Fréttablaðið - 08.03.2023, Blaðsíða 11

Fréttablaðið - 08.03.2023, Blaðsíða 11
Aðild Íslands að Atlants- hafsbanda- laginu og tvíhliða varnar- samningur við Banda- ríkin eru mikilvægir þættir í vörnum landsins en virkjun þeirra er háð ákvörð- unum annarra en okkar sjálfra. Það eru nokkrir dagar liðnir síðan bók mín Íslenskur her, breyttur heimur nýr veruleiki kom út. Markmið bókarinnar er að vekja umræðu um stöðu íslensk ra öryggis- og varnarmála í ljósi þess að grimmilegt stríð stendur yfir í Úkraínu í kjölfar innrásar Rússa í landið 24. febrúar sl. þar sem marg- ir hafa fallið og milljónir manna eru á f lótta eða vergangi. Framkvæmdastjóri Atlantshafs- bandalagsins kallar þetta innrásar- stríð Rússa alvarlegustu öryggisógn sem Evrópu hefur staðið frammi fyrir frá lokum seinni heims- styrjaldar og að hætta sé á að þessi átök geti breiðst út fyrir landamæri Úkraínu og til álfunnar allrar. Viðbrögð allra aðildarþjóða Atl- antshafsbandalagsins, að Íslandi undanskildu,  hafa verið að ef la eigin varnir samanber ákvörðun Finna og Svía að sækja um aðild að bandalaginu. Engin veit hversu lengi þessi stríðsátök eiga eftir að standa yfir eða hvernig þeim mun ljúka, en allar Evrópuþjóðirnar gera sér grein fyrir því að öryggi Evrópu er í hættu og það ástand mun vara lengi. Fyrstu viðbrögð þeirra stjórn- málamanna sem hafa tjáð sig um bókina eru fyrirsjáanleg og bera þess vott að þeir hafa ekki kynnt sér efni hennar né heldur reyna þeir að svara eftirfarandi grund- vallarspurningu: Hvernig ætla íslensk stjórnvöld að tryggja varnir hernaðarlegra mikilvægra innviða ef landið verður fyrir óvæntri og fyrirvaralausri árás þannig að liðsauki eða aðstoð frá bandalags- þjóðum komist á áfangastað í ljósi þess að Ísland er herlaus þjóð? Í bókinni er lagt til að stofn- aður verði íslenskur her, varalið og varnarmálaráðuneyti auk þess sem Alþingi starfræki sérstaka hermálanefnd sem komi að stefnu- mótun og fjárlagagerð íslenskra öryggis- og varnarmála. Herinn yrði uppspretta faglegrar þekkingar og kunnáttu sem okkur skortir í dag jafnframt því að vera verkfæri í verkfærakistu stjórn- valda sem grípa má til fyrirvara- laust ef landið verður fyrir óvæntri árás eða náttúruhamförum, sem innlendar björgunarsveitir ráða ekki við. Þannig tækju Íslendingar eigin varnir föstum tökum með virkri þátttöku og fjárframlögum líkt og aðrar smáþjóðir hafa gert í stað þess að leggja allt sitt traust á að aðrar þjóðir verji íslenskt full- veldi og sjálfstæði. Er það ekki verðugt verkefni að gera Ísland að trúverðugum sam- starfsaðila í varnarsamstarfi vest- rænna ríkja sem er forsenda þess að bandalagsríki komi Íslandi til varn- ar á íslenskum forsendum? Aðild Íslands að Atlantshafsbandalaginu og tvíhliða varnarsamningur við Bandaríkin eru mikilvægir þættir í vörnum landsins en virkjun þeirra er háð ákvörðunum annarra en okkar sjálfra. Og það getur tekið tíma. Ísland hefur bæði mannaf la og fjárhagslega burði til að reka eigin her. Fjárframlög til varnartengdra verkefna árið 2022  námu um 0.088% af vergri landsframleiðslu. Á sama tíma eru Eystrasalts- þjóðirnar að eyða 2% af vergri landsframleiðslu og gott betur í eigin varnir, enda yfirlýst mark- mið Atlantshafsbandalagsins að allar aðildarþjóðirnar, að Íslandi undanskildu, nái þessum áfanga eigi síðar en árið 2024. Ísland, sem við viljum alltaf bera saman við helstu nágranna, stendur alveg utangarðs hvað þetta varðar af því að einhverjir aðrir eiga að sjá um öryggi- og varnir landsins! Sumir af þeim sem hafa tjáð sig um bókina hafa haldið því fram að landinu stafi engin ógn af þeim atburðum sem eiga sér stað í Úkra- ínu. Ég bendi hins vegar á að ef þessi átök breiðast út fyrir landamæri Úkraínu verður allt Norður-Atl- antshafið og þar með talið Ísland hugsanlegt skotmark, m.a. vegna liðs- og birgðaflutninga frá Norður- Ameríku og Kanada til Evrópu. Því hefur einnig verið haldið fram að ef á þarf að halda  séu Sérsveit ríkislögreglustjóra, lögregla, land- helgisgæsla, tollverðir og björgunar- sveitir til taks til að taka til varna. Hér er verið að bera saman epli og appelsínur. Sérsveitin, sem hefur staðið sig vel í sínu hlutverki, er fámenn og hefur takmarkaða getu til þess að verjast öflugri árás. Hinar löggæslustofnanirnar sem hafa verið fjársveltar og undir- mannaðar í gegnum árin hafa hvorki búnað, þjálfun né getu til að verjast fyrirvaralausum og óvænt- um árásum. Ekki frekar en björg- unarsveitir eða tollverðir! Ummælin sý na hins vegar á hvaða eyðimerkurgöngu við Íslendingar erum þegar kemur að umræðu um öryggi og varnir lands og þjóðar. n Eyðimerkurganga íslenskra landvarna Arnór Sigurjónsson varnarmálasér- fræðingur og höf- undur bókarinnar Íslenskur her Er fátækt náttúrulögmál? Svo mætti halda miðað við þær upp- lýsingar sem finna má í skýrslu Evrópuhóps Barnaheilla – Save the Children um fjölda barna sem eiga á hættu að búa við fátækt og félags- lega einangrun í Evrópu. Fjórða hvert barn í Evrópu elst upp í fátækt og hefur það lítið breyst undanfarin ár og virðist þeim börnum nú frekar vera að fjölga. Þetta kemur fram í nýjustu skýrslu Evrópuhópsins Tryggjum framtíð barna; Hvernig Covid 19, aukin framfærslubyrði og loftslagsbreyt- ingar hafa áhrif á börn sem alast upp í fátækt og hvað ríkisstjórnir í Evrópu þurfa að gera. Samkvæmt skýrslunni eiga um 10.000 börn á Íslandi á hættu að búa við fátækt og félagslega einangrun eða 13,1% barna á landinu. Þetta hefur lítið breyst á liðnum áratug og því má velta fyrir sér hvort fátækt sé náttúrulögmál sem ekki er hægt að breyta. Svarið við því er nei. Fátækt er ákvörðun samfélagsins sem er hægt að útrýma eins og annarri vá. Samkvæmt heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna sem íslensk stjórnvöld samþykktu skal vera búið að fækka þeim sem búa við fátækt um helming, samkvæmt skil- greiningu í hverju landi, fyrir árið 2030. Vandinn er sá að á Íslandi er engin opinber skilgreining á fátækt né áætlun hvernig á að uppræta eða minnka fátækt. Nú er skammur tími til stefnu og skora Barnaheill – Save the Child- ren á Íslandi á stjórnvöld að marka stefnu og gera áætlun um að upp- ræta fátækt meðal barna fyrir árið 2030. Ekkert barn á að þurfa að alast upp við fátækt, hún rænir börnum tækifærum, vonum og draumum. Fátækt mismunar börnum um lífs- ins gæði, heilsu og menntun. Barn sem elst upp við fátækt er jafnframt líklegra að búa við fátækt sem full- orðinn einstaklingur. Tökum höndum saman og búum til samfélag án fátæktar. Skrifaðu undir áskorun Barnaheilla – Save the Children á Íslandi. n Fátækt náttúrulögmál Margrét Júlía Rafnsdóttir verkefnastjóri inn- lendra verkefna hjá Barnaheillum – Save the Children á Íslandi Fjórða hvert barn í Evrópu elst upp í fátækt og hefur það lítið breyst undan- farin ár og virðist þeim börnum nú frekar vera að fjölga. 18 gr ískubbar Sýningarsalur Draghálsi 4 - Sími: 535 1300 - verslun@verslun.is TA K T IK 5 7 6 7 # Klakavélar mikið úrval Fréttablaðið skoðun 118. mars 2023 MIðVIkuDAGuR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.