Fréttablaðið - 08.03.2023, Blaðsíða 20
Grunnverð: 5.850.000 kr.
Hestöfl: 140
Tog: 185 Nm
Upptak 0-100 km: 9,1 sek.
Hámarkshraði: 180 km
Eyðsla 100 km/bl. akstur: 4,4 l
CO2 g/100 km: 100
L/B/H: 4.370/1.790/1.460 mm
Hjólhaf: 2.640 mm
Veghæð: 130 mm
Farangursrými: 361 l
Toyota Corolla 1,8
KosTir
n Tvinnkerfi
n Upplýsingakerfi
gallar
n Útsýni aftur
n Framsæti
Reynsluakstur
Njáll
Gunnlaugsson
njall
@frettabladid.is
Toyota Corolla Hybrid í hlaðbaksútgáfu er skemmtilegur akstursbíll, þökk sé nýja tvinnkerfinu. MYNDIR/TOYOTA
Í innanrými eru 12,3 tommu upplýsingaskjár og 10,25 tommu margmiðlunarskjár helstu breytingarnar.
Toyota Corolla er einn vin-
sælasti bíll í heimi og einnig
á Íslandi og því þykja það
fréttir þegar það kemur
ný útgáfa á markað. Um
andlitslyftingu er að ræða
á þessari tólftu kynslóð
Corolla en núna er bíllinn
með mun meiri tæknibún-
aði ásamt fimmtu kynslóð
tvinnkerfis Toyota.
Toyota Corolla kom fyrst á markað
árið 1966 og seldist fyrsta kyn-
slóðin í meira en milljón ein-
tökum. Áfram hafa þeir selst og
eru svo margir núna að ef þeim
yrði stillt upp í eina röð myndu
þeir ná sex hringi í kringum
jörðina. Fyrsta íslenska Corolla-
bifreiðin var frumkynnt fyrir
blaðamönnum í Háskólabíói 14.
apríl 1967 og sagt var frá bílnum í
blöðunum daginn eftir. Mikið vatn
hefur runnið til sjávar síðan þá og
talsverður munur er á að setjast
inn í bílinn frá 1966 og bílinn sem
er að koma núna, en einn sem rann
fyrsta daginn af færibandinu var
á staðnum þar sem blaðamanna-
kynning nútímans fór fram.
Innandyra eru breytingar á útliti
tólftu kynslóðarinnar ekki miklar
þótt komin séu ný efni og annar
frágangur. Meira kveður að nýjum
tæknibúnaði en komnir eru nýir
skjáir og hugbúnaður í Corolla,
meðal annars 12,3 tommu upp-
lýsingaskjár og 10,25 tommu marg-
miðlunarskjár. Það þýðir um leið
að bíllinn er komin með nýjustu
öryggiskerfi Toyota, eins og kerfi
sem varar við ef hurð er opnuð út
í umferð, aftursætisviðvörun sem
minnir ökumann á að athuga að
taka með sér það sem sett var í
aftursæti og svo mætti lengi telja.
Loks getur bíllinn nú fengið hug-
búnaðinn uppfærðan gegnum
netið. Helsti gallinn innandyra er
útsýni aftur sem mætti gjarnan
vera betra, en einnig frekar stutt
seta í framsætum sem mættu vera
stillanlegri.
Nýr Corolla er kominn með
fimmtu kynslóð tvinnkerfis
Toyota og það kerfi hentar þessum
bíl mjög vel. Með því að endur-
hanna kerfið og hugbúnaðinn er
hann orðinn mun notendavænni
en áður. Komið er nýtt stjórnbox
ásamt nýrri og öflugri rafhlöðu
sem er bæði minni um sig og
léttari en áður. Notast er við við-
námsminni olíu en áður og einnig
er rafmótorinn nýr af nálinni.
Toyota Corolla – meira að njóta
6 BÍ l a Bl a Ði Ð 8. mars 2023 MIÐVIKUDAGUR