Ægir - 01.09.2022, Page 40
40
Þjónustufyrirtækið Ísfell flutti á
dögunum starfsstöð sína á Akureyri
í stærra húsnæði við Hjalteyrargötu
4. Húsið er tæplega 600 fermetrar að
stærð og verður þjónusta Ísfells
norðan heiða efld enn frekar með
tilkomu þessarar auknu aðstöðu. Ís-
fell bauð viðskiptavinum og sam-
starfsaðilum til opnunarhátíðar af
þessu tilefni.
Stærra húsnæði og aukin
þjónusta
„Með flutningum í Hjalteyrargötu 4
fáum við meira rými fyrir starfsemina
og þjónustu við viðskiptavini en við
höfðum áður. Húsið er líka á frábærum
stað í bænum, mjög sýnilegt og að-
gengilegt þannig að ég sé mikil tæki-
færi fyrir Ísfell til að þróa þjónustu
áfram á markaðnum hér fyrir norðan,“
segir Þorvaldur Sigurðsson, rekstrar-
Ísfell stækkar á Akureyri
Hús Ísfells við Hjalteyrargötu.
Þeir Þorvaldur Sigurðsson, rekstrarstjóri Ísfells á Akureyri og Guðbjartur Þórarinsson, framkvæmdastjóri Ísfells, eru
hæstánægðir með nýju aðstöðuna á Akureyri.
Með nýju húsnæði Ísfells eflist
verslun fyrirtækisins verulega. Þar
er m.a. seldur öryggis- og vinnu-
fatnaður.