Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins - 01.06.1981, Blaðsíða 33

Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins - 01.06.1981, Blaðsíða 33
33 AÐALSKIPULAG: Gerö aðalskipulags hvers sveitarfélags þyrfti því aö miðast við hvort það sé þjóðfélagslega hagkvæmt að gera ráð fyrir mikilli fólks- fjölgun og uppbyggingu á viðkomandi stað. Á mynd 1 eru talin upp helstu jarðfræðileg atriði sem huga þarf að fyrir aðalskipulag. Þar er um að ræða nákvæma jarðfræðikortlagningu, sérstaklega á lausum jarðlögxm, þykkt þeirra könnuð með einföldum borunum og jarðsveiflumælingum. Sýni rannsökuð af lausum jarðlögum og berggriinni og notagildi áætlað, t.d. fylliefni, steypuefni, gróðurmold o.s.frv. Á þessu stigi þarf einnig, sérstaklega á jarðskjálftasvæðum, að gera eins nákvæmt sprungukort og mögulegt er og beita þar ýmsum jarðeðlisfræðilegum aðferðxam við sprunguleitina auk loftmynda. Áætla þarf líka vatnsgæfni mögulegra vatnsbóla eða vatnsleiðandi laga áður en byggð er endanlega valinn staður. DEILISKIPULAG: Fyrir deiliskipulag þess nýja bæjarhverfis eða byggingasvæðis, sem valið hefur verið úr aðalskipulaginu, þarf að gera ýmsar mannvirkja- jarðfræðilegar athuganir og eru þær helstu taldar upp í ramma 3 á mynd 1. Er þar um að ræða þéttari mælingar á þykkt og gerð lausra jarðlaga, aðal- lega til þess að auðvelt sé að velja byggingasvæði, sem hæfa t.d. lágri byggð, háhýsum eða útivistarsvæðum. HÖNNUN EINSTAKRA MANNVIRKJA: Að deiliskipulagi fullgeröu er eftir að kanna sérstaklega þykkt og eiginleika lausra jarðlaga fyrir einstök mannvirki og hanna undirstöður. Þar sem grunnt er á fast er þetta lítið mál og auðvelt að grafa könnunargryfjur með traktorsgröfu, en þar sem um er að ræða dýpra á fast og e.t.v. stórt mannvirki sem reisa skal. þarf að kanna jarðlög með borunum og í sumum tilfellum þarf sérhannaðar undirstöður, t.d. súlur sem reknar eru niður á fast. Þessi atriði falla undir Byggingarlög og er nokkuð fjallað um þessi mál í Byggingareglugerð frá 1979, kafla 7 (þ.e. 7.1.1 til 7.1.13). Kostnaður. Öll þessi upptalning kann að virðast flókin í framkvæmd og kostnaðarsöm, en svo er þó ekki. Sé verkefnið skipulagt nógu snemma, svo að hægt sé að vinna að verkinu á hagkvæmasta hátt, á hæfilegum tíma, er um mjög lítinn kostnað að ræða og miðað við þau verðmæti sem í húfi eru er kostnaðurinn hverfandi, og mun minni en sá aukakostnaður sem yfirleitt hlýst af ófullkomnum upplýsingum um skipulagssvæðin. Einnig er hætta á alvarlegum "skipulagsslysum" sé ekki unnið á líkan hátt og hér er lagt til. Á mynd 2 er reynt að áætla hlutfall kostnaðar vegna hvers áfanga á byggða- skipulagi og einnig er áætlaður jarðfræði- og jarðtæknilegi kostnaðurinn sem er einungis lítill hluti af heildarkostnaði við skipulagið og aðeins örlítið brot af byggingarkostnaði. Dæmi um jarðfræðilega úttekt. Jarðfræðiúttekt eins og hér hefur verið lýst hefur að hluta verið gerð á sumum stöðum á landinu, en ekkert á öðrum. Á mynd 3 er einföld verkáætlun um jarðfræðilega úttekt vegna aðalskipulags og deiliskipulags fyrir meðal- stóran kaupstað og er miðað við verk sem var unnið fyrir Siglufjarðarkaupstað á síðasta ári 1). Verktími fer eðlilega eftir stærð og gerð svæðisins og hvaða gögn eru fyrir hendi, en hér er lauslega áætlaður kostnaður a 10 ferkílómetra svæði. Kostnaður felst í eftirtöldum liðum: Vinna jarðfræðings, 17 vikur x 5,600 kr/viku Gögn, t.d. loftmyndir og kort Traktorsgrafa í 5 daga Cobrabor í 3 daga kr. 95.200 2.000 20.000 - 2) 12.000 Samtals kr. 129.200 Ath. Ekki er talið með uppihald og ferðir.

x

Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins
https://timarit.is/publication/1782

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.