Fréttablaðið - 08.03.2023, Side 36

Fréttablaðið - 08.03.2023, Side 36
1 Elon Musk: Óvinur Íslands númer Elon Musk stimplaði sig inn í gær sem óvinur íslensku þjóðar- innar númer eitt með fólskulegum fúkyrðum sem hann jós yfir mann ársins 2022, Harald Þorleifsson, á samfélagsmiðlinum Twitter. Harald Þorleifsson! Okkar eina sanna, einn vinsælasta mann Íslands og Elon „vondi“ Musk augljóslega orðinn óvinur Íslands númer eitt. Fréttablaðið rifjar upp aðra fjandmenn þjóðarinnar – sem sumum hefur aldrei verið fyrirgefið. odduraevar@frettabladid.is benediktboas@frettabladid.is Elon Musk Þú ræðst ekki á mann ársins á Twitter, gerir lítið úr vinnuframlagi hans og gerir grín að veikindum hans. Haraldur Þor- leifsson ákvað að greiða skatta á Íslandi og hefur bætt aðgengi og líf þúsunda á landinu undanfarin þrjú ár. Ef þú ræðst á okkar besta mann, þá ræðstu á okkur öll. Staffan „Faxi“ Olsson Sænski handbolta- púkinn með síða hárið gerði Íslendingum lífið leitt þegar hann lék með sænska handboltalands- liðinu á níunda og tíunda áratugnum svo að til varð Svíagrýlan alræmda. Faxi gerði sér svo lítið fyrir og glotti ítrekað og lék sér að því að pirra áhorfendur í landsleik Íslands og Sví- þjóðar í Laugardalshöll, líkt og rifjað var upp í tölu- blaði Eintaks árið 1994 þar sem Staffan var nefndur meðal helstu fjandvina þjóðarinnar. Pamela Anderson „Ísland er ein af fjórum hræði- legum þjóðum sem eru enn að stæra sig af að drepa hvali. Atkvæðið þeirra kom mér lítið á óvart,“ sagði ofurstjarnan og dýravinurinn Pamela Anderson í samtali við Fréttablaðið árið 2016. Tillaga um griðasvæði fyrir hvali í Suður-Atlantshafi var felld í Alþjóðahvalveiðiráðinu í október. Pamela er talsmaður hvala og og situr í stjórn Sea Sheperd og lagði til að Ísland yrði beitt viðskipta- og efna- hagsþvingunum fyrir sínar ólöglegu veiðar. Þá sendi hún Vladímír Pútín Rússlands- forseta persónulega beiðni um að stöðva för skips með langreyðakjöt frá Íslandi. Hún lýsti jafnframt yfir ánægju með hryðjuverkaaðgerðir samtak- anna á Íslandi árið 1986. Gordon Brown Um hríð virtist eins og Ís- lendingar væru orðnir óvinir heimsins númer eitt þegar breska ríkisstjórnin, leidd af Gordon Brown, ákvað að setja hryðjuverkalög til að frysta eignir íslenskra banka í Bret- landi þann 8. október árið 2008. Brown, sem svo að sjálf- sögðu skíttapaði í kosningum 2010 gegn David Cameron, varð umsvifalaust einn helsti andstæðingur Íslands. Upp úr spratt Inde fense- hópurinn og herferðin „Mr. Brown, do I look like a terrorist?“ fór á flug. Paul Watson Paul Watson og félagar í umhverfis- samtökunum Sea Shepherd frömdu það eina sem eiginlega mætti kalla hryðjuverk hérlendis árið 1986, þegar þeir sökktu tveimur hvalveiðibátum í Reykjavíkurhöfn. Íslenska þjóðin varð æf í kjölfarið og Watson að fjandmanni allra, enda sérstök niðurlæging fólgin í því að botnlokur hefðu einfaldlega verið skrúfaðar úr bátunum og þeim sökkt. Watson hefur svo endurtekið mætt til Ís- lands og stráð salti í sárin, meðal annars 2006 þegar hann líkti landinu við Norður- Kóreu. Ekki í lagi. Viktor Kortsnoj Ótrúleg hegðun hans við skákborðið 1988 gerði íslensku þjóðina hopp- andi reiða en Kortsnoj blés sígarettureyk framan í Jóhann Hjartarson í einvígi í Kanada. Þjóðin, sem þá var skákóð, fokreiddist. Jóhann hafði unnið hug og hjörtu lands- manna með rólegu fasi sínu en Kortsnoj stimplaði sig inn sem fjandmaður þjóðarinnar. Jóhann vann sigur í einvíg- inu, 4½–3½ eftir bráðabana við mikinn fögnuð Íslendinga. Vladimir Volfovits Zjirinovskij Margir hafa gleymt því en rússneski þjóðernissinninn Vladimir Zjirinovskij gaf lítið fyrir það árið 1991 þegar Ísland varð fyrsta landið til þess að viðurkenna sjálf- stæði Eystrasaltsríkjanna. Hann sagði að Íslendingar væru smáþjóð sem ætti að vera hlutlaus og eiga í góðum samskiptum við Rússland. „Hvers vegna eruð þið í NATO, án þess að eiga svo mikið sem einn skriðdreka eða kafbát?“ spurði Zjirinovskij og hló áður en hann spurði aftur hver tilgangurinn væri með því að vera í NATO. „NATO bjargar ykkur aldrei. Með nokkrum tundurskeytum og loft árásum er eyjan ykkar búin að vera.“ 20 lífið FRÉTTABLAÐIÐ 8. MARs 2023 MiðViKUDAGUR

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.