Mosfellingur - 08.12.2022, Blaðsíða 2

Mosfellingur - 08.12.2022, Blaðsíða 2
Í þá gömlu góðu... Umsjón: Birgir D. Sveinsson (birgird@simnet.is) Héðan og þaðan NÝR SKÓLI Á VARMÁRHÓL Fyrsta skóflustungan tekin 20. júní árið 1970 Hafist er handa við byggingu Gagnfræðaskóla í Mosfells- sveit og honum fenginn staður á Varmárhól í grennd við Barnaskólann að Varmá - Varmárskóla. Arkitekt er Birgir Breiðdal og verkfræðingur Guðmundur Óskarsson. Þeir starfa á Teiknistofu húsameistara ríkisins. Skólinn er samstarfsverkefni Mosfellshrepps, Kjalarness og Kjósarhrepps. Einnig koma nemendur úr Þingvallahreppi. Heimavist er starfrækt við skólann. Heimildir: Dagblöð í júní 1970 og Askur - skólablað Brúarlandsskóla MOSFELLINGUR www.mosfellingur.is - mosfellingur@mosfellingur.is Næsti Mosfellingur kemur út 22. desember Útgefandi: Mosfellingur ehf., Spóahöfða 26, sími: 694-6426 Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Hilmar Gunnarsson, hilmar@mosfellingur.is Ritstjórn: Anna Ólöf Sveinbjörnsdóttir, annaolof@mosfellingur.is Ragnar Þór Ólason, raggiola@mosfellingur.is Ruth Örnólfsdóttir, ruth@mosfellingur.is Prentun: Landsprent. Upplag: 5.000 eintök. Dreifing: Afturelding. Umbrot og hönnun: Mosfellingur ehf. Próförk: Ingibjörg Valsdóttir ISSN 2547-8265 Tekið er við aðsendum greinum á mosfellingur@mosfellingur.is og skulu þær ekki vera lengri en 500 orð. Efni og auglýsingar skulu berast fyrir kl. 12, mánudegi fyrir útgáfudag. Mosfellingur kemur út að jafnaði á þriggja vikna fresti. Jólin eru eftir rúmar tvær vikur, hver hefði trúað því? Tíminn er allt of fljótur að líða og áreitið og ruglið í desember fer nú að ná hámarki. Í amstri dagsins er oft gott að staldra við og reyna að njóta að- ventunnar. Samvera er nefnilega eitt það mikilvægasta sem við getum gefið hvert öðru. Um helgina langar mig að mæla með nokkrum viðburðum í Mosfellsbæ. Á morgun föstudag, leika bæði handboltalið kvenna og karla að Varmá. Á laugar- daginn býður hestamannafélagið Mosfellingum í heimsókn. Á laugar- daginn opnar skógræktarfélagið Jólaskóginn í Hamrahlíð. Jólasveinar, álfar, söngur og súkkulaði á boðstól- um. Alla sunnudaga lesa rithöfundar upp úr bókum sínum á Gljúfrasteini. Upplýsingar um allt þetta og margt fleira í blaðinu í dag. Síðasta blað fyrir jól kemur út 22. desember. Þá hringjum við inn jólin. Netfangið okkar er sem fyrr mosfellingur@mosfellingur.is. Við kveikjum einu kerti á Hilmar Gunnarsson, ritstjóri Mosfellings www.isfugl.is 6 - Fréttir úr bæjarlífinu2 Í síðasta blaði var óskað eftir upplýsingum um skopmyndateiknara og höfðu nokkrir samband. PEBS stendur fyrir Pétur B. Snæland. Til vinstri: Gylfi Pálsson skólastjóri Gagnfræðaskólans að Brúarlandi 1966-1972 og Gagnfræðaskólans í Mosfellssveit 1972-1991. Lárus Halldórsson skólastjóri í Mosfellssveit 1922-1966. Til hægri: Lárus Halldórsson fyrrverandi skólastjóri tekur fyrstu skóflustunguna.

x

Mosfellingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.