Ægir - 01.09.2022, Blaðsíða 27
Óskum landsmönnum
gleðilegra jóla
og farsældar á nýju ári
ÆGIR
T Í M A R I T U M S J Á V A R Ú T V E G Í 1 0 0 Á R
Sóknarfæri
REYKJAVÍK | AKUREYRI | ritform.is
Ísland og Færeyjar hafa undirritað samning um fiskveiðar
fyrir næsta ár. Samninginn undirrituðu Svandís Svavars-
dóttir, matvælaráðherra, og Árni Skaale, sjávarútvegsráð-
herra Færeyja. Samningurinn er endurnýjun á samningi
þessa árs um botnfiskveiðar og loðnuveiðar Færeyja við
Ísland og veiðar Íslendinga á uppsjávarfiski innan lögsögu
Færeyja.
Samkvæmt samningnum verður botnfiskkvóti Færeyja í
lögsögu Íslands 5.600 tonn eins og á þessu ári. Þar af eru
2.400 tonn af þorski og allt að 400 tonn af keilu. Loðnukvóti
Færeyja verður 5% af heildinni sem Ísland, Grænland og
Norðmenn ákveða, en þó aldrei meiri en 30.000 tonn.
Aðgangur til að veiða kolmunna og norsk-íslenska síld
verður óbreyttur; þ.e. að þjóðirnar mega taka kvóta sína í
lögsögu hvors annars. Auk þess fá íslensk skip að veiða
1.300 tonn af makríl innan lögsögu Færeyja.
Ísland og Færeyjar hafa jafnframt gengið frá nýjum
rammasamningi um gagnkvæmar fiskveiðar. Sá samning-
ur kemur í stað samnings frá árinu 1976 og tekur gildi þeg-
ar þjóðþing beggja landanna hafa samþykkt hann. Hingað
til hafa þessir samningar verið á könnu sjávarútvegsráð-
herra beggja landanna, en nú taka embættismenn við
samningagerðinni.
Fiskveiðisamningur Íslands og Færeyja endurnýjaður