Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins - 01.06.1981, Qupperneq 22
Þetta eru heiðar og fjalllendi, að hluta innan fólkvanga, sem nýtist
til útivistar, t.d. gönguferða, skíðaiðkunar, skotveiða og hestaferða.
Hófleg sauðfjárbeit er samræmanleg gróðurvemdarsjónarmiðum, og nú þegar
leggja fjáreigendur í Reykjavík og Kópavogi áburðargjald á hverja ásetta
kind árlega til uppgræðslu á gróðursnauðu landi í afrétti sínum.
Ólafur R. Dýrmundsson,
landnýtingarráðunautur
Búnaðarfélags íslands
íbúdabyggd í Hvömmum, Hafnarfirói
höfundar: Gylfi Guðjónsson, arkitekt
Ingimundur Sveinsson, arkitekt.
Seinni hluta árs 1979 efndi bæjarstjórn Hafnarfjarðar til lokaðrar samkeppni
meðal arkitekta imi skipulag og hönnun þéttrar íbúðarbyggðar á tveimur af-
mörkuðum reitum í svo nefndu Hvammahverfi í Hafnarfirði.
Fimm aðilum var boðin þátttaka í samkeppninni.
Útbjóðandi, bæjarstjórn Hafnarfjarðar hugðist fá fram aðlaðandi, þétta byggð
með íbúðum í háijm gæðaflokki, enda eftirsóknarvert, að fólk stöðvist meira
en verið hefur i þéttbýlinu og uni sér þar vel til lengdar.
Óskað var eftir tillögum um ýmsar útfærslur þéttrar byggðar og beinlínis
tekið fram, að lág, þétt byggð komi til greina ekki síður en hefðbundin
„blokkabygging".
LEGA OG STEFM MG8M
Afstöðumynd af íbúðabyggð í Hvommum, Hafnarfirði.