fengum við að kynnast því hvernig báturinn er í smá kaldaveðri eins og við fengum á heimleiðinni og sú reynsla lofaði góðu. Hafdís fór bara vel með okkur á 32 mílum þó væri tals- verður sjór,“ segir Hans Óli. En hvern- ig fer lítil björgunarsveit að því að ráðast í tækjakaup af þessari stærðar- gráðu? „Þetta er vitanlega mjög stór pakki og mikil fjárfesting. Fyrir það fyrsta þá fengum við mjög gott verð fyrir gamla bátinn og það dugði fyrir rúm- lega helmingi kaupverðs nýja bátsins. Síðan höfum við öfluga styrktaraðila hér í heimabyggð og á Austfjörðum sem standa þétt við bakið á okkur, þeirra stærst er Loðnuvinnslan á Fá- skrúðsfirði. Síðan höfum við aðrar fjármögnunarleiðir á borð við flug- eldasölu og önnur fjáröflunarverkefni. Það gildir bara í rekstri björgunar- sveitar eins og öðru að passa vel upp á peningana og eyða ekki um efni fram. Við gætum okkur á að skulda ekkert og réðumst ekki í þetta stóra verkefni fyrr en við höfðum sannfæringu fyrir því að það myndi ganga upp fjárhags- lega,“ segir Hans Óli en í reynd átti endurnýjunarverkefnið sér stuttan að- draganda og kom fyrst og fremst til Til hamingju með Hafdísi Við óskum Björgunarsveitinni Geisla á Fáskrúðsfirði til hamingju með nýja björgunarbátinn Hafdísi SU  Skipstjórarnir hafa góð siglingatæki frá Simrad til að vinna með.

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.