Ægir - 01.09.2022, Qupperneq 30
30
Smiðjuvellir 32, Akranesi - Sími 431 5090 - www.apvest.is
- með lyf og sjúkravörur
Öll þjónusta við
skip og báta
Óskum landsmönnum
gleðilegra jóla
og farsældar á árinu 2023
Allir bátar eiga sér sögu. En auðvit-
að skera sumir sig úr. Það er til
dæmis ekki algengt að bátur sé
happdrættisvinningur ásamt Dodge
bifreið og dráttarvél. Það var nú
samt raunin í Happdrætti DAS árið
1955, að ekkja í Grindavík, Helga
Þórarinsdóttir, hlaut bátinn Súlut-
ind í vinning í happdrættinu. Við
fylgjum bátnum eftir með aðstoð
blaðafrétta og eins af eigendum
bátsins en báturinn er orðinn lúinn
og hvílir í nausti á Hellissandi. Þar
heilsaði barnabarn Helgu og al-
nafna hennar, Helga Þórarinsdótt-
ir, upp á bátinn og núverandi eig-
anda hans, Lúðvík Smárason, í
sumar.
Báturinn í Grindavík – Bíllinn og
dráttarvélin hér
Í gær var dregið í 9. flokki happdrættis
Dvalarheimilis aldraðra sjómanna. Voru
vinningarnir þrír: Nýr 6 manna Dodge-
bíll, mjög glæsilegur, vélbáturinn Súlu-
tindur, hið traustasta sjóskip með siglinga-
tækjum og loks Ferguson dráttarvél. Bíll-
inn kom á miða nr. 7263 og virðist sem
einhver Reykvíkingur hafi hlotið hnossið,
því miðinn er seldur í aðalumboði happ-
drættisins, Austurstræti 1. – Þá eru líkur
til að vélbáturinn hafi komið í hlut Grind-
víkings, hann kom á miða nr. 5879, sem er
í umboðinu í þessu sjósóknarkauptúni. –
Þá kom Ferguson dráttarvélin á miða nr.
25,086, sem seldur var í Austurstræti 1.
Morgunblaðið föstudagur
4. marz 1955
Ekkja fékk trillubátinn
Vélbáturinn Súlutindur í happdrætti Dval-
arheimilis aldraðra sjómanna, kom í hlut
frú Helgu Þórarinsdóttur, ekkju að
Bræðratungu í Grindavík. Varð hún fyrir
þeim ástvinamissi fyrir tveim árum, að
maður hennar drukknaði. Hefur hún síðan
unnið fyrir heimili sínu, þó ekki hafi hún
gengið heil til skógar. Mun hún fyrir
nokkru hafa fengið um það fyrirmæli frá
lækni að hætta þeirri atvinnu, sem hún
hefur haft. – Báturinn mun verða konunni
álitlegur búhnykkur. – Hún hefur ákveðið
að selja hann og mun þegar hafa borizt
fleiri en eitt tilboð í hann, enda er Súlut-
indur hið glæsilegasta skip.
Morgunblaðið. Sunnudagur 6. mars 1955.
Ekki lýgur Mogginn sögðu menn
gjarnan á sínum tíma. En þarna skol-
aðist töluvert til, því eiginmaður Helgu
lést úr krabbameini árið áður. Hann
drukknaði ekki tveimur árum fyrr.
Helga seldi bátinn og byggði húsið
Sóltún í Grindavík fyrir andvirðið.
Fyrst mun Súlutindur hafa farið til
Ólafsvíkur en þaðan í Stykkishólm þar
sem Höskuldur Pálsson keypti hann og
gerði út. Upphafið var litríkt því bát-
urinn lenti í sjávarháska en jafnframt
bjargaði áhöfn hans mönnum úr sjáv-
arháska.
Súlutindur sekkur
Í gærmorgun snemma, varð sá skipskaði
hér, að mótorbáturinn Súlutindur, 6 smá-
lesta, sem er eign Höskuldar Pálssonar í
Stykkishólmi, sökk við Höskuldsey. Tveir
menn voru á bátnum og björguðust þeir
nauðuglega.
Á leið í róður
Súlutindur var á leið í róður og fór frá
Stykkishólmi kl. 6 í gærmorgun. Skipverj-
ar voru tveir, Jónas Pálsson og Jón Hösk-
uldsson. Veður var suðvestan, hægur kaldi
en nokkur sjór. Var báturinn staddur um
það bil 20 mínútna keyrslu út af Höskuld-
sey, er þeir félagar urðu varir við leka.
Súlutindur – sagan öll
Helga Þórarinsdóttir, barnabarn og alnafna vinningshafans við Súlutind.
Útgerðarsagan