Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins - 01.06.1981, Blaðsíða 6

Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins - 01.06.1981, Blaðsíða 6
Xi^Aöngu Í 'v WMv \ N \\C^-í>'V»>SKl LAMBA5TAO*SKC«5^, FJORÐ Skildm/janes •\N, \ ^Holmar 'Fossvcýskapeifa 'Nauth Hsvík v V "SK ^ rossvoguR \seilM ■eiidbclssfaiir K0PAV0G1 ,, \ . 'VÖGU* ALFTANES •Breiðamýrí \.jZr LAMBHÚSATJÖRJk \ ARNARNESVOGUR SKERJAFJÖRÐUR Meishotði Caréahraun Hraunshalt* 1 'öorðcr MYND NO. 2 Svæði og sýnatökustöðvar í rannsókn Sigurðar Péturssonar á gerlamengun í Skerjafirði. Árið 1976 rannsakaði Hafrannsóknarstofnun áhrif frárennslis á botn- dýralíf í Skerjafirði. Niðurstaðan varð í stuttu máli sú, að fráleitt virtist í þessu sambandi að tala um mikla híbýlamengun í Skerjafirði, en svo virtist, að hún væri nokkur. Árið 1977 rannsakaði Líffræðistofnun Háskólans lífríki fjöru við Skerja- fjörð. Niðurstaðan benti til verulegra áhrifa skolps á lífríki fjörunnar. Jafnvel mætti búast við áhrifum skolps í framtíðinni, þótt það yrði leitt niður fyrir stórstraumsfjöruborð, nema einhver hreinsim á því ætti sér stað. III SAMANBURÐUR Á ÍSLENSKUM OG ERLENDUM KRÖFUM UM HREINLEIKA SJÁVAR TIL BAÐA Um sjó til baða gilda hér sömu reglur og imi sundlaugarvatn. Telst sjórinn skv. því óhæfur til baða, ef í honum finnast 10 eða fleiri E-coli pr. 100 ml., en sjór með 1-9 pr. 100 ml. telst hæfur en gallaöur. 1 stefnumörkun borgarlæknis og heilbrigðismálaráðs Reykjavíkurborgar frá 1974 er slakað á ofangreindum kröfum með því að E-coli má vera allt að 100 pr. 100 ml. innan 100 m fjarlægðar frá strönd (flóðborð). Hér má geta þess, að í þessari stefnumörkun eru gerðar jafn strangar kröfur um hreinleika sjávar þar sem útivistarsvæði eru við fjörur eins og um baðströnd væri að ræða, og hefur komið fram gagnrýni vegna þessa.

x

Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins
https://timarit.is/publication/1782

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.