Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins - 01.06.1981, Blaðsíða 19
19
Gjald þetta greiðist til skipulagsyfirvalda á staðnum þegar sótt er um
viðkomandi framkvæmd. Ýmsar imdantekningar eru þó frá þessari gjaldskrá,
t.d. er það fellt niður, ef í hlut eiga hreyfihamlaðir sem eru að gera
breytingar á eigin húsnæði.
Full ástæða virðist vera til að fylgjast með reynslu Englendinga af þessari
nýbreytni og mun skýrt frá henni her i blaðinu þegar upplysingar berast.
Búfjárhald
Stutt yfirlit um þróun búfjareignar á höfuðborgarsvæðinu með hliðsjón af
landnýtingu.
Að beiðni Skipulagsstofu höfuðborgarsvæðisins, og í framhaldi af umræðum
þar 24. apríl s.l., hafa verið festar hér á blað upplýsingar um búfjáreign
á svæðinu sem afmarkast af Esju að norðan og Vatnsleysuströnd að sunnan.
Reynt er að greina í stuttu máli frá þeim breytingiom sem átt hafa sér stað,
einkum síðustu 15 árin, og leitast við að líta nokkuð fram í tímann út frá
undangenginni þróun. Þótt vikið sé að búfjáreign í heild er megináhersla
lögð á þær búfjártegundir, sem einkum þarf að taka tillit til varðandi land-
nýtingu á svæðinu.
Þróun á liðnum árum
I. NAUTGRIPIR
Fyrr á árum var mikil nautgriparækt á þessu svæði vegna nálægðar við
tryggan mjólkurmarkað. Þetta hefur gerbreyst á þann veg, að nú er
mjólkurframleiðsla hverfandi lítil nema nyrst á svæðinu, þ.e.a.s. á
fáeinum bæjum í Mosfellsdal og á Kjalarnesi. Samtals töldust aðeins
305 nautgripir á þessu svæði haustið 1980 og fer fækkandi. Nautgripirnir
ganga að mestu á ræktuðu landi og skipta litlu sem engu máli í heildar-
landnýtingu svæðisins. Ekki er ástæða til að gera ráð fyrir, að
breytingar verði á þessari þróun í framtíðinni.
II. HROSS
Þegar notkun dráttarvéla varð almenn fækkaði hrossum verulega, þ.e.a.s.
á 5. og 6. áratugnum, en á 7. áratugnum fór reiðhrossum í þéttbýli að
fjölga. Einkum varð sú breyting áberandi upp úr 1970, en síðustu árin
hefur dregið nokkuð úr þessari fjölgun. í 1. töflu sést að í öllum
sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu hefur hrossum fjölgað mikið sé
miðað við síðustu 15 árin, eða um 220,7%, samkvæmt Forðagæsluskýrslum.
Hestamönnum fjölgar stöðugt, sérstaklega ungu fólki. Hestamennska er
reyndar orðin mjög vinsæl tómstundaiðja fólks á ýmsum aldri.
1. tafla: Fjöldi hrossa á höfuðborgarsvæðinu
Sveitarfélög 1965 1980 Mismunur
Kj alame shreppur 127 224 + 97
Mosfellshreppur 262 733 + 471
Reykjavík 1.200 2.761 + L.561
Kópavogur 108 981 + 873
Seltjamarnes 0 73 + 73
Garðabær 16 60 + 44
Be s sastaðahreppur 13 38 + 25
Hafnarfjörður 17 720 + 703
Samtals 1.743 5.590 + 3.847 eða 220,7% fjölgun