Ægir

Ukioqatigiit

Ægir - 01.09.2022, Qupperneq 39

Ægir - 01.09.2022, Qupperneq 39
39 er hugmynd þeirra hjóna. Sambandið styrkir verkefnin samtals um 1,3 millj- arða króna en alls koma 13 fyrirtæki, þar af fimm íslensk, að verkefnunum þremur. Samningurinn tekur gildi 1. janúar 2023 og gildir til fjögurra ára. „Hugmyndin er að nýta sér þessa vinda sem þrýstast yfir skipið á sigl- ingu og fara annars til spillis,“ útskýr- ir Óskar. Eins og áður segir er um að ræða endurunna gáma auk þess sem spaðarnir verða framleiddir úr endur- unnu plasti. Óskar bendir á að notkun opinna gáma hafi þann kost í för með sér að allir innviðir til flutninga séu til staðar, svo sem kranar og flutningabíl- ar. Það einfaldi alla meðhöndlun. María segir í því samhengi að gáma- félögin geti sett túrbínur um borð þeg- ar veðurspá lítur út fyrir að verða hagstæð til raforkuframleiðslu um borð, þær þurfi ekki að vera með í öll- um ferðum. Frumgerðin prófuð við Ingólfsfjall María segir að áhuginn á verkefninu sé mikill, ekki síður á landi en á sjó. Frumgerðin, sem er úr stáli, verður prófuð við Ingólfsfjall í vetur. Mark- miðið sé að finna út hvernig hægt er að framleiða sem mesta raforku með þessum hætti. Styrkurinn verður með- al annars nýttur til að smíða bæði 20 og 40 feta gáma sem notaðir verða við þróun vörunnar á komandi árum. Spurð hvort svo gæti farið að fiski- skip gætu með tíð og tíma notað þessa tækni svara þau hjónin því til að um plássfreka lausn sé að ræða. Þetta myndi aðeins henta á þau skip sem hafi nægt pláss uppi á dekki, svo sem olíu- og gámaflutningaskip. Þarf að vera svolítið bilaður „Við erum engir sérfræðingar á þessu sviði,“ svarar Óskar því til léttur í bragði þegar þau hjónin eru spurð um bakgrunn sinn. Þau hafi einfaldlega stungið sér í djúpu laugina. María bætir við að þau hafi fengið mikla hjálp frá KLAK í Grósku sem hjálpi frumkvöðlum að raungera hugmyndir sínar og myndi samfélag fyrir frum- kvöðla. Þau hafa einnig verið dugleg að sækja sér þekkingu og útvista verk- efnum. „Maður þarf að vera svolítið bilaður til að ráðast í þessa vitleysu,“ segir Óskar og hlær en bætir við: „Þetta eru miklar áskoranir, ég viður- kenni það, og alveg nýjar fyrir okkur. Það var ákveðið spark í rassinn að fá þennan Evrópustyrk.“ Nýsköpun  Hér má sjá tölvuteikningu af túrbínu í gámi þar sem hliðarnar hafa verið fjarlægðar.  Flutningaskip gætu nýtt sér lausnina til að draga úr olíunotkun.

x

Ægir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.