Mosfellingur - 08.12.2022, Blaðsíða 44
Sendið okkur myndir af nýjum Mos-
fellingum ásamt helstu upplýsingum á
netfangið mosfellingur@mosfellingur.is
Hermann Orri Hjörleifsson fæddist
29. ágúst 2022. 4.550 gr og 54 cm.
Fyrsta barn foreldra sinna sem eru
Fjóla Hreindís Gunnarsdóttir
og Hjörleifur Þórðarson.
HM Í
MOSÓ
Það er skemmtilegt að hugsa til þess
hvað Katar sem heldur heimsmeist-
aramótið í fótbolta í ár er lítið land og
kannski minna en fólk almennt gerir sér
grein fyrir.
Það má segja Katar sé níu sinnum
minna en Ísland sem segir manni það
að ef nægir peningar væru til þá gætum
við vel haldið heimsmeistaramótið á
Íslandi.
Ef ég tala bara fyrir sjálfan mig þá
myndi ég aldrei vilja fá þessa keppni
til Íslands, það skilur eftir sig stóra
og mikla íþróttaleikvanga og skapar
mikla atvinnu en er ekki ágætt að fara
bara til Bandaríkjana eða Japan og sjá
þessi stóru mannvirki þar, þó það væri
rosalegt að fara niður í Varmá og þar
væri kominn leikvangur sem tæki 60
þúsund manns í sæti.
En ef ég fer aðeins aftur í landið sjálft
Katar þá er það umdeilt og að fjalla eitt-
hvað um umdeilt land er kannski ekkert
spennandi en það sem er áhugavert er
að þar ríkir kóngur og það er enginn
skógur í Katar.
Landið er mjög flatt en þarna undir
öllu liggja stærstu jarðolíubirgðir heims
og hefur það kannski eitthvað með
það að gera að þeir geta haldið stærsta
íþróttaviðburð heims.
Ekki er bara talað illa um þetta
umdeilda land en ef leitað er eftir besta
flugfélagi heims þá er talað um Qatar
Airways en flugfélagið er þekkt fyrir
örugg og góð flug. Qatar Airways er líka
þekkt fyrir að vera eitt af yngstu flugfé-
lögum sem flýgur til allra heimsálfa en
þetta flotta flugfélag var stofnað 1993 og
hefur 234 flugvélar undir sínu nafni sem
er rosalega mikið.
Ef þetta er borið saman við íslensku
flugfélögin þá er Play með 8 vélar og
Icelandair með 43 flugvélar.
Bragi Þór
- Heyrst hefur...44
Í eldhúsinu
Alexía og Aron skora á Viktoríu og Hafstein Gylfa að deila næstu uppskrift í Mosfellingi
Alexía Gerður Valgeirsdóttir og Aron Emil
Sigurðsson deila með okkur Mosfellingum
uppskrift að þessu sinni.
Hráefni:
• 500 g skrúfupasta
• 1 stk brokkolíhaus
• 1 rauð paprika
• ½ laukur
• 1 stk mexíkóostur
• 500 ml matreiðslurjómi
• 250 g skinka
• Salt, pipar og hvítlauksduft eftir smekk
• Olía
Aðferð:
Byrjið á að sjóða pasta. Saxið laukinn og
skerið brokkolí og papriku í bita. Steikið
svo laukinn upp úr olíu og kryddið með salti
og pipar, bætið svo brokkolí og paprikunni
saman við. Steikið þar til grænmetið er
farið að mýkjast og setjið þá yfir í skál.
Rífið mexíkóost og sjóðið með rjómanum á
pönnunni þar til osturinn er bráðinn. Gott að
krydda með salti, pipar og hvítlauksdufti.
Skerið skinku í teninga og setjið skinkuna,
grænmetið og pastað út á pönnuna og
blandið vel.
Verðiykkuraðgóðu!
Skinkupasta
AlexÍu og Aroni
Heyrst Hefur...
...að búið sé að loka Subway á N1
í Háholti, þar eigi að opna Ísey
skyrbar á nýju ári.
...að minkur hafi fundist í Reykja-
byggð á dögunum sem hefur
líklega sloppið úr minkabúi.
...að ekkert hafi orðið úr auglýstum
íbúafundi um aðstöðuleysi að Varmá
en forystufólki bæjarins hafi verið
verulega misboðið við fregnirnar.
...að Sverrir í Varmadal hafi orðið átt-
ræður 1. des. og því hafi verið fagnað
í viku eins og tíðkaðist til forna.
...að Villi naglbítur verði veislustjóri á
Þorrablóti Aftureldingar sem fram
fer laugardaginn 21. janúar 2023.
...að Mosfellingurinn Sjafnar Björgvins
sé kominn áfram í Idolinu.
...að búið sé að opna Blik með nýjum
rekstraraðilum og fyrrum heims-
meistara barþjóna innanborðs.
...að Grýla sitji sveitt við að sauma
búninga á Aftureldingarsveinana
sem verða á ferðinni á aðfangadag.
...að Mugison sé búinn að halda
sína fyrstu tónleika í sínum nýja
heimabæ.
...að hestamannafélagið Hörður bjóði
Mosfellingum í opið hús á sunnudag-
inn og reiðsýningu í höllinni.
...að verið sé undirbúa skemmtiskokk í
Mosó á gamlársdag.
...að Stormsveitin verði með útgáfu-
og þrettándatónleika laugardags-
kvöldið 6. janúar.
...að Steindi Jr. og Dóri DNA séu
komnir í úrslitaþátt KVISS þar
sem Afturelding mætir KR í beinni
útsendingu á laugardaginn.
...að jólabingó fullorðna fólksins fari
fram á Barion fimmtudagskvöldið
15. desember.
...að jólaskógurinn í Hamrahlíð opni
með látum á laugardaginn kl. 12:30
þar sem jólasveinar, álfar og söngur
verða á boðstólum.
...að búið sé að senda starfsmann
á Hömrum í leyfi frá störfum
vegna gruns um ofbeldi gagnvart
skjólstæðingum.
...að íþróttafréttamaðurinn Gunni
Birgis sé komin í nefndina sem velur
íþróttamann og -konu Aftureldingar.
...að Gunni Mall hafi fengið starfs-
mann Stjörnunnar á sig í fagnaðar-
látum eftir síðasta sigurleik.
...að Greta Salóme sé orðin móðir.
...að hestamenn haldi aðventukvöld
fyrir 60+ í Harðarbóli næsta miðviku-
dagskvöld.
...að Bjartmar Elí úr Bólinu hafi lent í
öðru sæti í Rímnaflæði.
...að Brúarhóll sé til sölu.
...að Mosfellingurinn og jógakennar-
inn Íris Dögg sé með skemmtilegt
jógadagatal í desember.
...að 50 manns hafi sótt um stöðu
umsjónarmanns Listasals Mosfells-
bæjar sem er verið að ráða í.
mosfellingur@mosfellingur.is
j a ko s p o r t ( N a m o e h f ) - k r ó k h á l s 5 f - 1 1 0 á r b æ r
Sími: 566 7310 - jakosport@jakosport.is - jakosport.is
jólagjafirnar
færðu á
jakosport.is