Mosfellingur - 08.12.2022, Síða 16

Mosfellingur - 08.12.2022, Síða 16
Unnið að bættu aðgengi allra Nú stendur yfir vinna við að kortleggja hvar í gatna- og stíga- kerfi bæjarins sé einkum þörf á úrbótum á aðgengi. Í þeirri vinnu felst meðal annars að kanna hvar vanti leiðarlínur og áherslufleti við gangbrautir, hvar vanti lækkanir á kantsteinum og hvar aðgengi á strætóbiðstöðvum er ábótavant. Samhliða verður hafist handa við gerð aðgengisúttektar fyrir allar opinberar byggingar Mosfellsbæjar. Unnið er að ýmsum úrbótum á aðgengi sem flokkast sem öryggis- aðgerðir. Má þar nefna uppsetningu rafdrifinna dyraopnara í byggingum bæjarins og hindranir við bílastæði við Þverholt 2 málaðir í gulum lit með það að markmiði að auka öryggi og efla sjálfstæði sjónskertra íbúa. Vinna við endurhönnun klefa fyrir hreyfihamlaða í Lágafellslaug stendur yfir í kjölfar ábendinga notenda. Íbúar eru hvattir til að koma ábendingum á framfæri um bætt aðgengi á opinberum stöðum í sveitarfélaginu í gegnum ábend- ingakerfið á www.mos.is - Bæjarblaðið í Mosfellsbæ16 Laugardaginn 26. nóvember voru ljósin tendruð á jólatré Mosfellinga við hátíðlega athöfn. Börn úr forskóladeild Listaskóla Mos- fellsbæjar undir stjórn Þórunnar Díu Stein- dórsdóttur sungu og spiluðu fyrir gestina. Tréð er úr Hamrahlíðarskógi okkar Mosfell- inga og það voru þau Anney Saga La Marca Woodrow og Pálmar Jósep Gylfason á leik- skólanum Reykjakoti sem fengu heiðurinn af því að tendra ljósin á jólatrénu með að- stoð Regínu Ásvaldsdóttur bæjarstjóra. Venju samkvæmt kíktu jólasveinar í heimsókn og gáfu mandarínur auk þess sem Mosfellingurinn Jógvan Hansen flutti nokkur lög. Þetta var í fyrsta skiptið síðan 2019 sem ljósin voru formlega tendruð og ánægjulegt að sjá hversu margir sóttu viðburðinn. Fyrir tendrunina spilaði Skólahljóm- sveit Mosfellsbæjar undir stjórn Daða Þórs Einarssonar lék jólalög á torginu í Kjarna þar sem 4. flokkur kvenna í fótbolta seldi vöffl­ur, kakó og kaffi í fjáröflunarskyni. Efla þarf forvarnar- starf lögreglu Á stjórnarfundi Samtaka sveitar- félaga á höfuðborgarsvæðinu var svohljóðandi bókun samþykkt: „Efla þarf forvarnarstarf lögreglu og sýnilega löggæslu. Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæð- inu fagna þeim áformum sem endurspeglast í fjáraukalögum um styrkingu lögreglunnar á landsvísu. Á höfuðborgarsvæðinu búa um 64% landsmanna. Hlutfall lögreglu á höfuðborgarsvæðinu hefur hins- vegar lækkað úr því að vera 47% af starfandi lögregluþjónum á landinu á árinu 2010 í 39% á árinu 2022. Sveitarfélögin eiga í góðu samstarfi við lögregluna, ekki síst þegar kemur að forvarnarmálum vegna barna og ungmenna. Með fjölgun samfélagslögregluþjóna, sem vinna markvisst með velferðarþjónustu og félagsmiðstöðvum er hægt að grípa strax inn í hópamyndanir og ofbeldi á meðal ungmenna og stemma þannig stigu við afbrotum.“ Í stjórn samtakanna sitja bæjar- stjórar á höfuðborgarsvæðinu og borgarstjóri. „Höfuðborgarsvæðið hefur verið að dragast aftur úr þegar kemur að mönnun í lögreglunni,“ segir Regína Ásvaldsdóttir bæjar- stjóri í Mosfellsbæ og formaður stjórnar Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu. „Nú eru starfandi lögregluþjónar í 1,2 stöðu- gildum á hverja þúsund íbúa hér á þessu svæði og er það langlægsta hlutfall á landinu.“ Markar upphaf jólahalds í Mosfellsbæ • Tréð á torginu fengið úr mosfellskum skógi Ljósin tendruð í miðbænum M yn di r/ Ra gg iÓ la

x

Mosfellingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.