Mosfellingur - 08.12.2022, Blaðsíða 40

Mosfellingur - 08.12.2022, Blaðsíða 40
 - Basar og aðsendar greinar40 Fyrsti fundur menningar- og lýðræðisnefndar var haldinn 15. nóvember sl. en nefndin hét áður menningar- og nýsköpunarnefnd. Hin nýja nefnd fer með menn- ingar- og lýðræðismál og á meðal annars að gera tillögur til bæjar- stjórnar um menningarmál, um stefnu í lýðræðismálum, hafa eftirlit með starfsemi stofnana sem vinna að menningarmálum og fleira. Á fyrsta fundi nefndarinnar lögðu fulltrúar Sjálfstæðisflokks- ins fram tillögu um að farið yrði í framkvæmdir á sviði Hlégarðs og því breytt þannig að hljóðburður þar sé það góður, að hægt sé að bjóða upp á ólíka tónlistar- og menning- arstarfsemi í húsinu. Einnig var lagt til að skoðað verði að setja fellistúku sem hægt væri að nýta fyrir viðburði í húsinu. Þessum tillögum var synjað með þremur atkvæðum meirihluta Framsóknar, Samfylkingar og Viðreisnar. Tillögur þessar voru lagðar fram þar sem það er mat okkar og margra annarra, að Hlégarð sé hægt að nýta mun betur og meira en nú er gert, og að húsið bjóði upp á mikla möguleika í þágu allra bæjarbúa og gesta. Fyrstu skrefin að okkar mati í þeirri vinnu eru að laga sviðið í húsinu og aðstöðu í sætum til að taka á móti gestum. Samkvæmt bókun meirihlutans liggur ekki fyrir hvaða starfsemi húsið á að hýsa, né hver á að sjá um reksturinn. Stefnumótum stendur nú yfir varðandi þessi mál og bíðum við spennt eftir niður- stöðu þeirra stefnumótunarvinnu. Franklín Ernir Kristjánsson og Helga Möller Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í menningar- og lýðræðisnefnd Hlégarður - næstu skref Ég vil vekja athygli á hversu gott það er að vera unglingur í bæ en ekki í borg. Það geri ég vegna væntanlegra aðgerða Reykjavík- urborgar í niðurskurði á opnunar- tíma félagsmiðstöðva, sem er að- för að barna- og unglingavelferð. Við í stjórn SAMFÉS – samtaka félagsmiðstöðva og ungmenna- húsa á Íslandi gagnrýnum þetta harðlega ásamt öllum þeim sem koma að þessum vettvangi. Unglingar í Mosfellsbæ eru einstaklega heppnir þegar kemur að félagsmiðstöðv- arstarfi. Hvergi á landinu er jafn mikill opnunartími félagsmiðstöðva. Mosfellsbær býður upp á þetta mikla starf til að tryggja að börn og unglingar hafi samastað í öruggu umhverfi þar sem bæði fer fram formlegt og óformlegt frístundastarf. Þar er hægt að tryggja mikilvægt samstarf barna/unglinga, skóla, foreldra og félagsmiðstöðva. Það sem Mosfellsbær býður upp á um- fram flest, ef ekki öll, bæjarfélög er heils- dagsopnun félagsmiðstöðva. Nú hugsa eflaust margir um hvers vegna félagsmið- stöð sé að opna klukkan 9:00 á morgnana þegar börnin eiga að vera í skóla? Í hugum margra er félagsmiðstöðin geymslustaður fyrir unglinga eftir skóla og fram á kvöld. Þar sem unglingarnir eru best geymdir til að drepa tímann. Ég hitti reglulega fyrrum unglinga sem koma til að þakka fyrir að starfsmenn Bólsins voru alltaf til staðar og benda á að Bólið bjargaði þeim á svo margan hátt. Oft eru þetta unglingar sem pössuðu ekki inn í ramma skólans eða voru ekki svo heppnir að búa við hin fullkomnu skilyrði heima fyrir. Hver sem ástæðan var, þá áttu þeir öruggt athvarf í Bólinu. Það sem félagsmiðstöðvarstarf snýst um er að vinna með einstaklinga og hópa á jafnréttisgrundvelli. Án stífra ramma en alltaf með virðingu að leiðarljósi. Félags- miðstöðin er staður þar sem unglingar geta komið og opnað sig, tjáð tilfinningar, áhyggjur og sorgir. Staður þar sem er hlust- að er á þá og ef á þarf að halda, staður þar sem starfsmenn koma erfiðum málum í rétt ferli, þannig að hægt sé að tryggja velferð og öryggi barna og unglinga. Staður þar sem starfsfólk er vinir, en á sama tíma fagfólk sem getur gripið inn í óæskilega hegðun. Starfsmenn sem eru vinir en þekkja mörk og heilbrigð samskipti og geta miðlað því áfram til unglinganna. Starfsmenn sem eru vinir, en eru ófeimnir við að nálgast erfið umræðuefni sem unglingurinn er ekki tilbúinn til að ræða við foreldra/ aðstandendur. Það sem gerist á daginn í félagsmið- stöðinni er að unglingarnir koma til okkar í frímínútum, í eyðum, í félagsfærni eða þeir koma í þau valfög sem við kennum. Valfögin eru alls konar. Þar má nefna kyn- fræðslu, fatahönnun, félagsfærni og félags- lega styrkingu. Auk þess þá tökum við alla bekki unglingadeildanna til okkar í fræðslu tengda fræðsluherferðum okkar. Til að koma aftur að upphafspunktin- um, þá er ég svo þakklát fyrir langtímasýn stjórnenda Mosfellsbæjar. Með niðurskurði á þessum vettvangi er verið að kasta krón- um til að spara aura. Ráðuneytin eru með- vituð um að staða barna og unglinga eftir heimsfaraldur er ekki eins og við óskum okkur. Til að bregðast við, þá sit ég ásamt öðrum sem vinna að málefnum barna og unglinga í ótal vinnuhópum á vegum ráðuneytanna um hvernig megi bregðast við þessari þróun sem er meðal annars aukin áhættuhegðun, kvíði og félagsleg einangrun. Þrátt fyrir þetta þá ætlar Reykja- víkurborg að skera niður fjárveitingu, sem er með öllu óskiljanlegt. Því vil ég enn og aftur þakka fyrir að stjórnendur Mosfellsbæjar sjái og meti það góða og mikilvæga starf sem félags- miðstöðvar sinna. Þó svo enn sé vinna fram undan við að koma starfseminni á þann stað sem okkar börn og unglingar eiga skil- ið, þá er Mosfellsbær orðinn það bæjarfélag sem horft er til á þessum vettvangi. Hrós til Mosfellsbæjar - ég er þakklát fyrir að unglingarnir mínir fái að alast upp í bæjarfélagi sem er tilbúið að styrkja und- irstöðuna, sem er unga fólkið okkar. Virðingarfyllst, Guðrún Helgadóttir Forstöðumaður Bólsins Það er betra að vera unglingur í bæ en í borg Skipulagsnefnd fundar aðra hverja viku og hefur nefndin fundað aukalega í ár vegna endurskoðun- ar aðalskipulags. Endurskoðun að- alskipulags Mosfellsbæjar er langt komin og er áformað að vinnunni ljúki fyrri hluta næsta árs. Nefndinni hafa borist þónokkur erindi er tengjast endurskoðun aðalskipulagsins og er mögulegt að sjá þessi erindi í fundargerðum nefndarinnar. Skipulagsnefnd berast erindi er varða til dæmis breytingar á deili- og/eða aðalskipulagi Mos- fellsbæjar, en þar sem nefndin er einnig umferðarnefnd, koma málefni er tengjast umferðarmál- um í Mosfellsbæ einnig til nefndarinnar. Á fundi skipulagsnefndar í nóvember sl. kom fram samantekt um hraðamælingar lögreglunnar hér í Mosfellsbæ, sem fram- kvæmdar voru fyrr á árinu. Niðurstöður þessara hraðamælinga voru því miður ekki góðar. Hraðamælingar fóru fram á 12 stöðum hér í bænum og kom í ljós að 7- 38% ökumanna óku of hratt, mismunandi eftir götum og hverfum. Á einum stað þar sem hámarkshraði er 70 km/klst. var til dæmis ekið á allt að 124 km hraða. Þetta er því miður of hátt hlutfall og of mikill umferðarhraði. Við hvetjum alla bæjarbúa til að virða umferðarhraða og umferðarreglur í bænum okkar því við verðum að sýna gott fordæmi, sérstaklega nú í skammdeginu. Meðal verkefna sem eru í vinnslu og undirbúningi hjá skipu- lagsnefnd má nefna deiliskipulag 6. áfanga Helgafellshverfis, deili- skipulagsbreytingar við Bjarkar- holt og miðbæjargarð, skipulag Borgarlínu og umferðar í miðbæ Mosfellsbæjar, umferðaröryggis- áætlun fyrir bæinn, uppbyggingu á athafnasvæði Blikastaðalands, uppbyggingu Hamraborgar við Langatanga og 5. áfanga Helgafellshverfis. Í nýsamþykktri samþykkt um stjórn Mosfellsbæjar hafa skipulagsfulltrúa nú verið fengnar víðtækari heimildir en áður til afgreiðslu erinda sem berast, sem er mjög jákvætt og mun stuðla að enn betri og skilvirkari þjónustu við bæjarbúa. Ásgeir Sveinsson og Helga Jóhannesdóttir, bæjar- fulltrúar D-lista og fulltrúar í skipulagsnefnd Ert þú á löglegum hraða? svipmyndir basar hjá eldri borgurum M yn di r/ Ra gg iÓ la

x

Mosfellingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.