Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins - 01.06.1981, Page 18
Norðmenn hafa sitt á þurru-
hvað með okkur Islendinga?
I Noregi rignir mikið og þar blása líka vindar
eins og kunnugt er. Þess vegna er þeim nauð-
syn á að eiga góð og þétt þök, sem þola hin
hörðustu átök veðurguðanna.
Fyrir sjö árum hóf norska fyrirtækið
PROTAN & FAGERTUN framleiðslu á
SARNAFIL- svissneskum PVC-dúk- og nú
hafa margir Norðmenn allt sitt á þurru.
SARNAFIL er flokkur afburða góðra plast-
efna. Meira en 15 ára reynsla og fjöldi til-
rauna og rannsókna sanna þessa fullyrðingu.
Það sem öðru fremur einkennir SARNAFIL
er öndunarhæfni þess og að það rýrnar ekki
en heldur mýkt og formi hvort heldur er í
sterkri sól eða í hörku frosti.
Dúkurinn er styrktur með glertrefjum eða vef
úr polyester. Samskeyti eru brædd saman
með heitu lofti og er sú vinna nánast óháð
veðri.
SARNAFIL má leggja út laust og fergja með
möl, líma með Sarnacol-lími eða festa með
skrúfum og sérstökum skífum.
Sérstakar gerðir SARNAFIL eru notaðar á
þök með léttri og þungri umferð, til grunn-
vatnsþéttingar, til þéttinga í jarðgöngum,
undir olíutanka og svo framvegis.
Allt að 10 ára ábyrgð á efni og vinnu.
SARNAFIL er aðeins lagt af sérhæfðum iðn-
aðarmönnum.
Sarnafii®
—fagtun
FAGTÚN HF, BORGARTÚN 18, 105 REYKJAVÍK, SlMI 28230