Mosfellingur - 08.12.2022, Side 10

Mosfellingur - 08.12.2022, Side 10
Halda tónleika í Lágafellskirkju „Hátíðarnótt“ - tónleikar verða haldnir í Lágafellskirkju fimmtu- daginn 15. desember. Fyrir jólin 2015 kom út geisladiskurinn „Hátíðarnótt“ og þar leika Andrés Þór Gunnlaugsson gítarleikari, Karl Olgeirsson píanóleikari og Jón Rafnsson bassaleikari jólalög og sálma sem fylgt hafa íslensku jólahaldi í gegnum áratugina. Þeir félagar hafa síðan þá alltaf haldið nokkra tónleika á aðventunni og í ár verður engin undantekning þar á, því nú í desember leika þeir í fimm kirkjum á Suðurlandi. Á tónleikunum, sem eru um klukku- stundarlangir, flytja þeir diskinn í heild sinni. Útsetningarnar eru í rólegri kantinum og stemningin sem myndast er bæði þægileg og afslappandi, sem áheyrendur tala gjarnan um og eru ánægðir með, - gott að koma og bara hlusta og íhuga og njóta. Þeir munu leika í Lágafellskirkju fimmtudaginn 15. desember kl. 20.00 og er aðgangur ókeypis. - Bæjarblað í 20 ár10 Laus störf í Mosfellsbæ Öll laus störf hjá Mosfellsbæ og stofnunum má sjá og sækja um á ráðningarvef bæjarins: www.mos.is/storf Opið í ÞverhOlti 5 13-18 mán-fös., 11-14 laugardaga Ýmislegt til jólagjafa fyrir prjónakonuna í lífi þínu Blik Bistro hefur nú opnað aftur eftir vel heppnaðar breytingar. Nýir rekstraraðilar, þeir Ágúst Reynisson, Guðlaugur Frímannsson og Grétar Matthí- asson, eða GGG veitingar, hafa tekið við staðnum og eru í skýjunum yfir frábærum móttökum eftir fyrstu dagana. „Við opnuðum þann 1. desember eftir smá breytingar á staðnum. Við einblíndum á það að gera staðinn hlýlegri, hönnuðum nýtt barsvæði og fengum lýsingarhönnuð til að betrumbæta lýsinguna,“ segir Ágúst og tekur fram hversu mikið þeir félagar finna hvað Mosfellingum þykir vænt um Blik. Fjölbreyttur matseðill Þeir félagar hafa mikla reynslu úr veit- ingageiranum og hafa unnið lengi saman, þeir eru með skýra sýn á hvernig þeir vilja haga rekstri staðarins. „Við erum með fjölbreyttan matseðil þar allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi og á mjög samkeppnishæfu verði. Núna í desember bjóðum við upp á þriggja rétta jólaplatta með ýmsum réttum, platt- arnir hafa hlotið alveg gríðarlegar góðar viðtökur. Við reynum að halda í „Blik- þemað“ sem Mosfellingar þekkja, léttur veitingastaður, kaffihúsafílingur yfir daginn og kokteilar á kvöldin,“ segir Guðlaugur. Jólaglögg á aðventunni Grétar sem er framkvæmda- og rekstr- arstjóri segir að mikill metnaður ríki hjá þeim og margar hugmyndir í gangi. „Við ætlum til dæmis að bjóða upp á jólaglögg á aðventunni, við viljum fá fólkið sem er að ganga hér um Blikastaðanesið inn í kaffi eða kakó og köku, við viljum að fólk geti komið hingað að horfa á íþrótta- viðburði, á happy hour eða bara til að fá sér að borða. Við munum líka hlusta á þörfina og reyna að verða við þeim óskum sem við- skiptavinirnir koma með. Þess má líka geta að við erum með flottan vínseðil og frábæran kokteilaseðil,“ segir Grétar sem er Íslandsmeistari barþjóna. Þeir félagar bjóða Mosfellinga og nær- sveitunga sérstaklega velkomna til að njóta staðarins í einstöku umhverfi og frábæru útsýni. Nýir rekstraraðilar á Blik Bistro • Jólamatseðill í desember • Einstakt umhverfi Mosfellingum þykir vænt um Blik – Fengið frábærar viðtökur Gulli, Grétar oG Gústi hafa tekið við blik í Golfskálanum

x

Mosfellingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.